Víkurfréttir - 08.07.1999, Blaðsíða 8
Ný bílasala í Njarðvík
Erlinj>ur Hunncsson
opnaði síðasta laugar-
dag bílasöluna Bílavík
að Holtsgötu 54 í
Njarðvík, húsnæði sem áður
hýsti R.H-innréttingar. „Eg
er mjög ánægður ineð opn-
unarhclgina og vill þakka
Suðurnesjamönnum góðar
móttökur. Salurinn er um
það hil 400 fermetrar og
iljótlega verður pláss fvrir
30-40 notaðar bifreiðar ut-
anhúss. Það hefur verið
rnikill uppgangur í hílasölu-
málum sl. 2 ár og 9000-1000
bílar selst á svæðinu en í
eðlilegu árferði ættu svona
600-700 bílar að seljast. Að
fvrirtækinu standa auk mín,
Andrés Hjaltason, Ragnar
Halldórsson, Benjamín
Guðmundsson og Valdimar
Þorgeirsson en eiginlegir
starfsmenn verða tveir.
Byrjunin lofar góðu og á ég
ekki von á öðru en að fram-
hald verði á enda ég ekki
óreyndur í bílasölubransan-
um“ sagði Elli Hannesar,
eins og liann er alla jafna
kallaður.
Fyrstu kaupendurnir
leystir út med blómum
Eigendur fyrstu bíl-
anna.Sesselja Woods
Kristinsdóttir, Jens Krist-
björnsson, Kristbjörn Al-
bertsson annars vegar og
hins vegar Erla Andrésdótt-
ir Hjalti Gudmundsson
76% vilja
í Fjölbraut
Alls hafa 735 umsókn-
ir bárist um nám við
FS á næstu
haustönn, þar af 225
frá nýnemum. Hæst hlut-
fall nýnema er úr Gerða-
skóla en þaðan sækja 88%
útskriftarnema um skóla-
vist í FS. Minnstan áhuga á
FS hafa Vogabúar en „að-
eins“ 63,6% útskriftar-
nema tíunda bekkjar sækj-
ast eftir skólavist i FS
næstu haustönn.
Hjólastólafarþegar
í hvalaskoöun
Sjávarlífsskoöunarfvr-
irtækið Hvalstöðin
Keflavík undir stjórn
Guðmundar Gestsson-
ar bætti heldur betur á sig
blómum fyrir yfirstandandi
ferðamannatímabil og geta
þeir sem bundnir eru hjóla-
stóluni nú hreinlega ekið
sjálfum sér um borð.
Við þurftum í fyrra að bera
hjólastólafarþegana yfir lunn-
inguna og ákváðum að reyna
að bæta aðgengið. Nú er hægt
að aka alla leið um borð. Þá
höfum við sett upp neðansjáv-
armyndavél með Ijósnæminu
0,003 LUX sem er afar gott
og dugir niður á allt að 80
metra. Við höfum nú aðeins
látið reyna á 30 metrana og er
útsýnið nánast eins og á sjón-
varpsskjá. Þar að auki höfum
við meðferðis hljóðnema sem
nemur höfrungasönginn,
þ.e.a.s nemur tíðni höfrunga
og getum við oftast hlustað á
hljóðin í þeim þegar við
slökkvum á öllum vélum um
borð. Það skemmtilega við
ferðirnar þetta sumarið er þó
að æ fleiri Islendingar koma
með. Við höfum veitt því eft-
irtekt að oft hringja íslending-
ar og skrá sig á ferðir með er-
lendum vinum og kunningj-
um sem eru í heimsókn. Þess-
ir sömu aðilar koma síðan aft-
ur og nú með eigin tjölskyld-
ur.
Staðreyndin er nú sú að marg-
ir bomir og bamfæddir Kefl-
víkingar hafa aldrei séð nán-
asta nágrenni bæjarins frá sjó"
sagði Guðmundur Gestsson.
8
Víkurfréttir