Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Blaðsíða 25
15.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Nýjungar í hönnun Sjálfbærni hefur verið áberandi undanfarið í hönnun og svo virðist sem hönnunarhús og einyrkjar leggi frekar áherslu á og séu með- vitaðri en áður um endurnýtingu og sjálfbærni í hönnun. Hér má sjá nokkrar áhugaverðar nýjungar í hönnun, nýjar línur þekktra hönnunarhúsa og ung, spennandi fyrirtæki. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is HVÍTASUNNUNNAR Opið laugardagLokað á Hvítasunnudagog annan í Hvítasunnu DC 5000 Þriggja sæta sófi. Grátt slitsterkt áklæði. Einnig fáanlegur tveggja sæta. Stærð: 3ja 203 x 79 H: 81 cm. 153.993 kr. 219.990 kr. AFSLÁTTUR 30% PINNACLE Klæddur svörtu leðri á slitflötum. Stærð: 84 × 90 × 100 cm 125.993 kr. 179.990 kr. AFSLÁTTUR 30% Nýjasta smáforrit Google er sýndarveru- leikateikniforritið Tilt Brush sem gerir hönn- uðum og arkitektum kleift að nálgast hönnun sína á annan hátt með því að geta gengið í gegnum og í kringum verkin sem þeir skapa jafnóðum. Smáforritið, sem býð- ur upp á endalausa möguleika, nýtist sam- hliða HTC Vive sýnd- arveruleikagleraugunum og með nokkrum einföld- um stillingum er hægt að skapa áhugaverð þrí- víddarverk þar sem striginn er í raun allt rýmið sem þú stendur í. Hönn- uður forritsins Drew Skillman sagði í samtali við tímaritið Fast Comp- any að flestir ættu að geta notað forritið, börn, listamenn eða bara hver sem er. Palletturnar í forritinu auðvelda fólki að móta verk sem svipar til elds, snjós eða til að mynda reyk. Tilt Brush er skapandi smáforrit þar sem rýmið er strigi listaverksins. Verk unnið í Tilt Brush-forritinu. Snjór, reykur og eldur eru meðal þess sem hægt er að mynda með forritinu. Sýndarveruleika- teikniforrit Möguleikarnir eru óendanlegir þegar unnin eru þrívíddarverk með sýndarveruleikagleraugum. Bandaríska hönnunarhúsið Ladies & Gentlemen hefur hannað línu af hangandi ljósakrónum sem unnar eru úr glerkúlum og breyta um lit þegar ljósið er kveikt. Upphaflega voru ljósakrónurnar gráar að lit en nú hefur listamaðurinn John Hogan handblásið litaðar útgáfur af ljós- krónunni með sérstökum gljáa. Allt glerið í ljósakrónunum er sandblásið og olíuborið til þess að gefa fallega áferð og dreifa LED-birtu perunnar. Málmur er notaður til þess að hengja kúplana á sem eru fáanlegir í þremur áferðum; bláum, kampavínslituðum brons og dökkum brons. Glerið er sandblásið og síðan olíuborið til þess að dreifa birtunni. Formin eru einföld en spennandi. Ljósakrónurnar eru handblásnar. Sandblásnar ljósakrónur sem skipta litum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.