Víkurfréttir - 20.07.2000, Qupperneq 23
Víðirítoppbaráttu
Víðir Garði er í hörkubaráttu í 2.
deild karla í knattspymu. Liðið
hefur hlotið 16 stig í deildinni og
er í fjórða sæti. Annað og þriðja
sæti deildarinnar eru ekki langt
undan, en KS er einnig með 16
stig í þriðja sætinu og
Afturelding er í öðru sæti með
17 stig.
Víðir lék gegn Selfyssingum sl.
fimmtudag og vann leikinn 2-1
með mörkum frá Guðjóni Ama
Antoníussyni og Gunnari
Sveinssyni.
í kvöld tekur Víðir á móti Leikni
á Garðsvelli.
Stónsigup Reynis
Reynir Sandgerði gerði góða
ferð á Seltjarnarnesið sl.
fösmdag þegar liðið vann Gróttu
með fjómm mörkum gegn einu.
Arigylfason skoraði tvö mörk
fyrir Reyni, en Hafsteinn Þór
Friðriksson og Guðmundur
Sigurðsson skoruðu eitt mark
hvor.
Reynir er nú í þriðja sæti B-riðils
þriðju deildar með 15 stig, eins
og Haukar sem eru í öðm sæti.
Toppliðið er heldur ekki langt
undan, en það er KFS sem er
með 17 stig.
Annað kvöld kl 20.00 tekur
Reynir á móti ÍH, sem vermir
botnsæti riðilsins. Leikurinn fer
fram í Sandgerði.
Fjögunra stiga
lopysta Njarðvíhur
Njarðvíkingar eru að gera það
gott í A-riðli 3. deildar í
knattspymu. Níu umferðum er
lokið og trónir Njarðvík nú á
toppnum með 23 stig, fjórum
stigum meira en Bmni, sem er í
öðm sæti.
Njarðvíkingar léku sl. föstudag
gegn nágrönnum sínum
Þrótturum úr Vogum og unnu
þann leik örugglega, 4-2. Gísli
Þór Þórarinsson skoraði tvö
mörk í leiknum, en Guðni
Erlendsson og Sævar Eyjólfsson
skomðu eitt mark hvor.
Næsti leikur Njarðvildnga verður
svo í Njarðvík annað kvöld, kl.
20:00 og tefla heimamenn lík-
legafram nýjum leikmanni í
leiknum á morgun, en Snorri
Már Jónsson er gegninn til liðs
við Njarðvíkinga frá Keflavík.
IMíu iíp Gpindavík og Keflavík
Níu körfuboltastúlkur úr
Keflavík og Grindavík héldu til
Gíbraltar sl. mánudag, með
stúlknalandsliði fslands í körfu-
bolta, til þátttöku í Evrópumóti
smáþjóða.
Fimm stúlkur em frá Keflavík,
en það eru þær Gréta Guð-
brandsdóttir, Guðrún Guð-
mundsdóttir, Sunna Björg
Reynisdóttir, Svava Osk Stefáns-
dóttir og Theódóra Káradóttir.
Fjórar em úr Grindavík, en það
eru Erna Rún Magnúsdóttir,
Jovana Stefánsdóttir, Olöf Helga
Pálsdóttir og Petrúnella Skúla-
dóttir.
Milan Jankovic er að vonum
ánægður með árangur síns
liðs í Landssímadeildinni.
Hann segir markmiðið fyrir
mótið hafa verið að vera
meðal fimm efstu liða í
deildinni og nú séu þeir í
góðri aðstöðu til að ná því
markmiði. „Markmið okkar
hafa ekkert breyst þrátt fyrir
góðan árangur fram að
þessu. Allt fyrir ofan fimmta
sætið er bónus fyrir okkur“,
sagði Milan í samtali við Vf
sl. þriðjudag og bætti því við
að það væri mjög gott fyrir
Grindavíkurliðið að verða í
öðru til þriðja sæti fyrir
síðustu þrjár umferðir
mótsins, því þá á liðið
heimaleiki við KR og Fylki
og útileik gegn ÍBV. „Þessar
síðustu umferðir verða mjög
erfiðar og það verður ekki
fyrr en í lokaumferðinni sem
úrslitin ráðast“, sagði Milan
enn fremur.
Hvað leikinn gegn Stjömunni
sl. mánudag varðar, segir
Milan að Grindavíkurliðið haft
sýnt mikla þolinmæði og
agaðan fótbolta, enda haft hann
verið mjög ánægður með sína
menn í leiknum. „Við erum í
öðru sæti núna og því í þeirri
aðstöðu að öll hin liðin leggja
fullt kapp á að vinna okkur
ásamt hinum efstu liðunum“,
segir Milan að lokum.
Tap í Kópavogi
Keflavík tapaði fyrir Breiða-
bliki 2-1 í 10. umferð Lands-
símadeildarinnar í knatt-
spyrnu sl. mánudag, en leikið
var á Kópavogsvelli. Keflvík-
ingar eru þar með komnir
niður fyrir Blika, eða í 8. sæti,
en eiga leik til góða.
Það var Guðmundur Steinarsson
sem skoraði mark Keflavíkur úr
víti, en hann er nú orðinn
markahæstur í Landssíma-
deildinni ásamt KR-ingnum
Andra Sigþórssyni.
Blikar voru betri meiri hluta
leiksins og óhætt að segja að
miðað við leik Keflvíkinga hafi
þeir ekki átt mörg stig skilin úr
jressum leik.
Nýp leikmaðup
Keflvíkingar hafa fengið enskan
miðvörð, Mark McNalli, til Iiðs
við sig. Honum er ætlað það
hlutverk að fylla skarð Liams
O’Sullivan, sem var kallaður
heim til Skotlands á dögunum.
McNalli, sem er 29 ára gamall, á
nokkuð langan feril að baki, en
hann hefur leikið með liðum á
borð við Stoke City, Southend,
Dundee United og Ayr United,
ásamt yfir 100 leikjum með
Celtic.
Gunnleifun í landsliðið
Gunnleifur Gunnleifsson,
markvörður Keflvíkinga hefur
verið valinn í landsliðshóp
íslands, en liðið mætir Möltu 27.
júlí nk. Þetta er í fyrsta sinn sem
Gunnleifur er valinn í A-
landsliðið í knattspymu, en hinn
markvörðurinn í landsliðs-
hópnum að þessu sinni er öllu
reyndari, en það er Birkir
Kristinsson. Gunnleifur mun
hefja æfingar með landsliði
íslands í næstu viku, undir stjóm
fyrrum þjálfara síns, Atla
Eðvaldssonar.
Kemur
hrikalega
sterkur inm
Bílar til leigu
á staðnum
18-22 virka daga
14-22 föstudaga
13-22 laugard. og sunnud.
Sími 893 1992
Daglega á Netinu • www.vf.is
23