Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 19.08.1999, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 19.08.1999, Blaðsíða 7
Af hverju nektarbúllu í Reykjanesbæ? Spurningin hér að ofan hefur hljómað oft í eyrum undirrit- aðs undanfarna daga eða frá því að fréttist af því að það stæði til að opna nýjan skemmtistað hér í bæ. Skemmtistað þar sem dans fáklæddra eða naktra stúlkna á að vera megin skemmtiefnið. Það er von að fólk spyrji sig þessarar spumingar, sérstaklega í kjölfar neikvæðrar umræðu um sambærilega staði í höfuð- borginni okkar. I umræðunni um nektarbúllumar í Reykjavík hafa sumir aðilar sem vel þekk- ja til á stöðum þessum fúllyrt að eiturlyfjaneysla og sala ásamt vændi viðgengist á stöðunum sjálfum eða tengist þeim á annan hátt. Þessvegna spyrja margir íbúar Reykjanesbæjar sig þeirrar spumingar hverju slíkur staður bæti við bæjarlífið í bænum okkar. í fljótu bragði dettur undirrituðum ekki hug nein jákvæð áhrif af slíkum stað eða neitt gott sem hann hefur til bæjarlífsins að færa. En aftur á móti tel ég að ákveðin hætta geti fylgt tilkomu slíks staðar hér í bæ, í ljósi þess orðsspors sem fer af samskonar stöðum í Reykjavík. Ég tel þó ekki að þeir aðilar sem ætla að reka staðinn hafi neitt illt í hyggju heldur frekar að þeir hafi ákveðið þetta í hugsunat'leysi og ekki gert sér grein fyrir því að hér í Reykjanesbæ er ekki almennur vilji til þess að hafa slíkan stað í bænum. I flestra hugum er þetta óþörf og í versta falli hættuleg viðbót við bæjar- lífið. Samkvæmt minni vitneskju hefur umsókn um rekstrar- og vínveitingarleyfi til handa staðnum ekki verið lagt fyrir bæjarstjórn Reykjanesbæjar. íbúar Reykjanesbæjar eru svo heppnir að í bæjarstjóm okkar situr skynsamt fólk og vil ég hvetja bæjarstjómina til þess að hafna leyfi til handa staðnum þegar sú umsókn berst til afgreiðslu. Með því að hafna leyfinu væri bæjarstjórn Reykjanesbæjar að senda skýr skilaboð til allrar þjóðarinnar um að í - Reykjanesbæ byggi fólk sem er annt um umhverfi sitt og bæjarbraginn og leggja lið þeim yfirgnæfandi fjölda bæjarbúa sem vilja halda Reykjanesbæ áfram á réttu róli. Með forvarnakveðju Eysteinn Eyjólfsson, verkefnisstjóri Reykjanesbæjar á réttu róli. SÍ££*STa úrrsöLu í\°/o " aukoafá Idttur *f utác>luverí>íi Hafnargötu 15 - sími 421 4440 Auglýsingasíminn er 421 4717 Utgeroarmenn og siómenn! Höfum opnað útibú fyrir skipaskoðun á Suðurnesjum að Víkurbraut 13 í Keflavík Með kveðju, SIGLINGASTOFNUN Siglingastofnum íslands, Víkurbraut 13,230 Keflavík sími 421 1072-fax 421 1072 www.sigling.is - keflavik@sigling.is Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.