Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 11.02.1999, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 11.02.1999, Blaðsíða 19
FREYR SVE 1 ilSSON YNGRI FLOKKA ÞJÁLFARI ÁRSINS 199 ■ Frey Sverrisson, knatt- spyrnuþjálfara yngri flokka Njarðvíkinga, er óþarft að kynna fyrir Suð- urnesjamönnum. Hann hefur verið tengdur íþróttum frá barnsaldri, keppt í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik og þjálfað hin ýmsu lið og aldurs- fiokka frá unga aldri. Ný- lega var hann kjörinn „yngri flokka þjálfari árs- ins 1998” af Knattspyrnu- þjálfarafélagi íslands en þetta er í annað sinn sem félagið stendur fyrir slíku vali. Jóhannes Krist- björnsson tók Frey tali í tilefni útnefningarinnar. Langur þjálfaraferill „Eg byrjaði að þjálfa hjá K.F.K í kringum 1980, þá sautján ára gantall. Þjálfaði ég jöfnum höndum yngri flokka stúlkna sem stráka í knattspymu og handbolta hjá Keflavík milli 1980 og 1990 ásamt því að leika í meistara- flokki með Keflavík, Reyni Sandgerði, Grindavík og Njarðvík. Aðstæður breyttust hjá mér 1991 erég tók að mér þjálfun meistaraflokks Hattar á Egilsstöðum en þar var ég einnig 1992. Að þessum tíma loknum tók ég ákvörðun að hætta að leika sjálfur og sum- arið 1993 var ég liðstjóri meistaraflokks Keflavíkur ásamt því að þjálfa 2. flokk félagsins. 1994 þjálfaði ég meistarflokk Njarðvíkur og tók sama ár að mér alla þjálfun yngri flokka félagsins og er þar enn. Þetta er orðinn langur ferill og er ég nú að upplifa það að þjálfa börn þeirra sem ég þjálfaði áður.” Hver var staða knattspyrn- unnar íNjarðvík þá? „Þegar ég tók við héldu Njarðvíkingar úti tveimur flokkum, 6. og 7. flokki, en í þeim voru u.þ.b. 30 piltar auk þess sem teflt var fram ein- hverri sundrungu í öðrum flokkum. Á starfstíma mínum Lífsstarfiö hér í Njarðvík hef ég átt afar gott samstarf við stjóm deild- arinnar, formann hennar sér- staklega, og foreldra. í raun er knattspymudeild samansett af þjálfara, stjóm deildar og foreldrum barnanna sem knattspymuna stunda. Árang- ur þessarar samvinnu er að í dag sendir Njarðvík lið til keppni í Islandsmóti í öllum yngri flokkum og tökum við þátt í öllum helstu mótum sem í boði eru. Að auki er farið erlendis með 4. flokk annað hvert ár. Nú em elstu piltarnir sem ég tók við að stíga fyrstu skrefin í meistara- flokki félagsins.” Hefur lokið öllum þjálfara- stigum Knattspyrnusam- bandsins? Ertu sjálftnenntaður eða þarf einhverja formlega menntun til að gerast þjálfari? „Það geta allir orðið sjálf- menntaðir þjálfarar með áhugann einn að vopni en ég hef lokið A, B, C, D og E-stigi þjálfaramenntunar Knatt- spymusambands Islands. E- stiginu, sem telst lokastig K.S.Í, lauk ég f Þýskalandi 1995 og gerði lokaverkefni um fæði fþróttamanna í sam- vinnu við Helga Arnarsson þáverandi þjálfara meistara- flokks Njarðvíkur.” Hverjar eru áherslur þjálfar- ans Freys Sverrissonar? „Viðhorf og áherslur hafa breyst með tímanum. Bama- og ungmennaþjálfun er upp- Jilýtur að koma að því að Keflavík og Njarðvík Itefji raunverulegt, mark- visst samstarfí knatt- spymumálum sem báðir aðilar hafa ávinning af... byggingar- og forvarnarstarf og heilbrigði, agi og kurteisi jafn mikilvæg í boltanum. Knattspymuþjálfunin sjálf er orðin miklu tæknilegri og markvissari en þegar ég hóf störf og þátttaka foreldra í framfaraferlinu hefur jafn- ffamt aukist mikið.” Einn sígarettupakki á viku Nú heyrir maður oft hávœrar kvartanir foreldra vegna mik- ils kostnaðar vegna íþrótta- iðkunnar harnanna, hvert er þitt sjónarhorn á œfingagjöld- in? „Eg get náttúrulega aðeins skoðað málið út frá eigin for- sendum. Hjá Knattspyrnu- deild Njarðvíkur em æftnga- gjöld 14 ára og yngri kr. 15.500 á ári. Fyrir þetta em börnin að fá u.þ.b. 140-150 klst. á ári í æfingatímum sem jafngildir vinnu í u.þ.b.18 vik- ur frá kl. 08-17. Þá er ekki taldir þeir tímar sem fara í æf- ingaleiki eða mót. Þetta gerir ca. kr. 300 á viku en það er minna en einn sígarettupakki á viku eða ein bjórkippa á mánuði. Við vitum að lífið er ekki bara knattspyma og hef ég haldið opið hús, bingó, far- ið í hjólreiða-, veiði- og eggja- týnsluferðir með bömunum.” Breytingar á nýrri öld Bæjaryftrvöld verða að skoða málefni íþróttadeildanna varð- andi einsetningu skólana. Knattspymudeild Njarðvíkur tók upp morgunæftngar fyrir þremur ámm og nú eru 60% æfinga okkar fyrir kl. 16:00 á virkum dögum. Einsetningin kemur því til með að hafa mikil áhrif á skipulag æftnga. Þá hlýtur að koma að því að Keflavík og Njarðvík hefji raunvemlegt, markvisst sam- starf í knattspymumálum sem báðir aðilar hafa ávinning af. Þá velti ég því fyrir mér hvenær bæjaryfirvöld stíga skreftð til fulls og greiða laun yngri flokka þjálfara. Það myndi lækka æfingagjöld og skila sér auknum fjölda iðk- enda. Stöðuleiki í þjálfara- málurn er nauðsynlegur og mikilvægt að hafa jtjálfara í fullu starfi. Þjálfari sem þekk- ir vel til heimilisaðstæðna og fleiri þátta er verðmætari en einhver sem stekkur inn í starfið rétt yfir sumartímann.” Alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast Sérðu sjálfan þig eftir 20 ár enn að þjálfa hörn Reykjanes- neshœinga í knattspyrnu? „Já, alveg eins. Þetta er lífs- starf mitt í dag en ég er ekki eilífðarráðinn hjá Njarðvík. Mér hafa borist tilboð um stöif annars staðar en reynslan segir mér að grasið sé ekkert nauðsynlega grænna hinum megin. Að umgangast böm á hverjum degi er bæði þrosk- andi og skemmtilegt og alltaf eitthvað skemmtilegt að ger- ast. Fyrir u.þ.b. 5 ámm síðan var ég t.a.m. með byrjenda- hóp (5-6 ára) að keppa gegn Reynismönnum og lentum við undir í hálfleik 0-2. í hálf- leik heyrði ég guttana tala um að þetta væri bara eðlilegt, Reynismenn væru með miklu betri þjálfara. Einu sinni var ég með 4. flokk að leika gegn Hellissandi sem voru með bæði stráka og stelpur í liðinu. Þá komumst við í 3-0 í fyrri hálfleik en hægri kantmaður- inn hjá mér hafði leikið gegn stúlku í bakvarðastöðunni hjá Hellissandsbúum og hreinlega ekkert sýnt af viti svo ég gekk á hann í hálfleik og spurði hvað væri eiginlega að. Pilt- urinn horfði stóreygur á mig og útskýrði svo vandamálið fyrir mér „Hún er bara svo sæt” sagði hann og þar við sat. Eg átti engin ráð sem dugðu gegn slíkri vöm” sagði Freyr Sverrisson að lokum. Langbest ásamótin í snóker: Jón Oli efstur Sigurvegarar í flokkamótinu. F.v. Karl Hólm, Jón Örvar Arason, Börkur Birgisson og Ingimundur Magnússon. Jón Ólafur Jónsson er efstur í Langbest-ásamótunum en tíu mótum er lokið Ármann Vals- son sigraði í tíunda mótinu. Staðan í stigakeppninni er þessi: 1. JónÓlafur Jónsson 510 2. Þormar Viggósson 360 3. Guðmundur Stefáns 350 4. Ingimundur Magnús 300 Flokkamótinu lauk sl. laugar- dag. í 3. flokki vann Karl Hólm en hann lagði Örvar Fanngeirsson í úrslitum 3:1. í 2. flokki vann Ingimundur Magnússon en hann sigraði Ingvar Bjarnason í úrslitum 4:3 eftir harða keppni. Jón Örvar Arason var bestur í 1. flokki eftir að hafa unnið í úr- slitaviðureign Jón Ólafur Jónsson 5:2. Það var svo eng- inn annar en Börkur Birgisson sem var bestur í meistara- flokki en hann vann Heiðar Reynisson 5:2 f úrslitum. Næsta snókermót er Tölvu- skólamótið og hefst það á laugardaginn. V íkuifréttir 19

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.