Víkurfréttir - 14.01.1999, Page 17
Aðstaöa
fyrir félags-
miðstöð
Verkfræðiskrifstofa Suður-
nesja hefur að beiðni
bæjarstjómar Sandgerðis-
bæjar skoðað húsnæði á
þremur stöðum sem liugs-
anlega væri hægt að lag-
færa og gera aðstöðu fyrir
félagsaðstöðu. Gerð var
áætlun yfir kostnað við
lagfæringar á þremur
stöðum og er hann áætlað-
ur á Strandgötu 18, 12,4
milljónir, á Tjamargötu 6,
6,3 milljónir, og 4,2
milljónir á Strandgötu 11 a.
Bæjarráði Sandgerðis-
bæjar barst einnig bréf frá
aðalstjóm Reynis þar sem
boðinn var þjónustusamn-
ingur um samnýtingu
Reynishússins að Staf-
nesvegi 7 fyrir félags-
miðstöðina. Var tillög-
unum vísað til íþrótta- og
tómstundaráðs en tóm-
stundafulltrúi mun taka
upp viðræður við stjórn
Reynis varðandi þeirra
boð.
Starfsmaður
í tölvudeild
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
óskar að ráða starfsmarm með
þekkingu og reynslu í eftirfarandi:
* Mjög góða þekkingu á TCP/IP,
og Ethernet
* Uppsetningu á Cisco búnaði
(Cisco IOS)
* Eldveggjum (Firewalls) og
öryggismálum tengdum net-
kerfum (Network Security)
* Netumsjónarforritum (t.d.
HP Open View)
* Windows NT netkerfum
Umsækjandur þurfa að hafa góða
samstarfshæfileika, geta unnið
sjálfstætt og hafa gott vald
á enskri tungu.
Umsóknum skal skila á ensku,
til Varnarmálaskrifstofu
Utanríkisráðuneytisins,
ráðningadeild, Brekkustíg 39,
260 Reykjanesbæ, sími 421 1973,
í síðasta lagi 18. janúar n.k.
Matvöruverslun Varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli
óskar að ráða lærðan kjötiðnaðar-
mann til starfa.
Góð enskukunnátta nauðsynleg.
Starfið er tímabundið í 1 ár
með möguleika á
áframhaldandi ráðningu.
Umsóknir berist til Varnar-
málaskrifstofu Utanríkisráðuneytis,
ráðningadeild, Brekkustíg 39,
260 Reykjanesbæ, sími 421 1973
í síðasta lagi 18. janúar n.k.
Kjötiðnaðar-
maður
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
Víkurfréttir
17