Víkurfréttir - 15.07.1999, Side 10
RAÐAUGL YSINGAR
Grinda víkurbær
Skólaritari
Umsóknarfrestur um starfskóla-
ritara í Grunnskóla Grindavíkur
framlengist til 23. júlí 1999.
Um er að ræða starf sem felst í
daglegri umsjón með skrifstofu
skólans m.a. símavörslu. Við leitum
að einstaklingi með lipurð í
samskiptum og kunnáttu á tölvur.
Staðan var auglýst sem fullt starf.
Einnig kemur til greina að ráða í
tvö hálfsdagsstörf, fyrir og eftir
hádegi. Umsækjendur þurfa að
hefja störf 1. ágúst n.k.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma
426 8504 og aðstoðarskólastjóri í
síma 426 8363. Umsóknum skal
skila á bæjarskrifstofuna að
Víkurbraut 62, Grindavík.
Bæjarstjóri
Grinda víkurbær
Hús til sölu
Húsið Austurvegur 9 (Hestabrekka) í
Grindavík er til sölu ef viðunandi
tilboð fæst. Húsið hefur ekki lóðar-
réttindi en stöðuleyfi til 10 ára.
Byggingarréttur fylgir ekki og ekki
afnot af ræktuðu túni við húsið.
Upplýsingar veitir byggingarfulltrúi
Viðar Már Aðalsteinsson í
síma 426 7111.
Tilboðum skal skila á
bæjarstjóraskrifstofuna að
Víkurbraut 62 í síðasta
lagi 30. júlí 1999.
Bæjarstjórinn í Grindavík
Atvinna
Óskum eftir vönum mönnum
á þungavinnuvélar.
Upplýsingar í sfma 899 0532
Vélaleiga Auðuns Þórs.
Sparisjóöurinn í
Keflavík og
Kaupþing
Luxombourg:
Samstarf um
eignastýringu
og ávöxtun
Sparisjóðurinn í Keflavík og
Kaupthing Luxembourg S.A.
hafa tekið upp samstarf um
eignastýringu og ávöxtun
fjármuna fyrir viðskiptavini
sparisjóðsins. Fyrsti samn-
ingurinn hefur nú verið
undirritaður en það er við
Lífeyrissjóð Suðurnesja.
Samningurinn við lífevris-
sjóðinn er í upphafi að
fjárhæð 2 milljarðar króna og
er áætlaö að við hætist hluti af
ráðstöfunarfé sjóðsins í
framtíöinni.
Markmiðið með samstarfinu er
að bjóða lífeyrissjóðnum og
öðrum nviðskiptavinum spari- 5
sjóðsins þjónustu á sviði
eignastýringar með það að
markmiði að ná góðri ávöxtun
og áhættudreifingu.
Kaupthing Luxembourg S.A. er
með að heildarverðmæti 13
milljarða í sinni vörslu fyrir
fyrirtæki, sjóði og einstaklinga
og hafa ijármunir í vörslu aukist
stöðugt frá því fyrirtækið var
stofnað fyrir rúmu ári síðan.
Starfsmenn Kaupthing Lux-
embourg S.A. eru nú ellefu
talsins af sex þjóðemum.
Sparisjóðurinn í Keflavík varð
aðili að Verðbréfaþingi íslands í
mars á mþessu ári og hafa mar-
gir viðskiptamenn Sparisjóðsins
nýtt sér þessa nýju þjónustu.
Með samstarfinu við Kaupthing
Luxembourg S.A.er enn verið
að bæta þjónustuna með
tengslum við erlenda verð-
bréfamarkaði og faglegri
ráðgjöf um eignasamsetningu
og ávöxtun. Sparisjóðurinn í
Keflavík stefnir að því að geta
boðið upp á alla þá þjónustu
sem viðskiptastofa getur boðið
upp á, Þetta er því mikilvægt
skref í uppbyggingu á við-
skiptastofu Sparisjóðsins því nú
getur hann einnig sinnt erlend-
urn verðbréfaviðskiptum fyrir
viðskiptavini sína.
Scheving í Grindavíh
Sýning á verkunt Gunnlaugs
Schevings stendur yfir í
„Kvennó" í Grindavík. A sýn-
ingunni eru 20 verk, olíumál-
verk og vatnslitamyndir, sem
öll eru í eigu Listasafhs íslands
og er sýningin unnin í sam-
i vinnu safnsins og Grindavíkur-
bæjar. A sýninguna í Grindavík
hafa verið valin verk sem tengj-
ast Grindavíkurdvöl lista-
mannsins. Þar getur að líta
myndir úr þorpinu, úr starfi sjó-
manna og myndir af fólki. Sýn-
ingin stendur til 18. júlí og er
opin kl. 12-15 virka daga og kl.
12-17 um helgar.
Standandi f.v: BJörn Jónsson, Kaupthing Luxembourg, Friójón
Einarsson, framkvæmdast. Lífeyrissjóðs Suðurnesja, Jón Ægir
Ólafsson, varaformaður LS, Geirmundur Kristinsson,
sparisjóðsstjóri. Sitjandi f.v.: Sigurður Einarsson, stjórnarform.
Kaupthing Luxembourg, Halldór Páisson, stjórnarform.
Lífeyrissjóðs Suðurnesja.Benedikt Sigurðsson, stjórnarform.
Sparlsjóðslns.
Atvinna
Besta ehf. Njarðvík óskar eftir
starfsmanni. Starfið felst í af-
greiðslu í verslun, ásamt útkeyrslu
og lagerstörfum. Vinnutími 8-17
virka daga. Um framtíðarstarf er að
ræða. Reyklaus vinnustaður.
Æskilegt er að umsækjendur geti
hafið störf sem fyrst. Umsækjendur
riti umsóknir með eigin hendi og
sendi til Víkurfrétta merkt „Besta 2"
Fyrir 22. júlí 1999.
J
Gerðahreppur
Útboð
Gerðahreppur óskar eftir
tilboðum í verkið
„Malbikun í Gerðahreppi 1999".
Eyjaholt, Melabraut - Gaukstaðavegur.
Verkið felst í:
Malbiksviðgerðir ca. 100m?
Malbiksútlögn, yfirlag ca. 5000m?
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar
en 15. september 1999.
Útboðsgögn fást gegn 5000.- kr.
skilatryggingu á skrifstofu
Gerðahrepps, Melbraut 3, 250
Garður. Tilboði skal skila í lokuðu
umslagi merktu.
Gerðahreppur
Melbraut 3, Garður
Malbikun Gerðahreppi 99
Tilboð verða opnuð á sama stað
föstudaginn 23. júlí 1999, kl. 11.15.
Gerðahreppur.
10
Víkurfréttir