Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 07.01.1999, Page 3

Víkurfréttir - 07.01.1999, Page 3
I < I \A o FArADf/LL SAMKAUP IMíu tilboð bárust í fjölnota íþróttahús Níu tilboð frá tveimur dótturfyrirtækjum íslenskra aðalverkta- ka, Verkafli hf. og Ármannsfelli hf., bárust í fjármögnun, bvggingu og rekstur fjölnota íþróttahúss í Reykjanesbæ en tilboðin voru opnuð sl. mánudag. Ekkert tilboð barst frá Keflavíkurverktökum en þeim var einnig boðið að taka þátt í útboðinu. Tilboðin níu eru margvísleg og býður Verkafl fram fjögur þeirra. í aðaltilboðinu býður það húsið til leigu næstu sjö árin á tæpar 52 milljónir króna á ári en jafnframt greiði bærinn 37 milljónir vegna kaupa á því árlega. I einu frávikstilboðinu býðst leiga upp á 7.7 milljónir á mánuði í 7 ár og greiðslur fyrir kaupin á ári 100 þús. krónur. í hinum tveimur bjóðast þeir til að byggja húsið annars vegar fyrir 328 milljónir og hinsve- gar fyrir 367 milijónir, allt eftir útfærslum. Húsið sem Verkafl býðst til að byggja er eftir danskri fyrirmynd. I aðaltilboði Ármannsfells býðst bænum að leigja húsið næstu sjö árin á 39 milljónir á ári og greiðslur fyrir kaup verði tæpar 44 milljónir árlega. í einu frávikstilboði þeirra býðst leiga á 29 milljónir í sjö ár og kaupin greiðist á 15 árum og verði 29 milljónir árlega. Hin þrjú frávikstilboðin hljóða upp á byggingu hússins í mismu- nandi útfærslum og eru frá 298 milljónum upp í 374 milljónir króna en öll þessi tilboð byggjast á húsi frá finnsku fyrirtæki. Dómnefnd hefur því úr vöndu að ráða þessa dagana en í lienni sitja Skúli Skúlason, Þorsteinn Erlingsson og Kristmundur Ásmundsson. Vildu þeir ekkert tjá sig um tilboðin að svo stöddu enda mikil vinna í því að fara yfir þau og munu niðurstöður þeirra liggja fyrir á næstunni. Jón Jóhannsson forstödumadur íþróttamannvirkja í Reykjanesbæ virdir fyrir sér eina af hugmyndunum sem bæjaryfirvöldum hefur nú borist tilbod í að byggja á Nikkelsvædinu. VF-tölvumynd: pket 771 ÍGÍgu 400 fermetra idnaðarhúsnæði laust strax. Upplýsingar í síma 893 2690. Atvinna Vanan háseta vantar á 200 tonna netabát. Upplýsingar í síma 852 0328 eöa 421 1920 Víkurfréttir 3

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.