Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 10.06.1999, Side 15

Víkurfréttir - 10.06.1999, Side 15
Landslióió í knattspyrnu U-21 Knattspyrna Okkar menn skora fyrir 21 árs liðið Landsliðsmenn okkar Suðumesjamanna í 21 árs liði Islendinga í knattspymu, Haukur Ingi Guðnason og Jóhann B. Guðmundsson sáu um að skora mörkin gegn Armenum í 2-0 sigri Islendinga. Haukur Ingi var ekki í byrjunarliðinu en þurfti ekki nema 11 mínút- ur til að setja knöttinn í netið eftir að hafa komið inn á á 75 mínútu í þessum fyrsta sigri 21 árs liðsins í keppninni. Til Moskvu fyrir tíu mínútur Víkurfréttir höfðu tal af Liverpool-Keflvíkingnum Hauki Inga Guðnasyni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar skömmu fyrir brottför 21 árs landsliðsins áleiðis til Moskvu. VF var að vonum ekki ánægt með að Haukur skyldi ekki vera í byrjunarliðinu gegn Armenum og spurði því kappann hvort ekki yrðu gerðar útbætur á í Moskvu. Haukur sagði keppnina um stöður í liðinu harða og að auki væri hann nreiddur á ökkla. Gerði hann því ráð fyrir að fá ekki mikið meira en 10-15 mínútur í leiknum í Moskvu. Neðri deildir og bikarkeppnin Njarövíkingar á sigurbraut Njarðvfldngar lögðu Víking frá Olafsvík sl. fímmtudag og tryg- gðu Finnur Þórðarson (2) og Sævar Eyjólfsson heimamönn- um 3-1 sigur. Njarðvíkingar voru mun sterkara liðið allan leikinn og aldrei spuming um hvort liðið bætti við sig 3 stig- um. Þórarinn skoraði 3 gegn Þrótturum Maðurinn sem tryggði úrvals- deildarliði Grindvíkinga áfram- haldandi veru í efstu deild í síð- asta leik síðustu leiktíðar, Þórai- inn Olafsson, lék með GG gegn Þrótti, Vogum, og skoraði 3 af 6 mörkum heimamanna í 6-2 sigri. Þróttarar sitja nú á botni riðilsins, stigalausir. Leikiö í 3. deildinni I kvöld kl. 20 leika Reynir og GG í Sandgerði og á morgun á sama tíma mæta Þróttarar Njarðvíkingum í Vogunum. Netfang íþrótta! jak(s ivf.is Víðir og Njarðvík í 32 liða úrslit bikarsins Garðbúar lögðu Fylki 23 með sjö mörkum gegn einu og Njarðvíkingar Víkinga frá Olafsvík 2-0 með mörkum Bjama Sæmundssonar og Gísla Þórs Þórarinssonar. Þróttur frá Vogum, Keflavík 23 og Grinda- vík 23 ára og yngri lágu öll. Skagamenn mæta á Njarðvíkurvöllinn og Framarar í Garöinn Dregið var í 32 liða úrslitum Coca-Cola bikarkeppni KSI sl. þriðjudag en 4 Suðurnesjalið voru í pottinum. Svo skemmti- lega vill til að þessi 4 lið keppa aðeins gegn 2 liðum, ÍA og Fram. Víðismenn frá Framara í heimsókn og Njarðvíkingar Skagamenn á meðan Grindvík- ingar leika gegn Fram 23 og Keflvíkingar gegn ÍA 23 á úti- velli. Leikimir fara fram dagana 15-16. júní nk. og hefjast allir kl. 20. Fylkismenn í heimsókn Víðismenn mæta Ólaft Þórðar- syni og Arbæingum á morgun kl. 20 í Garðinum. Víðismenn em efstir í 1. deildinni en Fylkir er í 4. sæti. Grindvíkingar stóðu í útvarpsrekstri um síðustu helgi í tengslum við sjómannahátíðina Sjóarann síkáta. Útvarpsstöpin FM 89,5 sendi út fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Meðfylgjandi mynd var tekin af ljósmyndara okkar í Grindavík í útsending- arveri stöðvarinnar. VF-mynd: Tobbi Nú verðup að sækja öll stlgin Landssímadeildin rúllar aftur af stað á laugardag er Keflvíking- ar fá fyrrverandi þjálfara sinn Inga Bjöm Albertsson og Vals- menn hans í heimsókn á kl. 14 og Grindvíkingar sækja Vík- inga heim kl. 20 sama kvöld. Bæði liðin þurfa nauðsynlega á stigum að halda og mikilvægt að tapa sem fæstum stigum gegn þeim liðum sem eru á svipuðum stað í deildinni. Vals- menn mæta til leiks með „nýj- an“ þjálfara við stjómvölinn og leggur þingmaðurinn fyrrver- andi örugglega ofuráherslu á að ná stigum í Keflavík, hvort heldur vegna stuttaralegs þjálf- araferils þar eða almenns stiga- leysis Valsmanna. Grindvíking- ar ætla sér eflaust að gera betur gegn Víkingum en nágrönnum þeirra tókst í 1. umferð og ná sér í leiðirtni í betra sæti á stiga- töflunni. Grindvíkingurinn Hjálmar Hallgrímsson verður í leikbanni gegn Víkingum. Hann sagði leikinn mikilvægan og sárt að missa af honum. „Þetta er einn af þeim leikjum sem má ekki tapast og mjög gott væri að fá öll þrjú stigin." Þú fékkst tveggja leikja bann yegna brottrekstrarins gegn IBV. Hvað voruð þið að eigast við þú og Steingrímur marka- hrókur? „Mér finnst þetta atvik alls ekki útheimta tveggja leikja bann. Eg var að hlaupa út á vinstri vænginn þegar Steingrfmur hljóp í veg fyrir mig. Það var svo sem ekkert til að kvarta yfir og ég breytti einfaldlega um stefnu en þá hljóp hann aftur fyrir mig og hindraði mig í ann- að sinn. Eg hreitti í hann hvað hann væri eiginlega að reyna að gera og slæmdi svo opnum lófa aftan í hársvörðinn á honum. Dómarinn sá þetta og þegar hann nálgaðist hraut Steingrím- ur skyndilega í jörðina og engd- ist eins og hann hefði verið sleginn með hafnarboltakylfu. Brottrekstrinum mótmæli ég ekki því það er aldrei réttlætan- legt að slá til andstæðings í leik en tveggja leikja bann átti ég ekki skilið." KR-stúlkur væntan- legar í heimsókn Stúlknalið Grindavíkur er án stiga í Meistaradeild kvenna að loknum 4. umferðum en liðið J hefur bætt leik sinn í hverri um- ; ferð og fyrstu stigin koma brátt í | hús. Næstkomandi þriðjudag gefst aðdáendum kvennaknatt- spymu á Suðumesjum færi á að sjá meistara KR-inga á Grinda- J víkurvelli en þeirra á meðal er Keflvfkingurinn Olga Færseth. Leikurinn hefst kl. 20 og má gera ráð fyrir að á brattann verði að sækja fyrir Grindvíkinga. „Liðið er hægt og rólega að fá sjálfstraust og öðlast trú á sjálf- | um sér. Leikurinn gegn KR verður erfiður enda úrvalsleik- menn í öllum stöðum" sagði Pálmi Ingólfsson þjálfari Grindavíkurstúlkna. Sport á netinu www.keflavik.is /knattspyrna Knattspyrnudeild Kefla- víkur hefur opnað heimasíðu að nýju eftir talsverða tatknilega örð- ugleika. A síðunni verða birt úrslit í leikjuni Keflvíkinga auk þess sem liægt verður að fylgjast með nýjustu fréttum. Steinb jörn Logason og Snorri Birgisson eru umsjónarmenn síðunnar og taka við upplýs- ingum og athugasemdum í síma 421-5388 og á tölvupóst- fangið kef-fc@ok.is. Víkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.