Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.5. 2016
Kostar heimilisofbeldi milljarða?
Talið er að kostnaður þjóð-félagsins vegna heimilis-ofbeldis gegn konum geti
numið milljörðum króna árlega
þegar allt er talið. Rannsókn
stendur yfir og rétt að taka fram
að upphæðin liggur ekki fyrir, en
sé miðað við umfangið í þeim lönd-
um sem Íslendingar bera sig
gjarnan saman við, gæti verið um
ótrúlegar upphæðir að ræða.
Drífa Jónasdóttir afbrotafræð-
ingur vinnur að rannsókninni þar
sem markmiðið er að komast að
raun um hvert sé umfang, eðli og
kostnaður sem hlýst af þegar karl-
menn beita konur heimilisofbeldi.
Rannsóknin er jafnframt doktors-
verkefni hennar við Læknadeild
Háskóla Íslands.
Kostnaðurinn er af ýmsum toga,
þar sem birtingarmynd heimilis-
ofbeldis er margvísleg. Aðilar sem
gætu þurft að bregðast við eru til
að mynda lögregla, dómstólar,
sjúkraflutningamenn, læknar og
annað starfsfólk sjúkrahúsa, sál-
fræðingar, félagsráðgjafar, barna-
verndarfulltrúar, starfsfólk vel-
ferðarsviðs og starfskonur
Kvennaathvarfsins. Sé annar kon-
ar kostnaður skoðaður má nefna
að þolendur heimilisofbeldis eru
líklegri en þær konur sem ekki
hafa reynslu af slíku, að búa við
fleiri heilsufarsvandamál, vera
með sjálfsvígshugsanir, glíma við
kvíða og þunglyndi. Mikilvægt er
að rannsaka heimilisofbeldi nánar
og allir þeir sem ég hef leitað til í
því skyni að fá upplýsingar hafa
tekið mér mjög vel.“
Rannsóknin beinist að konum á
Íslandi og heimilisofbeldi gegn
þeim árin 2013 og 2014. Drífa leit-
ar fanga hjá Landspítalanum
(LSH), hjá lögreglu og í velferðar-
kerfinu. Upplýsingar eru mjög
misjafnlega aðgengilegar og flókið
verk að afla þeirra, en hún vonast
til að hluti frumniðurstaðna geti
legið fyrir í haust. „Ég er langt
komin með að safna gögnum á
Landspítalanum og hef þegar lesið
þúsundir skýrslna,“ segir hún.
Þessi vinna er tímafrek vegna þess
að ofbeldismál á heimilum eru ekki
flokkuð sérstaklega í heilbrigðis-
kerfinu eða í velferðarkerfinu.
Ekki er til greining, eða kóði fyrir
heimilisofbeldi og þar af leiðandi
ekki hægt að kalla fram gögn úr
kerfunum.
Auðveldara er að vinna úr gögn-
um lögreglunnar því þar eru öll
mál flokkuð. „Ég hef óskað eftir
ópersónugreinanlegum gögnum
frá lögreglunni og það verður í
sjálfu sér ekki mikil vinna að
greina þau.“
Miðað við gögn sem Drífa hefur
skoðað má ætla að fimm konur á
Íslandi séu beittar heimilisofbeldi
á hverjum einasta degi og að á
bilinu 180-400 ófrískar konur verði
fyrir heimilisofbeldi hérlendis á ári
– ótrúlegt en satt.
Drífa segir að mikið hafi breyst
í þessum efnum hér heima eftir að
verklagi var breytt á Suðurnesjum
árið 2013, en nú hefur Suðurnesja-
módelið, Að halda glugganum opn-
um eins og það er kallað, verið
tekið upp á höfuðborgarsvæðinu.
Markmiðið er að bæta rannsóknir
í heimilisofbeldismálum með mark-
vissari fyrstu viðbrögðum lög-
reglu, fækka ítrekunarbrotum, að-
stoða þolendur og gerendur
markvisst, nýta betur úrræði um
nálgunarbann og brottvísun af
heimili og að ná fleiri málum í
gegnum refsivörslukerfið.
Samkvæmt nýjum verklags-
reglum lögreglu um meðferð og
skráningu heimilisofbeldismála eru
til dæmis verksummerki ljós-
mynduð, þolanda gerð grein fyrir
rétti sínum, skýrsla er tekin og
sömuleiðis er óskað eftir fulltrúa
barnaverndar eða félagsþjónustu
ef börn eru á heimilinu þegar of-
beldið á sér stað – sem er í um
40% tilfella.
Eitt af markmiðum rannsóknar-
innar er að vitundarvakning verði
um heimilisofbeldi. Drífa segir of-
beldið falið og á ákveðinn hátt allt
annars eðlis en mörg önnur mál.
Eitt af því sem hana hafi langað að
rannsaka sé t.d. hvað sé ólíkt með
komum á slysa- og bráðamótttöku
LSH, þegar ástæðan er heimilis-
ofbeldi, miðað við aðrar komur.
Gögn benda til þess að þeir
sömu hafi beitt ofbeldi hvað eftir
annað en Drífa segir ekki eins
auðvelt að „komast upp með“ að
beita heimilisofbeldi þegar svona
vel sé tekið á málum strax og eft-
irfylgnin orðin jafn mikil og raun
beri vitni.
„Það var auðvitað kostnaðar-
samt fyrir lögregluna að fara
ítrekað í útköll á sama heimili og
ef til vill handtaka sömu mennina
aftur og aftur. Breytt vinnulag
hefur skilið góðum árangri, ítrek-
unarbrotum fækkar og fleiri mál
fara áfram í kerfinu.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Drífa Jónasdóttir afbrotafræðingur rannsakar kostnað við heimilisofbeldi á Íslandi með því að skoða gögn frá Landspítalanum,
lögreglunni og úr félagslega kerfinu. Talið er að fimm konur séu beittar heimilisofbeldi hér á landi á hverjum einasta degi.
Drífa Jónasdóttir: Ofbeldið
er falið og annars eðlis en
mörg önnur mál.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Upplýsingar um kostnað
vegna heimilisofbeldis hafa
verið teknar saman, „en aldr-
ei áður á jafn umfangsmikinn
hátt og ég er að gera núna,“
segir Drífa.
Hún segist hafa verið spurð
hvers vegna hún rannsaki
bara ofbeldi karla gegn kon-
um. „Hvað með karla sem
þolendur, börn, innflytjendur,
samkynhneigða? Ég hef feng-
ið ýmsar spurningar en ákvað
að afmarka rannsóknina og
hafa ekki of víðfema.“
Drífa segir að sumum þyki
kaldranalegt að rannsaka of-
beldið í því samhengi sem
hún geri. „Ofbeldið kostar
samfélagið bara svo mikið að
það er raunverulegt efna-
hagsmál. Þegar það kostar
þjóðfélagið milljarða að
menn beiti heimilisofbeldi, er
það ekki þeirra einkamál.“
Fyrsta hugmynd Drífu að
verkefninu var allt önnur en
er úr varð.
„Fyrst ætlaði ég í raun bara
að komast að því hver kostn-
aðurinn var með því að áætla
og taka saman tölur úr hin-
um ýmsu kerfum þjóðfélags-
ins. Það var dálítil krúttpæl-
ing að skrifa skýrslu um
kostnaðinn en ég ákvað síðar
að gera alvöru rannsókn.“
Hví bara
konur?
’
Óttastu hann undir einhverjum kringumstæðum? Gagnrýnir
hann þig, vini þína og/eða fjölskyldu? Gerir hann lítið úr þér fyrir
framan aðra? Eyðileggur hann persónulegar eigur þínar af ásettu ráði?
Hrópar/öskrar hann á þig eða börnin? Ógnar hann þér með svipbrigð-
um, hreyfingum eða bendingum?
Af heimasíðu Kvennaathvarfsins
INNLENT
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is