Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Blaðsíða 18
W
rangler gallabuxur, kakíföt,
hermannaföt, munstraðar
peysur, víðar skyrtur
teknar saman í mittinu
með belti, kúrekastígvél,
köflóttar skyrtur og nýjustu græjurnar frá
Pioneer eru nokkur dæmi sem koma í hugann
þegar hann reikar aftur til unglingsáranna.
Að gera sér bæjarferð með vinkonum eða vin-
um niður í miðbæ Reykjavíkur að kaupa ný
föt í Karnabæ er minning sem eflaust margir
deila.
Fyrsta sending seldist upp á viku
Guðlaugur Bergmann, betur þekktur sem
Gulli í Karnabæ, stofnaði árið 1960 heildversl-
un G. Bergmann hf. og það var svo 16. maí ár-
ið 1966 sem hann stofnaði í félagi við þá Björn
Pétursson og Jón Baldursson tískuvöruversl-
unina Karnabæ. Búðin dregur nafn sitt frá
Carnaby Street í Soho í London þar sem
helstu tískuverslanir voru á 7. áratugnum.
Karnabær var stofnaður sem nauðvörn, því
Gulli heitinn og félagar hans voru heildsalar
sem ætluðu að selja smásölum vöruna. Smá-
salarnir hættu hins vegar allir við og þá varð
að setja upp búð til að selja vöruna. Ákveðið
var því að stofna Karnabæ. Það sýndi sig að
fötin voru kærkomin nýjung því fyrsta send-
ing seldist upp á viku.
Unga fólkið fékk sína eigin tísku
Margt breyttist á þessum árum og átti Karna-
bær sinn þátt í því. Nýjustu straumar frá
London voru nú komnir til Íslands en með
tískunni urðu allt í einu til „táningar“, ekki
unglingar. Ungt fólk sem áður hafði klætt sig
eins og „litlar konur“ og „litlir karlar“ varð að
flottum og stællegum táningum með sína eig-
in tísku. Stelpur sem alltaf höfðu þurft að
ganga í pilsum gátu nú gengið í buxum.
Markaðurinn taldi að þessi nýja tíska væri
bóla sem myndi hjaðna og enginn fór í sam-
keppni við Karnabæ í tvö ár. Annað kom á
Hálf öld frá opnun Karnabæjar
Karnabær átti þátt í samfélags-
legri byltingu og markaði
tímamót í tísku ungmenna.
Hinn 16. maí eru fimmtíu ár
frá opnun verslunarinnar.
Flestir sem komnir eru á miðj-
an aldur muna vel eftir tísku-
búðinni Karnabæ en á þeim
tíma var enginn maður með
mönnum nema hann gengi í
nýjustu tískunni þaðan.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Á myndinni má sjá Sævar Baldursson verslunarstjóra og þá Björn Pétursson og Guðlaug Bergmann sem stofnuðu Karnabæ.
Guðlaugur Bergmann sést hér í nýjustu hermannatískunni. Karnabær opnaði upphaflega á Týsgötu en síðar á Laugavegi og í Austurstræti en þar var opnað árið 1973.
KARNABÆR 50 ÁRA
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.5. 2016