Víkurfréttir - 20.07.2000, Síða 12
Grunaðup
umfíkni-
efnaneyslu
Tilkymit var um 11111- I
I'erðai'slys á Vogavegi |
ináiiu(la}>inn 17. jiilí kl. !
22:18. I'arna liaf’Oi liiliciO vcriA
vkiil á Ijósaslaur ng lial'ói iikii-
inaOtirinn, sent var eiim í liíln-
iim, linuiö liiiliu)liii)>K <>H var
liann flulliir á Sjúkraluis Suí)- i
uriiL'sja lil nólilyiiiiingur. Ilaiin
Viir uriinaOiir iiin aö vcra undir
álirifuin líknÍL'liia oj> vnru lckin
lir linimiii raiiiisnkiiarsýni.
Atvinna
Óskuin eftir að ráða starfsfólk til ræstinga
í Heiðarskóla og leikskóla Reykjanesbæjar.
Umsóknum skal skila á skrifstofu
Víkurfrétta fyrir 1. ágúst
merkt „Ræsting”
á umsóknareyðublöðiun sem þar fást.
NEYÐAR- OG
ÞJONUSTUSIMAR
Neyöarlína allra landsmanna 112
Lögreglan 421 5500
Slökkviliö 421 2222
Sjúkrabíll 421 2222
Læknavakt - tannpínuvaktin 422 0500
Sjúkrahús 422-0500
Kvennaathvarf (opið allan sólarhr.) 800 6205
Neyöarmóttaka vegna nauögunarmála Rauöakrosshúsiö (oplö allan sólarhr.) 525-1710 800 5151
Upplýsingar um færö á vegum 1777
Jesús Kristur er svarið
Snnikonui oll liinniludniiskvold
kl. 20.00. Allii volkoinnii.
li.un.i <></ Inlfijni 0.i:i,n nkni n.i
siinnnil.ifiii kl. I 1.00.
I lvil.isiiiiiiiil.irki.in V<'<iui iiui
I I.iIii.ii iinlu íl‘l, Krll.ivik
VEFSÍÐA: www.gospel.is
Magnús Jóhannsson stöðvarstjóri Ökuleiða skrifar:
Frumhlaup SBK
Iviðtali við framkvæmda-
stjóra SBK í DV11. júní sl.
ber framkvæmdastjóri
SBK Ökuleiðamönnum sög-
una illa. Hann segir það
skelfilega þjónustu hjá öku-
mönnum Ökuieiða að neita að
aka farþegum í veg fyrir
rútuna sem fer til Reykjavíkur.
Geri þeir það taki þeir 1000 kr
fyrir sem hann segir helmingi
of hátt. Því er til að svara að
gjaldið er 1000 kr. þangað skv.
mæli.
Þeir farþegar sem hann segir
„sína“ farþega við flugstöðina,
hafa aldrei verið „hans“ farþegar.
Við höfum bent fólki á að það sé
jaíh dýrt að taka bíl að rútunni til
Reykjavíkur og þurfa síðan að
taka leigubíl þar aftur, eins og að
sameinast um leigubíl fyrir 2000
kr hvert sæti í litlum bíl og 1500-
2000 kr í stórum bíl. Þannig
kemst fólk beint á áfangastað
milliliðalaust fyrir sama gjald.
SBK fór upp á flugstöð og „stal
sér“ um 60 farþegum áður en
verkfallsverðir Sleipnis komu á
staðinn og stöðvuðu bílstjóra
fyrirtækisins. Þar náði fyrirtækið
sér í u.þ.b. 50 þúsund krónur.
Einar segir Ökuleiðamenn verja
flugstöðina með kjafti og klóm
og vilja sitja einir að öllum
farþegum þar, en það vill þannig
til að í verkfalli sem þessu em
leigubifreiðastjórar þeir einu sem
mega taka þar farþega utan hópa
gegn gjaldi. Einar segir enn
fremur að leigubifreiðastjórar
taki tugi þúsunda fyrir farið til
Reykjavíkur, sem að sjálfsögðu
er ekki svaravert því hann veit
mun betur. Enda bað Einar
afsökunar á þeim mistökum í
DV 11. júní, því þetta dettur
engum leigubifireiðastjóra í hug.
Einar segir einnig að SBK hafi
fullan rétt til að sækja fólk að
Leifsstöð og hafi verið að
bregðast við neyðarástandi sem
leigubifreiðastjórar hafi skapað.
Því er til að svara að þeir hefðu
ekki verið reknir frá stöðinni ef
þeir hefðu haft rétt til að vera þar.
Leigubifreiðastjórar hafa að
sjálfsögðu ekki skapað neitt
neyðarástan. Þeir tóku málið í
sínar hendur og forðuðu fólki frá
neyðarástandi með að safna því
saman í bílana á sætagjaldi eins
og fyrr segir í þessari grein. Þetta
gerðu þeir að mínu áliti mjög vel
þannig að enginn þurfti að bíða
meira en u.þ.b. 20-30 mínútur
eftir bíl í góðu veðri. Mér finnst
að leigubifreiðastjórar eigi heiður
skilinn fyrir framtak sitt því
flugfarþegar vissu ekkert um
þetta verkfall þegar þeir komu í
Leifsstöð, þrátt fyrir að það hafi
staðið yfir í 3-4 vikur. Margir
farþegar vom þar að auki með
nokkurra daga gamla miða í
Kynnisferðarútur.
Þá segir Einar að Ökuleiðir hafi
brotið á þeim lög. Afskipti okkar
af þeim hafa ekki verið önnur en
þau að við undmðumst hvað þeir
væm að gera í Leifsstöð í miðju
verkfalli. Mig grunar að
Kynnisferðir eigi frumkvæðið að
þessu ffumhlaupi SBK, þar sem
Kynnisferðir eiga um 34% í
fyrirtækinu. Mér finnst bifreiða-
stjórar SBK sýna litla fyrir-
hyggju með því að fara inn í störf
Sleipnisfélaga því eflaust munu
þeir sjálfir einhvem tíma þurfa
aðstoð í launadeilu.
I grein í Víkurfréttum fimmtu-
daginn 13. júlí er talað um
sameiginlega gjaldskrá, en sama
gjald er alltaf yfir allt landið. Þar
segir einnig að forsvarsmenn
leigubílastöðva hafi ætlað að
koma sér saman um verðskrá á
fundi þriðjudaginn 11. júlí. Þessi
frétt er hins vegar úr lausu lofti
gripin, því verðskráin kemur frá
samkeppnisstofnun og breytast
mælar bílanna samkvæmt því.
Við emm þannig háðir verðlags-
eftirliti ffá stofhuninni.
í grein Víkurfrétta er haft eftir
Berglindi í upplýsingamiðstöð
flugstöðvarinnar að það séu
nokkrir svartir sauðir í leigu-
bílastéttinni. Væri mjög æskilegt
að hún benti á þessa svörtu sauði
eða tæki orð sín til baka.
í viðtali við Emu Hauksdóttur
framkvæmdastjóra samtaka
ferðaþjónustunnar í fyrmefndri
grein í DV, fullyrðir hún að
leigubifreiðastjórar hafi mkkað
ferðamenn um allt að 30 þús. kr.
Hún hlýtur að þurfa að standa
við þetta öðruvísi en sem
fullyrðingu út í loftið. Hún hlýtur
að gera sér grein fyrir sem
framámaður ferðaþjónustunnar
að það hljóti að skaða ferða-
þjónustuna í heild að kasta ffam
slíkum ummælum. Einnig myndi
ég vilja koma á framfæri að
stríðsfréttir fjölmiðla um þessi
verkfallsmál og nýafstaðinn
jarðskjálfta hafa að mínu áliti
skaðað ferðaþjónustuna um
hundruð þúsunda og hrætt
tilvonandi ferðamenn frá íslandi.
Vona ég að viðkomandi aðilar
slaki á stóryrðum sínum í
fréttaflutningi af slíkum at-
burðum í framtíðinni, því öll
þurfum við að vinna saman til
þess að fá ásættanlega útkomu.
Magnús Jóhannsson
Stöðvarstjóri
bifreiðastöðvarinnar Ökuleiða
í Keflavík
12