Víkurfréttir - 25.11.1999, Blaðsíða 11
Félag harmonikkuunnenda á Suðurnesjum:
Fundað og spilað á
Ránni á sunnudag
Félagið var formlega stofnað
þann 11. febrúar 1990 á
Ránni, eftir undirbúinings-
fund á sama stað þann 14.
janúar það ár. A stofnfundin-
um skráðu sig 45 stofnfélag-
ar og nokkrir hafa bæst við
síðan en aðrir helst úr lest-
inni, þannig að nú eru á fé-
lagaskrá um 25 aðilar. Ekki
eru þeir allir virkir þátttak-
endur í félagsstarfinu en af
þessum hópi eru 12-14 sem
vitað er um að stunda hljóð-
færaleik að einhverju marki
sér og öðrum til ánægju.
Formenn félagsins frá upphafi
hafa verið þessir: Asgeir Gunn-
arsson, Kristinn Kaldal, Hörð-
ur Jóhannesson og Gestur Frið-
jónsson. Aðrir stjórnarmenn
hafa verið Guðrún Helgadóttir,
Högni Kristinsson, Olafur Er-
lingsson, Bjarni Friðriksson,
Baldur Guðjónsson, Baldur
Júlíusson, Guðmundur Ingólfs-
son og Þórólfur Þorsteinsson.
Félagið hefir á undanförnum
árum haft æfingaaðstöðu á
ýmsum stöðum, og nú er sú
aðstaða að Iðavöllum 11, og
fastir æfingatímar á miðviku-
dagskvöldum eftir kl. 20. Þátt-
taka í æfingum hefir verið með
betra móti nú í vetur og nýir fé-
lagar bæst í hópinn. Félags-
menn hafa á undanförnum
árum tekið þátt í Landsmótum
S.Í.H.U. frá stofnun félagsin,
nú síðast á Siglufirði í byrjun
júlí en á því móti vom í fyrst
sinn tökumenn frá Stöð 2 og
Arnarauga á staðnum og
mynduðu alla framkvæmd
mótsins. Auk þessa hafa ýmsir
félagar lagt sitt af mörkum við
skemmtanahald og uppákomur
margra félagasamtaka og ein-
staklinga á Suðurnesjum, í
Reykjavík og víðar.
Þrátt fyrir það að heldur hafi
verið líflegra félagsstarf nú en
oft áður höfum við hug á því
að auka þátttöku áhugasamra í
starfmu enn frekar. Af því til-
efni er boðað til aðalfundar
sunnudaginn 28. nóvember
n.k. á veitingahúsinu Ránni kl.
15. Nokkrir félagar munu leika
létta tónlist frá kl. 13.30 þar til
fundur hefst. Dagskrá fundar-
ins verður samkvæmt félags-
lögum. Vonast er til að sem
allra flestir sjái sér fært að
koma og öllum er heimill að-
gangur. Vilji einhverjir gerarst
félagar verður tekið við um-
sóknum þeirra á staðnum.
Stjórn F.H.U.S
Stýrimaðurinn ók yfir skipstjórann!
Vinnuslys varð um borð í danska flulningaskipinu Nordic lce í
Sandgerðishöl'n um helgina. Slýrimaður skipsins var við störf
á lyftara þegar hann ók á skipstjórann í lesi skipsins nteð þeint
afleiðingum að skipstjórinn fótbrotnaði. Ilann var lluttur á
sjúkrahús þar sem geit var að áverkum hans.
UIKFEUG KEFUH
sýnir í Frumleikhúsinu
söngleikinn Oliver eftir Lionel Bart
Leikstjóri Pröstur Guðbjartsson
Tónlistarstjóri Einar Örn Einarsson
AUKASYNINSAR
laugardaginn 27. nóvember kl. 15
sunnudaginn 28. nóvember kl. 15
Ath. Allra síðustu sýningar!
Miðasalan opnuð klukkutíma fyrir sýningu.
Miðapantanir í síma 421-2540. Miðaverð 1.000- kr. fyrir alla.
Wj á II
mL. m', 4
V
' 'F> •
f > / -,-v
ájt . s
Jólagfafahandbók Víkurfrétta
Opiö á auglýsingadeild Víkurfrétta alla helgina.
Muniö að vera tímanlega meö auglýsingar.
Komum og sækjum gögn til viðskiptavina. Síminn er 421 4717