Víkurfréttir - 08.07.1999, Side 10
Grinda víkurbær
Húsnæði
óskast til leigu
Grindavíkurbær þarf að útvega
nokkrum starfsmönnum húsnæði,
sem hyggjast flytja til bæjarins.
Viðkomandi starfsmaður gerir
sjálfur leigusamning. Húsnæði af
öllum stærðum kemur til greina.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga
á að leigja húsnæði eru beðnir
að hafa samband við:
Jón Hólmgeirsson,
bæjarskrifstofunni að
Víkurbraut 62, sími 426 7111.
Þak í lausu
lofti
fylgdust með þegar efri hæð
Vallargötu 5 var hífð af gras-
blettinum og húsið stækkað
um næstum því helming enda
ekki á hverjum degi sem þessi
aðferð er notuð við húsbyggin-
gar hérlendis
VF-mynd Franz
Sandgerðisbær
Húsnæði
til leigu
Til leigu er 4ra herbergja, 100m2
íbúð íparhúsi. Umsóknir berist hús-
næðisnefnd fyrir 17. júlí 1999.
Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 423 7555.
Húsnæðisnefnd Sandgerðisbæjar
Grinda vfkurbær
Skólaritari
Skólaritara vantar til starfa við
Grunnskólann í Grindavík frá
1. ágúst n.k. Um er að ræða fullt
starf sem felst f daglegri umsjón
með skrifstofu skólans m.a.
símavörslu. Við leitum að
einstaklingi með lipurð í sam-
skiptum og kunnáttu á tölvur.
Upplýsingar veita skólastjóri
í síma 426 8504 og aðstoðar-
skólastjóri í síma 426 8363.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu
Grindavíkurbæjar fyrir 15. júlí 1999.
Bæjarstjóri
Smiðurinn Ómar Svavarsson
og eiginkona hans, Gyða
Björk Guðjónsdóttir, eru búin
að standa í ströngu síðastliðin
þrjú ár og hafa aldeilis tekið
húseign sína, Vallargötu 5 í
Sandgerði, í gegn.
„Við keyptum húsið 1996 og
urðum fyrir því ári seinna að
bílskúrinn brann. Segja má að
síðan það gerðist hafi ég verið
í hlutverki „framkvæmdaná-
grannans", þess sem aldrei er
friður fyrir og bæði vekur og
svæfír nágrannana með ham-
arshöggum og látum. Húsið
sem er úr timbri hafði verið
forskalað og reyndist við nán-
ari könnurn allt fúið. Þá upp-
götvuðum við að samkvæmt
upphaflegri teikningu frá
1953 var húsið á tveimur
hæðum en hafði verið tekið
niður eftir bmna 1962. Fyrst
lagaði ég skúrinn og hófst síð-
an handa við að byggja efri
hæðina. Var hún smíðuð í
garðinum hjá mér og síðan
hífð upp með krana og fest á
þá neðri með BMF þakakker-
um og 20 cm löngum frönsk-
um skrúfum. Með því að
vinna þetta svona þá flýtti ég
heilmikið framkvæmdunum
og þó margir hafi lyft brúnum
og furðað sig í upphafi. Nú
styttist í að þetta 68 fermetra
húsnæði okkar breytist í
svona 110-115 fermetra."
Nýburar
Briet Jóhannesdóttir og
Róbert Sigurþórsson eign-
uðust stúlku 13. júní s.l. Hún
var 15 merkur og 53 sm.
Fanney Pétursdóttir og
Sigurður Jónsson eignuðust
dreng 21. júní s.l. Hann var
18 merkurog 55 sm.
Helga Laufey Jóhannesdóttir
og Tryggvi Þ. Tryggvason
eignuðust stúlku 30. júní s.l.
Hún var 15 merkur og 53,5
sm.
Kristín Sigurðardóttir og
Haukur Ingimarsson eign-
uðust dreng I. júlí s.l. Hann
var 17 merkur og 55 sm
Deslijati Sjarif og Ögmundur
Snorrason eignuðust stúlku 4.
júlí. s.l. Hún var 14,5 rnerkur
og 52 sm.
REYKJ ANESBÆR
Markaðs- og
ATVINNUMÁLASKRIFSTOFA
VlÐSKIPTAÞJÓNUSTA í
SENDIRÁÐUM ÍSLANDS
Markaðs- og atvinnumála-
SKRIFSTOFAN, í SAMSTARFI VIÐ
VlÐSKIPTAÞJÓNUSTU UTANRÍKIS-
RÁÐUNEYTISINS, MUN STANDA
FYRIR VIÐTALSTÍMUM MEÐ VÖLDUM
VIÐSKIPTAFULLTRÚUM
ÍSLENSKRA SENDIRÁÐA Á
SKRIFSTOFU MOA í LOK ÁGÚST.
ÞEIR SEM VILJA KYNNA SÉR STÖRF
VIÐSKIPTAFULLTRÚANNA HAFI SAM-
BAND VIÐ ÓLAF KJARTANSSON EÐA
JOHAN D. JÓNSSON FYRIR 15. JÚLÍ
NK. í SÍMA 421-6750
Efpi hæðin byggð úti í garði
10
Víkurfréttir