Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 11.02.1999, Síða 15

Víkurfréttir - 11.02.1999, Síða 15
■ Unglingar í Grindavík halda til í hraðbanka Sparisjóðsins: Skemmdir og slæm umgengni , J>etta er oft skrautlegt útlitið í hraðbankanum á laugardags- morgnum enda ekki við öðru að búast þegar safnast saman tugir ungmenna og dvelja þar tímun- um saman“, sagði Elín Aspelund, útibússtjóri Spari- sjóðsins í Grindavík vegna ónæðis af völdum unglinga í hraðabankanum um helgar en hann er staðsettur í anddyri verslunarmiðstöðvarinnar við Víkurbraut. Umgengni í hraðbankanum hef- ur verið mjög slæm eftir helg- amar og skemmdir oft unnar. Seint sl. haust vann ungur piltur miklar skemmdir á hraðbankan- um og var hann kærður vegna atviksins en upp um hann komst með hjálp upptöku- myndavélar sem staðsett er í hraðbankanum. „Krakkarnir koma mikið hingað og dvelja hér í hraðbanknum. Þeir hafa fiktað með eld og svo er um- gengnin slæm. Verslunareig- endur hér í miðstöðinni segja að útlitið sé mjög slæmt oft á tíð- um þegar þeir opna á laugar- dagsmorgun", sagði Elín. Krakkamir komast inn í hrað- bankanum með kortum sem mörg þeirra em með. Að sögn Elínar hefur komið til tals að loka hraðbankanum vegna þessa ástands en ekki hefur ver- ið tekin ákvörðun um það enda er vonast til að ástandið lagist. „Þetta er náttúrlega engan veg- inn nógu gott. Fólk sem vill nota þessa þjónustu veigrar sér við að fara þama inn þegar tíu til fimmtán krakkar eru fyrir innan", sagði Eli'n. Vandræði vegna skemmdar- verka unglinga í Grindavík hafa verið á fleiri stöðum, m.a. í and- dyri Verkalýðshússins við sömu götu. Þar hafa rúðbrot verið mjög tíð. Aö sögn lögreglunnar í Grindavík hefur ástandið þó verið betra undanfamar vikur. Tónlistarskólinn i Keflavík Léttsveit Tónlistarskólans ÍKeflavík heldur tónleika Öskudaginn, miövikudaginn 17. febrúarkl. 20 í Frumleikhúsinu vA/esturbraut Fjölbreytt efnisskrá. Aögangur ókeypis. Samvinnuferðir - Landsýn Víkurbraut 62, Grindavík. Opið sunnudaginn 14. febrúarfrá 14-16. Kynning á sumarbæklingnum EJTJB Ferðaþjónustu- fyrirtæki og handverksfóik ▼ á Suðurnesjum Fundur vegna sýningarinnar í Laugardalshöll 22. til 25. apríl n.k. verður haldinn á skrifstofu MOA í Kjarna, Hafnargötu 57 Keflavík, Reykjanesbæ mánudaginn 15. febrúar kl 20:00. Þeirsem áhuga hafa á að taka þátt í sameginlegu sýningarsvæði Suðurnesjamanna eru hvattir til að mæta. MOA. Markaðs- og atvinnu- málaskrifstofa Reykjanesbæjar Ferðamálafulltrúi. Húsfélagið Sambýli óskar eftir tilboðum í verkið „Sólvallagata 38- 40 og Faxabraut 25-27, - endurnýjun og viðgerðir utanhúss". Verkið felst í því að skipta um hluta af gluggum í húsinu og glerja, háþrýstiþvo alla veggi utanhúss, laga múr og steypuskemmdir, steina veggi og mála. Einnig skal byggja nýjar svalir og stiga út í garð. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 1999. Utboðsgögn verða seld á Verkfræðistofu Suðurnesja ehf. Hafnargötu 58, 230 Keflavík, á kr. 2000.- frá og með mánu- deginum 15. febrúar n.k. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 9. mars 1999, kl. 71. Stjórn félagsins Reykjanesbær Breytingar á umferö I samræmi við staðfest aðalskipulag og að fengnu samþykki Sýslumannsins í Keflavík, hafa eftirfarandi breytingar á umferð í Reykjanesbæ verið ákveðnar. 1) Bráðabirgðatengingu Heiðarholts við Hringbraut verður lokað. 2) Heiðarberg verður tengt við Hringbraut og umferð um Hringbraut hefur forgang, stöðvunarskylda, gagnvart umferð um Heiðarberg. Breyting þessi tekur gildi föstudaginn 19. febrúar 1999 kl. 08.00. Víkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.