Víkurfréttir - 08.07.1999, Síða 15
Eftir leikinn
Misskilningur
-segir Magnús
Þórissson, línu-
vöröur
Magnús Þórisson, aðstoðar-
dómarinn sem tók hina um-
deildu ákvörðun í leik Grind-
víkinga og Leiftursmanna,
sagði það ósk KSI að dómarar
ræddu ekki um einstaka
ákvarðanir í fjölmiðlum. „Eg
vil þó leiðrétta þann almenna
misskilning að ég hafi verið illa
staðsettur til að sjá atvikið því
það er ekki rétt. Það er vinnu-
regla milli aðaldómara og að- j
stoðardómara að ef aðstoðar- j
dómari sér mark skorað þá j
skuli hann taka á sprett frá end- j
anlínu og krefjast sumir dómar-
ar þess að spretturinn nái alla
leið að miðjulínunni. I þessu til-
viki lyfti ég flagginu og tók á
sprett strax og ég sá boltann
fara inn fyrir línuna. Þessi
gagnrýni er því á misskilningi
byggð."
„Ekki frá mínu
sjónarhorni“
Njarðvíkingurinn Kristbjöm Al-
bertsson, formaður UMFN, var
staddur á leiknum og staðsettur
við endalínuna Grindavíkur-
megin þegar markið umdeilda
var skorað. „Eg stóð móts við
endalínuna Grindavíkurmegin
þegar þetta gerðist og fór knött-
urinn aldrei inn í markið, ekki
frá mínu sjónarhomi".
„Boltinn fór aldrei yfir
marklínuna“
„Brasilíumaðurinn skallaði
boltann laust ffamhjá mér og í
stöngina. Eg elti knöttinn sem
kom á móti mér, frá marklín-
unni og sló hann með hægri
hönd að marklínunní og svo
aftur með sömu hendi ffá mark- j
inu og gríp hann að lokum.
Þetta var mikill darraðadans en
boltinn fór aldrei yfir marklín-
una. Ég ætlaði að koma boltan- |
um aftur í leik þegar ég sá að-
stoðardómarann með flaggið á j
loffi u.þ.b. 7 metra ffá homfán-
anum. Það er á hreinu að frá því
sjónarhomi er engin leið fyrir
hann að sjá hvort boltinn er inni
eða ekki“ sagði Albert Sævars-
son markvörður Grindvtkinga
um atvikið umdeilda.
20 áminningar og 2
rauö í 8 leikjum
Grindvíkingar em spjaldsækn- j
asta lið Landssfmadeildarinnar
á þessu sumri. Þeir hafa safhað
á sig 20 gulum spjöldum og
tveimur rauðum í fyrstu 8. um-
ferðunum. Gegn Leiftursmönn-
um fékk Duro Mijuskovic gult
spjald fyrir leikaraskap, Paul j
McShane fyrir brot og Sinisa
Kekic fyrir mótmæli í kjölfar
vafasams marks Leiftursmanna.
Næstir Grindvíkingum koma
mótherjar þeirra í síðasta leik,
Leiftursmenn, með 19 gul og |
eitt rautt en prúðustu lið deild-
arinnar em Valsmenn með 6 gul
spjöld og Keflvíkingar með 6
gul og eitt rautt.
Leifturssigun án marks
Grindvíkingar töpuðu þremur
stigum til Leiffurs ffá Ólafsfirði
með eftirminnilegum hætti á
síðustu mínútu venjulegs leik-
tíma effir að hafa verið sterkari
aðilinn allan tímann. A 90 mín-
útu leiksins sóttu Leiftursmenn
og Brasilíumaðurinn Alexander
Braga de Silva náði að skalla
knöttinn ffamhjá Alberti Sæv-
arssyni í markinu. Boltinn
hrökk í stöngina en Albert var
eldfljótur og náði knettinum, að
því best fékkst séð, aftur á
marklínu. Virtist hættan afstaðin
þegar Eyjólfur Ólafsson, dóm-
ari, dæmdi markið gilt í kjölfar
ábendingar línuvarðarins
Magnúsar Þórissonar. Grindvík-
ingum hreinlega féllust hendur
og tókst ekki að rétta hlut sinn
fyrir leikslok. Helgi Bogason,
aðstoðarþjálfari Grindvfkinga,
sagði tapið mjög sárt og
ákvörðun astoðardómarans
óskiljanlega. „Línuvörðurinn
var í engri aðstöðu til að meta
atvikið þar sem hann var illa
staðsettur og menn hljóta að
þurfa að vera 100% vissir til að
taka svona ákvörðun.“ Grind-
víkingar, sem léku án 3 fasta-
manna úr sóknarlínunni, voru
miklu sterkara liðið í leiknum
og fóru þar fremstir miðju-
mennirnir Sinisa Kekic og
Sögulegur leikur UMFG og Leifturs í Landssímadeildinni
Mark
eöa ekki
mark?
Þessi mynd er tekin af
upptöku Stöðvar 2 og
sýnir Albert markvörö
á leið aö grípa knött-
inn eftir aö hann hafði
farið í stöngina. Ekki
er auðvelt að sjá á
þessari mynd hvort
boltinn sé kominn inn
fyrir línuna en Magnús
línuvörður segir í við-
tall hér að ofan:
„í þessu tilviki lyfti ég
flagginu og tók á
sprett strax og ég sá
boitann fara inn fyrir
iínuna"...
Markasúpa í jóm-
frúarsigri UMFG
Kvennalið Grindvíkinga í
knattspyrnu fagnaði sínum
fyrsta sigri í efstu deild sl.
þriðjudagskvöld er Fjölnis-
stúlkur voru gjörsigraðar 5-0 í
Grindavík.
Grindvísku stúlkurnar létu
strax sverfa til stáls í fyrri
hálfleik og skoruðu þrisvar,
Petra Rós fyrst síðan Ólína
Guðbjörg og loks Sólný Páls-
dóttir. I seinni hálfleiks jafn-
aðist leikurinn aðeins en þær
Petra Rós og Sara Davidson
tryggðu fimm marka sigur.
„Eg er alveg himinlifandi
með sigurinn og þetta er von-
andi upphafið að betra gengi.
Sigurinn gegn Skagastúlkum
í bikamum skipti sköpum fýr-
ir sjálfstraust liðsins og ágætt
að enda fyrri umferðina á
þennan hátt.“
Ólína fyrsti Grindvíkingurinn
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
varð fyrsta landsliðskona
Grindvíkinga í knattspyrnu
þegar hún lék landsleiki með mótinu í knattspymu í síðustu
U-17 á Opna Norðurlanda- viku.
Petra Rós Olafsdóttir, sem skoraði 2 mörk fyrir Grindvíkinga á
þriðjudagskvöld, prjónar sig hér framhjá varnarmönnum Fjölnis.
Hjálmar Hallgrímsson en fram-
heijinn Ólafur Ingólfsson hefur
séð léttari daga. Hlynur Birgis-
son og Alexander Braga de
Silva léku best gestanna en
Guðjón Asmundsson tók Une
Arge grettistaki frá fyrstu mín-
útu og átti Færeyingurinn sterki
sér ekki viðreisnar von.
[Ánnað tapiðl
i íröðgegn j
I ÍBV ;
I Keflvíkingar sóttu ekki stig I
I í greipar Eyjamanna á Há- I
I steinsvelli í Eyjum sl. I
j sunnudag og töpuðu I -0 en •
Ivar Ingimarsson skoraði
lýrir heimamenn á 64 mín- j
útu. „Liðið barðist vel og .
I Vestmannaeyjingar fengu .
I ekki að leika sína uppá- |
| haldsknattspymu. Við áttum |
I fleiri góð færi en þeir en |
I það eru mörkin sem telja. í I
I stuttu máli má segja að mér I
I fannst baráttan góð og haus- I
inn í lagi og þótt liðið hafi *
ekki náð stigum á Hásteins- j
j velli (ÍBV með 23 án taps j
. þar) þá tel ég okkur á rénri j
I leið á öllum sviðum" sagði ■
I Gunnar Oddsson, þjálfari |
I og leikmaður Keflvíkinga. j
GG-Njarövík
| Golfklúbbur Grindavíkur
| tekur á móti Njarðvíkingum
I á föstudagskvöld og hefst
I leikurinn kl. 20.
I Sigruöu Skagastúlk-
I ur í bikarnum
I Úrvalsdeildarlið Grindvík-
I inga í kvennaboltanum kom
I heldur betur á óvart í Coca-
Cola bikamum og þegar þær
lögðu ÍA-stúlkur flatar 4-3
eftir að hafa verið I -2 undir í
I hálfleik. Mörk heimastúlkna
I skomðu Rósa Ragnarsdóttir,
I Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
| og Erla Ósk Pétursdóttir
I sem skoraði tvö.
■
I Fjórir Suðurnesja-
menníU16
landsliöinu
J Suðumesjamenn eiga 4 leik-
. menn í 16 ára og undir
. landsliði fslands t' knatt-
I spyrnu sem leikur á OL-
I dögum æskunnar í Esbjerg í
| Danmörku dagana 10-16.
I júlí næstkomandi. Leik-
I mennimir eru Jónas Guðni
I Sævarsson úr Keflavík, Ey-
I þór Atli Einarsson úr
Grindavík, Hafsteinn G.
[ Friðriksson úr Reyni Sand-
. gerði og Einar S. Óddson úr
. Njarðvík en þetta mun vera í
I fýrsta sinn sem Njarðvíking-
I ar eiga leikmann f U16 ára
| landsliði í knattspymu.Víðir
I aðhliðÍR
I-------------------------1
15
V íkurfréttir