Víkurfréttir - 18.03.1999, Síða 29
Mikil aukning umsvifa einkenndi rekstur Landsbankans á Suðumesjum á síðasta ári
Sterk uppbygging Lanús-
bankans é Suðurnesjum
Rekstur útibúanna á
Suðurnesjum var farsæll
síðasta ár
Rekstur útibúanna á Suð-
urnesjum gekk mjög vel á
sfðasta ári og eru megin-
skýringamar á því gott efna-
hagsástand og aukni.ig í
umsvifum bankans. Um
síðustu áramót voru starfs-
menn hjá Landsbankanum á
Suðurnesjum 50 talsins og
þjónuðu þeir 42 stöðugildum,
launagreiðslur þessara starfs-
manna námu urn 122 millj-
ónum króna.
Nvjungar í
fjármálaþjónustu
„Vörðuklúbburinn er okkar
flaggskip stolt okkar í í ein-
staklingsþjónustunni, en sú
lánaþjónusta sem þar er veitt,
byggir á nýju hugarfari
bankans og til viðskiptavinar-
ins, þar sem fyrst og fremst er
horft litið til viðskiptareynslu,
greiðslugetu og fjárhagsstöðu
lántakans í stað þess að ein-
blína á ábyrgðarmenn". segir
Viðar.
„Mikil aukning hefur orðið á
notkun Einkabanka Lands-
bankans á intemetinu síðustu
misseri og skipta notendur
lians hundruðum á Suður-
nesjum. Þá hefur möguleikinn
á viðbótarlífeyrissparnaði
vakið verðskuldaða athygli
hér á svæðinu. Fulltrúar
Viðar Þorkelsson
er svæðisstjóri
Landsbanka Islands
á Suðurnesjum.
bankans hafa farið á vinnus-
taði og kynnt þá möguleika
sem f boði eru og fólk tekið |
þeirri fræðslu vel. Utibú
Landsbankans á Suðumesjum
hafa staðið sig sérstaklega vel
í samanburði við önnur útibú
bankans í sölu á lífeyrisspam-
aði. Þá hefur jafnframt
Landsbankinn, fyrstur banka,
tengt saman fjármögnun,
tryggingar og ávöxtun fjár í
eina heild með tilkomu
Heimilislánanna. Þrátt fyrir
allar nýjungamar leggjum við
enn sem fyrr megináherslu á
góða persónulega þjónustu
við okkar viðskiptavini."
Markvisst hefur verið unnið
að því að st.vrkja Lands-
bankann á Suðurnesjum
„Landsbankinn hefur unnið
markvisst að því síðustu mis-
seri að styrkja starfssemi sína
á einstökum viðskiptaskipta-
svæðum og eru Suðurnesin
engin undantekning. Með
ráðningu viðskiptafræðing-
anna Garðars Newnran og
Lindu Óskar Þórmundsdóttur
hefur sérfræðiþekking Lands-
bankans á Suðumesjum verið
stórefld, en þau eru bæði
heimafólk og þekkja vel til
aðstæðna á svæðinu", sagði
Viðar Þorkelsson að lokum.
Ár breytinga hjá
Landsbankanum
Miklar breytingar hafa orðið
hjá Landsbankanum á
skömmum tíma. Bankinn fór
á almennan hlutatjármarkað á
árinu, og voru Suðurnesja-
menn þar virkir þátttakendur
og eignuðust um 500 einstakl-
ingar og fyrirtæki hlut í bank-
anum. Síðan Halldór J. Krist-
jánsson tók við stöðu banka-
stjóra, hefur bankinn verið í
stöðugri sókn, og styrkt stöðu
sína og fmynd til muna.
Mikill vöxtur útlána
og innlána
Að sögn Viðars Þorkelssonar
svæðisstjóra jukust á síðasta
ári útlán Landsbankans á
Suðumesjum um 40% eða um
2.100 milljónir króna og vom
í árslok 6.300 milljónir.
Skýringuna á þessari miklu
Landsbankinn fjarmagnar byggingu fjölnota íþróttahúss í
Reykjanesbæ. Viðar Þorkelsson, svæðisstjóri og Halldór
Kristjánsson, bankastjóri sjást hér á spjalli við bæjarfulltrúana
Þorstein Eriingsson og Skúla Skúlason að undirskrift lokinni.
aukningu er að finna í út-
lánum til sjávarútvegs-
fyrirtækja, en Landsbankinn
hefur um árabil tekið virkan
þátt í uppbyggingu sjávar-
útvegs á Suðurnesjum og
gengt forystuhlutverki í fjár-
mögnun.
Undanfarið hefur bankinn
verið umsvifamikill í lán-
veitingum til bæjar- og sveit-
arfélaga og stofnanna þeirra
og lánað og má þar nefna í
verkefni á sviði skólamála og
hafnargerða. Einnig hefur
bankinn veitt aðstoð við
fjárhagslega endurskipu-
lagningu. Markaðshlutdeild
bankans í útlánum jókst á
síðasta ári úr 35% í 39%.
Á sama hátt varð aukning í
innlánum mikil á síðasta ári,
og nam hún um 34%. Voru
innlánoru í árslok 1998, 5.100
milljónir króna. Markaðs-
hlutdeild bankans jókst um
4% á árinu og var nú í árslok
34%.
... Megin skýringuna
á þessari miklu
aukningu er að finna
í útlánum til sjávar-
útvegsfyrirtækja, en
Landsbankinn hefur
um árabil tekið virk-
an þátt í uppbygg-
ingu sjávarútvegs á
Suðurnesjum og
gengt forystuhlut-
verki í fjármögnun...
WlQSKmZl
catvmnulíf
Víkurfréttir