Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 18.03.1999, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 18.03.1999, Blaðsíða 18
NÁMSKEIÐ I BOÐl NÁMSTÆKNI OG ÁRANGURSRÍK SAMSKIPTI LENGD: 4 VIKUR OG HEFST 29. MARS TÍMl: MÁNUDAGSKVÖLD KL. 1 9:00 - 21:00 VEREC Kr. 7.000,- ISLENSKA FYRIR UTLENDINGA II LENGD: 2 KVÖLD í VIKU í 6 VIKUR OG HEFST Þ RIÐIUDAGINN 29. MARS KL. 19:00 - 21:00 TÍMi: Þ RIÐJUDAGS- OG FIMMTUDAGSKVÖLD. VERB KR. 6.000,- ISLENSKA FYRIR UTLENDINGA III LENGD: 2 KVÖLD í VIKU í 6 VIKUR OG HEFST MIEVIKUDAGINN 30. MARS KL. 1 9:00 - 2 1:00 TÍMI: MÁNUDAGS- OG MIO/IKUDAGSKVÖLD. VERB KR. 6.000,- Fjarkennslunamskeið • MAT Á VERÐVIÆTI FYRIRTÆKJA, 24. MARS. • AELÖGUN hefðbundinnar kennslu aðnýrri tækni, 12., 19. OG 26. APRÍLOG 3. OG 10. MAÍ • ATM GAGNANETIÐFYRIR KRÖFUR FRAMTÍÐAR, 12. OG 13. APRÍL Á NÆSTUNNl! • ÁFENGIS- OG VÍMUEFNAVANDAMÁL • SAMSKIPTI, SALA OG Þ JÓNUSTA • Gæðastjórnun - Gæðastaðlar Skráning og nánari upplýsingar í SÍMA 421-7500 MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM WWW.MSS.IS AFARKOSTIR Sunnudaginn 14. mars. var því miður und- irritaður samn- ingur um bygg- ingu og leigu á fjölnota íþrótta- húsi að viðstöddum ýmsum nt. a. nokkrum fulltrúum frá Islenskum aðalverktökum og Landsbanka íslands og ung- um knattspymumönnum, full- trúum þeirra sem koma til með að þurfa að borga brús- ann. Vissulega er full ástæða til að óska Islenskum aðal- verktökum og Landsbankan- um til hamingju með þessa undirritun því frá þeirra sjón- arhomi séð er þetta verulega hagstæður samningur. Því er þó öðru vísi farið ef litið er á samninginn frá sjónarhorni okkar bæjarbúa. Sú leið sem farin er sam- kvæmt þeim samningi sem undirritaður var er bænum óhagstæður sem nemur um kr. 640 miljónum á samningstím- anum, umfram það sem þyrfti að vera og umfram það sem íþróttahreyfingin fær. Það felst í því að ef tekið væri lán með 5% vöxtum og húsið greitt greiddist lánið upp á 25 árum og við ættum húsið sem er að verðgildi 371 miljón. Þessi samningur felur það hins vegar í sér að bærinn greiði sömu uppliæð 27 ntilj- ónir á ári í 10 ár til viðbótar sem er þá 270 miljónir og við eigum ekkert í húsinu. Þessar 270 miljónir og verðgildi hússins 371 miljón gera sam- anlagt 641 miljón sem bærinn tapar með því að fara þessa leið. Afarkostir. Það er því ljóst að með þessu eru fulltrúar meirihlutans að skrifa undir afarkosti. Afar- kosti sem þeir standa frammi fyrir vegna þess að þeir, sér- staklega þó einn þeirra Jónína A Sanders talaði óvarlega fyr- ir kosningar. Hún sagði m. a. á fundi í Flug-hóteli um íþróttamál að það væri ekkert ef, húsið yrði byggt. Þá strax var hún vöruð við slíkum yfir- lýsingum þar sem þær gætu skert samningsmöguleika bæjarins. Enginn ábyrgur stjórnandi segir „ég ætla að kaupa“ bíl, íþróttahús eða eitt- hvað annað án þess að tengja það um leið því verði sem greiða þarf fyrir hlutinn. Það var þó gert og því stöndum við nú frammi fyrir því að verktakar hafa getað stillt meirihlutanum upp við vegg og hann neyðst til að skrifa undir afarkosti. Afarkosti sem kosta bæinn u.þ.b. 640 milj- ónum meira en íþróttahreyf- ingin mun fá. Já, það má því segja að meirihlutinn og þó einkum Jónína A Sanders sé bænum og bæjarbúum dýr. Þeim sem vilja skoða samn- inginn er bent á WWW.centr- um.isVkristmund Jóhann Geirdal bæjarfulltr. Þó nokkuð af efni komst ekki inn á síður Víkur- frétta sökum plássleysis þar sem mikið afaug- lýsingum barst til birt- ingar í þessari viku. Þrátt fyrir að blaðið hafi verið stækkað í 32 síður er nokkuð af efni sem enn bíður birtingar. Greinar og annað tíma- bundið efni er á netút- gáfu Víkurfrétta, www.vf.is sent kemur á internetið í dag. I_____________________________I Allsherjar- atkvæðagreiðsla Á stjórnarfundi Múrarafélags Suðurnesja þann 4. mars s.l. var ákveðið að láta fara fram allsherjar- atkvæðagreiðslu vegna fyrirhugaðar sameiningu Múrarafélags Suðurnesja og Múrarafélags Reykjavíkur og fer hún fram dagana 27. og 28. mars í húsi félagsins að Tjarnargötu 3 og hefst hún kl. 9 til kl. 78 báða dagana. Athugið að þeir einir hafa atkvæðisrétt sem voru skuldlausir við félagið um áramót. Nánari upplýsingar í síma 897 8374. Stjórnin Menningar miðstöð Tómstunda- og íþrót- taráð Reykjanesbæjar hefur lagt til við bæjar- stjórn að í stað núver- andi félagsmiðstöðva ungl- inga, verði ein félagsmiðstöð rekin á vegum bæjarins. Nú þegar verði hafinn undir- búningur að því að finna húsnæði undir slíka félags- miðstöð sem yrði tilbúin 1. september 1999. Ráðið telur og félags- í bígerð að þetta sé besti kosturinn og þá vrði einnig hægt að bjóða upp á félagslíf fyrir eldri unglinga, t.d. á aldr- inuin frá 16-18 ára. Bæjarstjóm vísaði þessu máli til bæjarráðs og minnihlutinn kom með innlegg í þessa tillögu og óskaði eftir að þetta gæti einnig orðið menningar- miðstöð sem og félagsmið- stöð. Aðalfundur Hér með er boðað til 40. aðalfundar Stangveiðifélags Keflavíkur. Fundurinn verdur haldinn í hús- næði félagsins, að Hafnargötu 75, efri hæð, fimmtudaginn 25. mars 1999 og hefst hann kl. 20 stundvíslega. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar eru í fundarhléi. Féiagar mætið og sýnum styrk félags okkar. Stjórnin. Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.