Víkurfréttir - 02.12.1999, Blaðsíða 7
Stúlknakórinn
gefur út geisladisk
Geisladiskur Stúlknakórs Tón-
listarskólans í Keflavík, Reyn-
um aftur, kemur í verslanir um
miðjan desember. Gróa Hreins-
dóttir stjómaði kómum og lék
undir í nokkrum lögum. Laga-
valið er mjög fjölbreytt en þar
má heyra sígild íslensk og er-
lend lþg, m.a. ísland farsælda
frón, Islands lag eftir Björgvin
Guðmundsson, Lítill drengur
eftir Magnús Kjartansson,
Brúðarskórnir efir Þóri Bald-
ursson og Reyndu aftur eftir
Magnús Eiríksson.
Upptökur fóm fram í Safnaðar-
heimilinu í Sandgerði dagana
21. og 22. nóvember og upp-
tökum stjórnaði Guðmundur
Kristinn Jónsson frá Hljóðveri
60b í Keflavík. Einsöngvarar
eru Bergný Th. Baldursdóttir,
Hördís Egilsdóttir og Margrét
Rósa Haraldsson. Marína Osk
Þórólfsdóttir leikur á þver-
flautu, Helgi Már Hannesson á
píanó, Þórólfur Ingi Þórsson á
bassa og Vilhelm Olafsson á
trommur.
Gróa Hreinsdóttir sagði að
ákveðið hefði verið að gefa út
geisladisk í framhaldi af vel
heppnuðu tónleikaferðalagi
sem kórinn fór í til Bandaríkj-
anna s.l. vor. „Kórinn hélt tón-
leika í vor á Islandi og sló al-
gerlega í gegn. Við áttum líka
svolitla peninga afgangs eftir
Bandaríkjaferðina og í samráði
við foreldra var ákveðið að
nota þá til að gefa út geisladisk.
Við gerum ráð fyrir að geisla-
diskurinn verði kominn í versl-
anir um miðjan desember en
hann verður líka til sölu hjá
kórfélögum", sagði Gróa.
Söngskemmtun
á laugardaginn í
Y tr i-Nj ar ð víkur kir kj u
Karlakórinn Lóuþrælar, Sönghópurinn
Sandlóur og Karlakór Keflavíkur halda
sameiginlega tónleika í
Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn
4. desember kl. 17.
Söngstjórar: Ólöf Pálsdóttir og
Vilberg Viggósson.
Undirleikur: Píanó: Agota Joó
Harmonikka: Þorvaldur Pálsson
og Ásgeir Gunnarsson
Gítar: Þorvarður Guðmundsson
Bassi: Gunnar Ingi Guðmundsson
Tvísöngur Arnar og
Eyjólfur Gunnarssynir
Einsöngur Steinn Erlingsson
Glæsilegar dömu- og herra leðurtöskur.
20% afsláttur
Bókabúið KefhuríJkwr
SÓLVALLAGÖTU 2 • SÍMI 421 1102