Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.05.2016, Side 30
FYRIR ATVINNUHLAUPARA OG ÁHUGAFÓLK Skokkað í vatni Álagsmeiðsli eru ekki óalgeng í hlaupi og raunar eru marg- ir sjúkraþjálfarar sem vilja að fólk sleppi því hreinlega að skokka og hlaupa; slíkt sé álagið fyrir hné og aðra líkams- parta. Fyrir þá sem vilja samt hlaupa gæti vatnsskokk verið málið sem er nýjasta æðið um víða veröld. Til að geta skokkað í vatni þarf sérstakan flotbúnað; belti, sem hægt er að kaupa til dæmis ódýrt á netinu. Beltinu er smeygt um mittið og svo eru hendur og fætur hreyfð eins og verið sé að skokka en þetta þarf að gera í djúpu lauginni því fæturnir eiga ekki að snerta botn laugarinnar svo að þetta er fremur hægt en virkilega styrkjandi skokk. Vatnsskokk sem þetta nota íþróttamenn sem keppa alla jafna í hlaupi oft þegar hlífa þarf líkamanum og vernda fæt- ur eftir lítilsháttar meiðsli. Flotbeltin gera það að verkum að hægt er að einbeita sér áhyggjulaust að skokktækninni. HEILSA Bresk rannsókn sem Independent fjallar um leiðir í ljós að „ruslfæði“er mun skaðlegra en áður var talið. Auk þess að geta leitt til sykursýki hefur ofneysla á sykri og skyndibitum skaðleg áhrif á nýrun. Ruslfæði skaðlegra en talið var 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.5. 2016 Við ættum öll að leggja okkur yfir daginn, ekki aðeins fólkið í heitu löndunum. Þetta segir einn þekktasti taugasérfræðingur Ástr- alíu, Fiona Kerr, sem hefur sérhæft sig í svefni. Samkvæmt hennar rannsóknum hef- ur stuttur lúr þau áhrif að við erum virkari en lengd lúrsins skiptir þó höfuðmáli. Besti lúrinn er ekki styttri en 15 mínútur en samt ekki lengri en hálftími. Slíkur lúr bætir auk þess minnið, viðbragðshæfni, skerpir hugsunina og léttir lundina. Of langur lúr er ekki góður því þá fer heil- inn að búa sig undir að komast í djúpsvefn og við vöknum alls ekki létt og skörp. Þótt fólki takist ekki að sofna hjálpar það að hafa að minnsta kosti hvílt sig og slakað á en taugasérfræðingurinn segir að það að leggja sig sé eins og að leyfa heilanum að fara í góða sturtu. Breskar rannsóknar renna stoðum undir það að allt sé betra eft- ir blund en 400 miðaldra karlmenn sem lögðu sig í hádeginu voru meðal annars með betri blóðþrýsting en annar rannsóknar- hópur sem vakti samfellt frá morgni til kvölds. Blundur yfir daginn er góður fyrir heilsuna sé hann ekki of langur. Morgunblaðið/Ernir Dagblundur til bóta BETRA MINNI OG LÉTTARI LUND Fjallagrös eru þekkt lækn-ingajurt frá fornu fari víðaum heim og hefur félag á Blönduósi, kennt við grösin, í lið- lega tvo áratugi framleitt úr þeim ýmiss konar heilsuvörur auk áfengra drykkja. Fyrirtækið framleiðir tvenns konar heilsuvörur í dag; annars vegar sjö mismunandi mixtúrur fyrir háls og maga, hins vegar níu gerðir bætiefna í hylkjum. Í þrem- ur þeirra eru nú einnig notuð er- lend hráefni, túrmerik og engifer, í bland við fjallagrösin. Fjallagrös eru tínd víða um land en efnin mulin, unnin og pökkuð í verksmiðju Vilko á Blönduósi. Jakob K. Kristjánsson, doktor í lífefnafræði, er þróunar- og gæða- stjóri fyrirtækisins og situr í stjórn. Hann hefur verið viðloð- andi Íslensk fjallagrös nær alla tíð frá 1993, og átti í raun hugmynd- ina að stofnun þess. Hann var þá starfsmaður Iðntæknistofnunar. Hugmynd eftir Tsjernóbyl Hugmynd að fyrirtækinu kviknaði eftir slysið í Tsjernóbyl-kjarnorkuverinu í Úkraínu 1986, þegar grös um stóran hluta Norður-Evrópu og Síberíu urðu ónothæf vegna meng- unar. „Fyrirtæki í Þýskalandi hafði verið að framleiða ýmsar heilsu- vörur úr fjallagrösum en eftir kjarnorkuslysið leitaði það meðal annars til Íslands að hráefni,“ seg- ir Jakob við Sunnudagsblað Morg- unblaðsins. Erindi barst Viðskiptaráði, sem sendi fyrirspurnir út um land, m.a. á Blönduós, þar sem atvinnuþróunarfélagið á staðnum tók málið fyrir. „Þaðan barst mál- ið til Iðntæknistofnunar og inn á mitt borð.“ Nokkur tonn voru flutt út af fjallagrösum frá Íslandi um tíma, en Jakob segist fljótlega hafa velt því fyrir sér hvort ekki væri hægt að vinna vöru úr þeim verðmætum hér heima í stað þess að flytja út sem hráefni. Þegar Jakob kynnti sér málið komst hann auðvitað að því að fjallagrös höfðu verið rannsökuð heilmikið. „Ég fann yfir 100 vísindagreinar og komst að því að í fjallagrösunum eru efni sem virka rotverjandi, hindra bakt- eríuvöxt, eru mýkjandi fyrir háls og mýkjandi fyrir hægðir og bætta meltingu, allt í samræmi við gamla trú og notkun. Grösin höfðu verið heilmikið notuð við kvefi og til eru gamlar bækur um hvaða kvilla þau ættu að lækna,“ bendir Jakob á. Hann segir fjallagrös finnast um land allt, yfirleitt hátt til fjalla. „Aðalsvæðin eru á heið- um, í 200 metra hæð yfir sjávar- máli og hærra, þótt þau séu líka í litlum mæli nánast alveg niðri við sjávarmál,“ segir Jakob. „Mest er á Vestfjörðum, á hún- vetnsku heiðunum og á Jökuldals- heiðinni, þar sem er mjög mikið. Enda eru fjallagrös ein aðalfæða hreindýra á veturna, allt að helm- ingur. Talið er að hreindýrahjörð- in éti 50 til 100 tonn á ári af fjalla- grösum,“ segir Jakob. Heilmikið er sem sagt til af hinu verðmæta hráefni en þetta er lítill gróður og aðalvandinn, segir Jakob, að ekki er hægt að rækta grösin. „Ég sé að minnsta kosti ekki fyrir mér að það verði nokkurn tíma hægt. Vaxtartíminn er mjög hægur, tal- að er um fimm til sjö ár frá því tínt er á einu svæði þar til vaxið hefur nægilega til að hægt sé að tína aftur. En grösin lifa allan árs- ins hring, birtast undan snjónum og halda áfram að vaxa.“ Fjallagrös eru sérstakt fyrir- bæri. „Þetta er hvorki planta né jurt heldur samlífi þörunga og sveppa; flétta sem vex á steinum og utan á trjáberki, eitt elsta líf- fyrirbæri jarðar. “ Hráefnið gjörnýtt Hráefnið er mjög dýrt því jurt- irnar eru handtíndar og hreins- aðar og geymdar drjúgan tíma fyrir notkun. „Við gerðum okkur grein fyrir því strax að það yrði að nýta hrá- efnið vel og það tókst; fjallagrösin eru til dæmis gjörnýtt,“ segir hann en allar heilsuvörur Ís- lenskra fjallagrasa eru fram- leiddar hjá Vilko á Blönduósi. Sér- stakt fyrirtæki, Náttúrusmiðjan, sér um tínslu og hrávöruvinnslu fjallagrasanna. Hann segir að í öllu ferlinu sé þess vandlega gætt að ekkert fari til spillis, enda fjallagrösin verðmætt hráefni. Jakob K. Kristjánsson er þróunar- og gæðastjóri Iceherbs. Lína bætiefna undir merkjum fyrirtækisins er komin út. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðmæti af heiðum ofan Íslenska þjóðin hefur löngum haft trú á mætti fjallagrasa. Fyrirtækið Íslensk fjallagrös framleiðir nú bæði bætiefni og mixtúrur úr fjallagrösum. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Talið er lı́klegt að íslenska þjóðin hafi notað fjallagrös frá landnámi árið 874. Fyrstu heimildir á Íslandi um fjallagrös er að finna í Jónsbók þar sem bannað var að tína grös á landi annarra bænda. FJALLAGRÖS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.