Víkurfréttir - 16.09.1999, Síða 7
Erfið staða
h|á lögreglunni
Ekki hefur framhjá nokkrum
manni farið ágreiningurinn á
milli Lögreglufélags Reykja-
víkur og dómsmálaráðuneyt-
isins varðandi kaup og kjör
lögreglumanna í Reykjavík
síðastliðnar vikur. Lögreglan í
Keflavík auglýsir í VF í þess-
ari viku eftir 7 almennum lög-
regluþjónum og einum rann-
sóknarlögregluþjóni og lög-
reglan á Keflavíkurflugvelli
eftir aðalvarðstjóra. Samtals
eru þetta 9 stöður. VF spurði
Karl Hermannsson, yfirlög-
regluþjón um ástand mála.
„Gert ráð fyrir að 24 lögreglu-
menn starfi á vöktum hér í
Keflavík og í dag eru 17 lög-
regluskólagengnir lögreglu-
menn við störf. I dag em þess-
ar stöður mannaðar af óskóla-
gengnum mönnum og mun
hluti þeina hætta um mánað-
armót. Þessar stöður þurfum
við nauðsynlega að manna.“
Attu von á að hingað sæki
óánægðir reykvískir lög-
rejgluþjónar?
„Eg á ekki von á því. Launin
hér eru þau sömu og í Reykja-
vík. Hér er þó kannski von á
meiri aukavinnu, nokkuð sem
hefði mögulega áhrif á þá
Reykvíkinga sem vilja breyta
til. Sæki hingað reyndir lög-
regluþjónar úr Reykjavík er
það besta mál.“
Hvað veldur brottfallinu úr
lögreglunni í Keflavík á
þessu ári?
„Við höfum á síðasta áratug
eða svo haft hérna sterkan
kjama ungra lögreglumanna
með talsverða starfsreynslu.
Þegar lögreglumenn hafa ver-
ið lengi undir aukavaktarálagi
á helgamæturvöktum og því
mgli sem þeim tengist án þess
að laun hækki eða stöðuveit-
ingar fylgi er óumflýjanlegt
að þeir leiti annað eða breyti
til innan lögreglunnar. Þetta
ferli erum við að ganga í
gegnum núna og hafa margir
lögreglumenn fært sig á milli
embætta eða horíið til annarra
starfa að undanfömu."
Lárus Salómonsson
annálaður kraftajötunn
og glímukappi.
Fyrsta lögreglustöðin íKeflavík
Annálaður kraftajötunn og glímumaður
Saga Keflavíkur, þriðja bindi,
er komið út. I tilefni ástands-
ins í lögreglunni þótti tilvalið
að fjalla um vandræði sem
fyrsti lögreglumaðurinn í
Keflavík lenti í tyrir 64 ámm.
Fyrsti lögregluþjónninn í
Keflavík hét Láms Salómons-
son og hóf hann störf vorið
1935. Lárus var annálaður
kraftajötunn og glímukappi
og ekki ósennilegt að þessir
eiginleikar hafi öðmm fremur
tryggt honum starfið. Ekki
geta nútímalögregluþjónamir
kvartað sé eftirfarandi frásögn
rétt en hún birtist í Alþýðu-
blaðinu um skemmtanalok í
samkomuhúsinu Draugnum í
Keflavík.
Orðrétt segir í bókinni:
„Á laugardagskvöldið urðu
einhver verstu slagsmál í
Keflavík, sem menn muna
þar. Æstir og dmkknir menn
réðust á lögregluþjóninn Lár-
us Salómonsson og börðu
hann, rifu af honum fötin,
slitu kylfuna af honum og eltu
hann heim til hans og börðu
hann þar , eftir að hann hafði
símað til Reykjavíkur og kvatt
lögregluþjóna þaðan til að-
stoðar."
Láms hætti störfum að u.þ.b.
ári liðnu, af alveg sérstökum
ástæðum.
77/ leigu
Vegna flutnings OK samskipta ehf.
er til leigu skrifstofuhúsnæði í
miðbæ Keflavíkur að Tjarnargötu 2,
3. hæð, (Bústoðarhúsið).
Góð aðstaða: Þrjú herbergi,
eldhúskrókur, sér snyrting,
geymsla og lyfta.
Upplýsingar gefur Ásgeir,
ísíma 421 3013
KnattspymudeiId Keflavíkur
Lokahófí Stapa
Laugardaginn 18. sept
Sijómin
4V
Veisla fyrír alla
f omr
sanna stuðningsmenn
Borðhuld: uúci. nnnnr Tryggið yRkur miða í
•Verðlauna afhending Hus,ð °F!,ar kl-19 30
• Skemmtiatríði frá leikmönnum
• Happadrœtti
•Þriggja rétta málsverður + áansleikur
á aðeins 2.900 kr.
tíma Því nú er búið
að se{ja 240 miðar í
forsölu á matinn.
Miöar seldir í síma 421 5388 fyrir
föstudaginn 16. sept. eöa komiö á
skrifstofu deildarinnar niöur í
sundkjallara og nálgist þar miöa.
Ath. alla pantaðamiða og boðsmiða þarfað sækja fyrir kl. 20.00 á fímmtudaginn
Víkurfréttir
7