Víkurfréttir - 19.08.1999, Page 7
Af hverju nektarbúllu
í Reykjanesbæ?
Spurningin hér
að ofan hefur
hljómað oft í
eyrum undirrit-
aðs undanfarna
daga eða frá því
að fréttist af því
að það stæði til
að opna nýjan skemmtistað hér
í bæ. Skemmtistað þar sem
dans fáklæddra eða naktra
stúlkna á að vera megin
skemmtiefnið.
Það er von að fólk spyrji sig
þessarar spumingar, sérstaklega
í kjölfar neikvæðrar umræðu
um sambærilega staði í höfuð-
borginni okkar. I umræðunni
um nektarbúllumar í Reykjavík
hafa sumir aðilar sem vel þekk-
ja til á stöðum þessum fúllyrt að
eiturlyfjaneysla og sala ásamt
vændi viðgengist á stöðunum
sjálfum eða tengist þeim á
annan hátt.
Þessvegna spyrja margir íbúar
Reykjanesbæjar sig þeirrar
spumingar hverju slíkur staður
bæti við bæjarlífið í bænum
okkar. í fljótu bragði dettur
undirrituðum ekki hug nein
jákvæð áhrif af slíkum stað eða
neitt gott sem hann hefur til
bæjarlífsins að færa. En aftur á
móti tel ég að ákveðin hætta
geti fylgt tilkomu slíks staðar
hér í bæ, í ljósi þess orðsspors
sem fer af samskonar stöðum í
Reykjavík. Ég tel þó ekki að
þeir aðilar sem ætla að reka
staðinn hafi neitt illt í hyggju
heldur frekar að þeir hafi
ákveðið þetta í hugsunat'leysi
og ekki gert sér grein fyrir því
að hér í Reykjanesbæ er ekki
almennur vilji til þess að hafa
slíkan stað í bænum. I flestra
hugum er þetta óþörf og í versta
falli hættuleg viðbót við bæjar-
lífið.
Samkvæmt minni vitneskju
hefur umsókn um rekstrar- og
vínveitingarleyfi til handa
staðnum ekki verið lagt fyrir
bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
íbúar Reykjanesbæjar eru svo
heppnir að í bæjarstjóm okkar
situr skynsamt fólk og vil ég
hvetja bæjarstjómina til þess að
hafna leyfi til handa staðnum
þegar sú umsókn berst til
afgreiðslu. Með því að hafna
leyfinu væri bæjarstjórn
Reykjanesbæjar að senda skýr
skilaboð til allrar þjóðarinnar
um að í - Reykjanesbæ byggi
fólk sem er annt um umhverfi
sitt og bæjarbraginn og leggja
lið þeim yfirgnæfandi fjölda
bæjarbúa sem vilja halda
Reykjanesbæ áfram á réttu róli.
Með forvarnakveðju
Eysteinn Eyjólfsson,
verkefnisstjóri
Reykjanesbæjar á réttu róli.
SÍ££*STa
úrrsöLu
í\°/o
" aukoafá Idttur
*f utác>luverí>íi
Hafnargötu 15 - sími 421 4440
Auglýsingasíminn
er 421 4717
Utgeroarmenn og siómenn!
Höfum opnað útibú fyrir
skipaskoðun á Suðurnesjum
að Víkurbraut 13 í Keflavík
Með kveðju,
SIGLINGASTOFNUN
Siglingastofnum íslands,
Víkurbraut 13,230 Keflavík
sími 421 1072-fax 421 1072
www.sigling.is - keflavik@sigling.is
Víkurfréttir