Víkurfréttir - 11.02.1999, Síða 19
FREYR SVE 1 ilSSON YNGRI FLOKKA ÞJÁLFARI ÁRSINS 199 ■
Frey Sverrisson, knatt-
spyrnuþjálfara yngri
flokka Njarðvíkinga, er
óþarft að kynna fyrir Suð-
urnesjamönnum. Hann
hefur verið tengdur
íþróttum frá barnsaldri,
keppt í knattspyrnu,
handknattleik og
körfuknattleik og þjálfað
hin ýmsu lið og aldurs-
fiokka frá unga aldri. Ný-
lega var hann kjörinn
„yngri flokka þjálfari árs-
ins 1998” af Knattspyrnu-
þjálfarafélagi íslands en
þetta er í annað sinn sem
félagið stendur fyrir slíku
vali. Jóhannes Krist-
björnsson tók Frey tali í
tilefni útnefningarinnar.
Langur þjálfaraferill
„Eg byrjaði að þjálfa hjá
K.F.K í kringum 1980, þá
sautján ára gantall. Þjálfaði
ég jöfnum höndum yngri
flokka stúlkna sem stráka í
knattspymu og handbolta hjá
Keflavík milli 1980 og 1990
ásamt því að leika í meistara-
flokki með Keflavík, Reyni
Sandgerði, Grindavík og
Njarðvík. Aðstæður breyttust
hjá mér 1991 erég tók að mér
þjálfun meistaraflokks Hattar
á Egilsstöðum en þar var ég
einnig 1992. Að þessum tíma
loknum tók ég ákvörðun að
hætta að leika sjálfur og sum-
arið 1993 var ég liðstjóri
meistaraflokks Keflavíkur
ásamt því að þjálfa 2. flokk
félagsins.
1994 þjálfaði ég meistarflokk
Njarðvíkur og tók sama ár að
mér alla þjálfun yngri flokka
félagsins og er þar enn. Þetta
er orðinn langur ferill og er ég
nú að upplifa það að þjálfa
börn þeirra sem ég þjálfaði
áður.”
Hver var staða knattspyrn-
unnar íNjarðvík þá?
„Þegar ég tók við héldu
Njarðvíkingar úti tveimur
flokkum, 6. og 7. flokki, en í
þeim voru u.þ.b. 30 piltar auk
þess sem teflt var fram ein-
hverri sundrungu í öðrum
flokkum. Á starfstíma mínum
Lífsstarfiö
hér í Njarðvík hef ég átt afar
gott samstarf við stjóm deild-
arinnar, formann hennar sér-
staklega, og foreldra. í raun
er knattspymudeild samansett
af þjálfara, stjóm deildar og
foreldrum barnanna sem
knattspymuna stunda. Árang-
ur þessarar samvinnu er að í
dag sendir Njarðvík lið til
keppni í Islandsmóti í öllum
yngri flokkum og tökum við
þátt í öllum helstu mótum
sem í boði eru. Að auki er
farið erlendis með 4. flokk
annað hvert ár. Nú em elstu
piltarnir sem ég tók við að
stíga fyrstu skrefin í meistara-
flokki félagsins.”
Hefur lokið öllum þjálfara-
stigum Knattspyrnusam-
bandsins?
Ertu sjálftnenntaður eða þarf
einhverja formlega menntun
til að gerast þjálfari?
„Það geta allir orðið sjálf-
menntaðir þjálfarar með
áhugann einn að vopni en ég
hef lokið A, B, C, D og E-stigi
þjálfaramenntunar Knatt-
spymusambands Islands. E-
stiginu, sem telst lokastig
K.S.Í, lauk ég f Þýskalandi
1995 og gerði lokaverkefni
um fæði fþróttamanna í sam-
vinnu við Helga Arnarsson
þáverandi þjálfara meistara-
flokks Njarðvíkur.”
Hverjar eru áherslur þjálfar-
ans Freys Sverrissonar?
„Viðhorf og áherslur hafa
breyst með tímanum. Bama-
og ungmennaþjálfun er upp-
Jilýtur að koma að því
að Keflavík og Njarðvík
Itefji raunverulegt, mark-
visst samstarfí knatt-
spymumálum sem báðir
aðilar hafa ávinning af...
byggingar- og forvarnarstarf
og heilbrigði, agi og kurteisi
jafn mikilvæg í boltanum.
Knattspymuþjálfunin sjálf er
orðin miklu tæknilegri og
markvissari en þegar ég hóf
störf og þátttaka foreldra í
framfaraferlinu hefur jafn-
ffamt aukist mikið.”
Einn sígarettupakki á viku
Nú heyrir maður oft hávœrar
kvartanir foreldra vegna mik-
ils kostnaðar vegna íþrótta-
iðkunnar harnanna, hvert er
þitt sjónarhorn á œfingagjöld-
in?
„Eg get náttúrulega aðeins
skoðað málið út frá eigin for-
sendum. Hjá Knattspyrnu-
deild Njarðvíkur em æftnga-
gjöld 14 ára og yngri kr.
15.500 á ári. Fyrir þetta em
börnin að fá u.þ.b. 140-150
klst. á ári í æfingatímum sem
jafngildir vinnu í u.þ.b.18 vik-
ur frá kl. 08-17. Þá er ekki
taldir þeir tímar sem fara í æf-
ingaleiki eða mót. Þetta gerir
ca. kr. 300 á viku en það er
minna en einn sígarettupakki
á viku eða ein bjórkippa á
mánuði. Við vitum að lífið er
ekki bara knattspyma og hef
ég haldið opið hús, bingó, far-
ið í hjólreiða-, veiði- og eggja-
týnsluferðir með bömunum.”
Breytingar á nýrri öld
Bæjaryftrvöld verða að skoða
málefni íþróttadeildanna varð-
andi einsetningu skólana.
Knattspymudeild Njarðvíkur
tók upp morgunæftngar fyrir
þremur ámm og nú eru 60%
æfinga okkar fyrir kl. 16:00 á
virkum dögum. Einsetningin
kemur því til með að hafa
mikil áhrif á skipulag æftnga.
Þá hlýtur að koma að því að
Keflavík og Njarðvík hefji
raunvemlegt, markvisst sam-
starf í knattspymumálum sem
báðir aðilar hafa ávinning af.
Þá velti ég því fyrir mér
hvenær bæjaryfirvöld stíga
skreftð til fulls og greiða laun
yngri flokka þjálfara. Það
myndi lækka æfingagjöld og
skila sér auknum fjölda iðk-
enda. Stöðuleiki í þjálfara-
málurn er nauðsynlegur og
mikilvægt að hafa jtjálfara í
fullu starfi. Þjálfari sem þekk-
ir vel til heimilisaðstæðna og
fleiri þátta er verðmætari en
einhver sem stekkur inn í
starfið rétt yfir sumartímann.”
Alltaf eitthvað
skemmtilegt að gerast
Sérðu sjálfan þig eftir 20 ár
enn að þjálfa hörn Reykjanes-
neshœinga í knattspyrnu?
„Já, alveg eins. Þetta er lífs-
starf mitt í dag en ég er ekki
eilífðarráðinn hjá Njarðvík.
Mér hafa borist tilboð um
stöif annars staðar en reynslan
segir mér að grasið sé ekkert
nauðsynlega grænna hinum
megin. Að umgangast böm á
hverjum degi er bæði þrosk-
andi og skemmtilegt og alltaf
eitthvað skemmtilegt að ger-
ast. Fyrir u.þ.b. 5 ámm síðan
var ég t.a.m. með byrjenda-
hóp (5-6 ára) að keppa gegn
Reynismönnum og lentum
við undir í hálfleik 0-2. í hálf-
leik heyrði ég guttana tala um
að þetta væri bara eðlilegt,
Reynismenn væru með miklu
betri þjálfara. Einu sinni var
ég með 4. flokk að leika gegn
Hellissandi sem voru með
bæði stráka og stelpur í liðinu.
Þá komumst við í 3-0 í fyrri
hálfleik en hægri kantmaður-
inn hjá mér hafði leikið gegn
stúlku í bakvarðastöðunni hjá
Hellissandsbúum og hreinlega
ekkert sýnt af viti svo ég gekk
á hann í hálfleik og spurði
hvað væri eiginlega að. Pilt-
urinn horfði stóreygur á mig
og útskýrði svo vandamálið
fyrir mér „Hún er bara svo
sæt” sagði hann og þar við
sat. Eg átti engin ráð sem
dugðu gegn slíkri vöm” sagði
Freyr Sverrisson að lokum.
Langbest ásamótin í snóker:
Jón Oli efstur
Sigurvegarar í flokkamótinu. F.v. Karl Hólm, Jón Örvar Arason,
Börkur Birgisson og Ingimundur Magnússon.
Jón Ólafur Jónsson er efstur í
Langbest-ásamótunum en tíu
mótum er lokið Ármann Vals-
son sigraði í tíunda mótinu.
Staðan í stigakeppninni er
þessi:
1. JónÓlafur Jónsson 510
2. Þormar Viggósson 360
3. Guðmundur Stefáns 350
4. Ingimundur Magnús 300
Flokkamótinu lauk sl. laugar-
dag. í 3. flokki vann Karl
Hólm en hann lagði Örvar
Fanngeirsson í úrslitum 3:1. í
2. flokki vann Ingimundur
Magnússon en hann sigraði
Ingvar Bjarnason í úrslitum
4:3 eftir harða keppni. Jón
Örvar Arason var bestur í 1.
flokki eftir að hafa unnið í úr-
slitaviðureign Jón Ólafur
Jónsson 5:2. Það var svo eng-
inn annar en Börkur Birgisson
sem var bestur í meistara-
flokki en hann vann Heiðar
Reynisson 5:2 f úrslitum.
Næsta snókermót er Tölvu-
skólamótið og hefst það á
laugardaginn.
V íkuifréttir
19