Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 19.10.2000, Síða 18

Víkurfréttir - 19.10.2000, Síða 18
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suóurnesjum haldinn í Garðinum: Safnamál og ferðamennska þurfa að haldast í hendur Reynir Sveinsson (D), bæjarfulitrúi í Sand- gerði, benti fundar- mönnum á aðalfundi SSS á nauðsyn þess að tengja safna- mál og ferðamennsku saman þegar unnið er að áætlunum í tengslum við það og einnig þurfi byggðalögin að vinna betur saman að markaðsetn- ingu svæðisins. Ályktun fundarins fólst í að óskað er eftir við Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykja- nesbæjar að vinna að tillögu- gerð um hvernig hægt væri að auka samstarf og sérhæf- ingu safna á Suðurnesju, en hvergi var komið inná ferða- mennskuna. „í þessum álykt- unum er ekki stafur um ferðamál en ferðamennskan er vaxtabroddur sem við verðum að styðja við, auk þess tengjast safnamál og ferðamennskan náið“, sagði Reynir. Hann bætti við tillög- una og lagði til að MOA og hagsmunaaðilar í ferðaþjón- ustu sameini krafta sína í að kynna Suðurnesin með markvissum hætti. Kjartan Már Kjartansson (B), bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ benti fundarmönnum á að MOA hefði unnið að samræm- ingu starfs ferðaþjónustuaðila á Suðurnesjum að undanförnu. „Þeirri vinnu er ekki lokið því viðkomandi aðilum hefur reynst erfitt að koma sér sam- an, þannig að þetta er ekkert nýtt. Mér finnst tillaga Reynis hins vegar góð og sjálfsagt að samþykkja hana“, sagði Kjart- an. Tillaga Reynis var sam- þykkt. HEKLA Steinarsson ehf. Njarðarbraut 13 • 260 Njarðvík Sími 420 5000 • Fax 421 5946 MMC Galant Glsi 09/97 ekinn 115.000 sjálfskiptur Verð kr. 1.350.000.- VW Golf Highline 04/99 ekinn 41.000 Verð kr. 1.490.000.- Toyota Carina E 03/96 ekinn 94.000 Verð kr. 850.000.- Tilboð kr. 540.000.- VWCaravella 11/96 ekinn 216.000, Diesel. Verð kr. 1.490.000.- VW Transporter D/C 03/00 ekinn 31.000 Díesel. 1.890.000.- MMC Lancer GLX 05/94, ekinn 99.000, sjálfskiptur. Verð kr. 710.000.- Kristján Pálsson þingmaður blaðar í skjölum á aðalfundi SSS í Garði um sl. helgi. Skent þjónusta vegna fjápskorts • • Oldrunar- og heil- brigðismál fengu sitt piáss á aðaifundi SSS um helgina. Þess var krafist að engar frekari tafir yrðu á bygg- ingu D-álmu og að öldrun- armál yrðu skoðuð niður í kjölin. I framhaldinu ætti að taka ákvörðun um nýt- ingu byggingarinnar. Fund- urinn krafðist þess einnig að fjárveitingavaldið niyndi skapa Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eðliiega og sanngjarnan rekstrar- grundvöll og tryggja íbúum þannig trausta þjónustu. „Suðurnesjamenn hafa á undanförnum árum sífellt mátt þola skerta þjónustu stofnunarinnar vegna fjár- skorts en aðaifundurinn ít- rekar nauðsyn þess að eðli- legt fjármagn verði tryggt til reksturs með framlögum á fjárlögum og/eða með gerð þjónustusamnings.“ Tiilagan var samþykkt ein- hljóða. Erindi um nýbúa á íslandi: Þurfum að eyða þekking- arskorti og fordómum Kristín Njálsdóttir, forstöðumaður mið- stöðvar nýbúa í Reykjavík hélt erindi á aðal- fundi Sambands sveitarfé- laga á Suðurnesjum sem haldin var sl. helgi í sam- komuhúsinu í Garði. Hvað Suðurnesin varðar þá búa fiestir útlendingar í Reykja- nesbæ en hæst hlutfall þeirra er í Garði, eða 8,5% af íbúa- fjölda. Pólverjar fjölmennastir I erindi Kristínar kom fram að Pólverjar væru fjölmennasti innflytjendahópurinn á íslandi og að gríðarleg aukning hafi orðið á umsóknum um íslenskt ríkisfang á undanfömum miss- emm. Hún lagði áherslu á að þessar breytingar kölluðu á gagnkvæma aðlögun Islend- inga og nýbúa. „Sá misskilningur er algengur að flestir innflytjendur séu asískir en sú er ekki raunin. Stærsti hópurinn kemur frá Evrópu, og langflestir frá Pól- landi, en það fólk er fremur líkt okkur í útlit og sker sig síður úr hópnum“, sagði Kristín. Útlendingum fjölgar á íslandi Á tímabilinu 1998-1999 fjölg- aði útlendingum um 12% en það stefnir í að það verði 15- 16%, aukning erlendra ríkis- borgara 1999-2000. Pólverjum fjölgar mest, en einnig Tælend- ingum og Filippseyingum. Flestir útlendingar búa á höfuð- borgarsvæðinu en Pólverjamir skera sig úr hvað það varðar því algengast er að þeir búi utan höfuðborgarinnar og vinni í fiski. Flestir búa í Reykjanesbæ Suðumesin em yfir landsmeð- altali varðandi hlutfall útlend- inga á svæðinu, en það er 4,5%, alls 616 manns. Flestir útlendingar em í Reykjanesbæ, 294 sem er 2,8% hlutafall af íbúafjölda. I Garðinum búa um hundrað útlendingar en hlutfall af íbúafjölda er hæst þar, eða 8,5%. Sandgerði er einnig með hátt hlutfall útlendinga, 5,8% eða 76 einstaklinga. I Grinda- vík búa rúmlega hundrað út- lendingar sem er 4,6% hlutfall af íbúafjölda bæjarins. Á Vatnsleysuströnd búa 43 út- lendingar, eða 5,9% af íbúa- fjölda. Áf 616 útlendingum á Suður- nesjum er rúmlega þriðjungur Pólverjar. Næstfjölmennasti hópurinn kemur frá Danmörku, Færeyjum og Grænlandi, eða 81 einstaklingur. Bandaríkja- menn eru 63, Tælendingar 41 og frá Júgóslavíu koma 34 ein- staklingar og sömuleiðis frá Filippseyjum. Þarf að leiðrátta launamun Kristín benti á að meðallaun útlendinga_ væru mun lægri heldur en Islendinga í sömu störfum, þrátt fyrir að útlend- ingar væm yfirleitt í láglauna- störfum. „Þetta er athugunar- vert og ég tel að vinnuveitend- ur og verkalýðshreyfingin ætti að skoða þetta mál mjög alvar- lega“, sagði Kristín og bætti við að nauðsynlegt væri að eyða fordómum og þekkingar- skorti gagnvart útlendingum sem hér búa. „Það er mikilvægt að nýbúar nái tökum á íslenskri tungu en margir eiga erfitt með að læra tungumálið, því verður að mæta þessu fólki af skiln- ingi. Fólk getur orðið mjög ein- angrað þegar það getur ekki tjáð sig og þá reynir á hæfni og umburðarlyndi á báða bóga, gagnkvæm aðlögun útlendinga og íslendinga", sagði Kristín. Þurfum á erlendu vinnuafli að halda Að sögn Kristínar hefur Qölgun útlendinga á íslandi verið í takt við aukna þenslu í þjóðfélaginu þar sem Islendingar hafa ekki haft nægilegt vinnuafl til að mæta þenslunni. „íslenskt sam- félag verður háðara erlendu vinnuafli á næstu árum. Eins og staðan er í dag er skortur á heildstæðri stefnu stjómvalda gagnvart útlendingum, þ.e. reglur og löggjafir stangast á gagnvart þessum hópi. Þetta verður að laga. Stjórnvöld verða að móta sér ákveðna stefnu því þetta fólk á að geta tekið virkan þátt í samfélaginu, óháð uppruna." m Texti og myndir: Silja Dögg Gunnarsdóttir 18

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.