Víkurfréttir - 25.01.2001, Blaðsíða 14
Öfugþróun hafnarmála?
fússonar samgönguráðherra var ember 1990 var hafnarstjóra
eftirfarandi: falið að láta gera gróflega
kosmaðaráætlun og uppdrátt að
Árið 1990:
Innsigling í Njarðvík, dýpkun hennar ................ 6,9 mkr.
Innsiglingarmerki í Njarðvík ........................ 2,6 mkr.
Samtenging hafnanna í Kef.-Nvík með vegi ............ 21,3 mkr.
Viðgerð á keri hafnargarðsins í Keflavík............. 4,1 mkr.
1. áfangi við grjótfyllingu í Keflavík............... 41,5 mkr.
76,4 mkr.
Árin 1991 -1992:
2. áfangi við grjótfyllingu í Keflavík............ 77,1 mkr.
Grjótgarður í Njarðvík lengdur um 60 m............ 41,5 mkr.
Smábátahöfn í Njarðvík 1. áfangi.................. 32,9 mkr.
151,5 mkr.
Hafnnrmálin og staða
Hafnarsamlags Suð-
urnesja hafa verið í
brennidepli að undanförnu.
Þorsteinn Arnason, sem er
varamaður í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar (B) og for-
maður stjórnar HASS, fjallar
hér að neðan um stöðu hafn-
armála og kemur þar víða
yið.
Olafur Thordersen fer mikinn í
grein sinni í Bæjarmálablaðinu,
blaði Samfylkingarinnar, og
vitnar í þann ágæta mann
Ragnar Halldórsson. Ólaft er
vorkunn ef hann hefur ekki
haldbetri rök fyrir sínum skrif-
um en R.H. Hann hefði ekki
þurft að leita langt yfir skammt.
Agætir fyrrum samstarfsmenn
mínir í hafnarstjóm, þeir Odd-
bergur Eiríksson og Guðfinnur
Sigurvinsson flokksbræður
Ólafs, hefðu getað uppfrætt
hann um sögu hafnarinnar
langt aftur í tímann.
Viðhaldi ekki slnnt vegna fjárskorts
Ég hef ekki hugsað mér að fara
lengra aftur en til ársins '89
þegar verið var að undirbúa yf-
irtöku bæjanna Keflavík og
Njarðvík á Landshöfn Kefla-
vik-Njarðvík, sem var þá í eigu
rikisins. í bréfi dags. 23.10.
1989 segir á einum stað: „Meg-
inrök fyrir skilmálum af hendi
sveitarfélaganna eru þau, að
landshöfnin haft veirð afskipt
við ákvörðun um fjárveitingar
til hafna síðustu ár. Þetta hafi
valdið því að lágmarksviðhaldi
hafi ekki verið sinnt vegna fjár-
skorts og því sé ástand hafn-
anna nú orðið slíkt, að yfirtaka
sé óhugsandi nema til komi
samningur um verulegar fjár-
veitingar á næstu árum til að
vinna upp fjársveltið”. Þetta er
úr bréfi sent 23.10. 1989, þá-
verandi samgönguráðherra
Steingrími Sigfússyni, undirrit-
að af Guðfinni Sigurvinssyni
og Oddi Einarssyni þáverandi
bæjarstjórum. Yfirtakan fór
fram 31.12. 1989.
Sættumokkurviðástandið
í afsalsbréfi stendur í 2. gr.
„Framangreindum eignum er
afsalað í núverandi ástandi,
sem afsalshafi hefur rækilega
kynnt sér með skoðun og sættir
sig við í alla staði.”
Já, við verðum að sætta okkur
við ástandið eins og það var
um annað var ekki að ræða.
Hafnarstjómarmenn gátu ekki
lengur horft á hafnarmannvirk-
in grotna niður og sitja hjá
meðan aðrar hafnir vom í upp-
byggingu.
Framkvæmdaáætlun lögð fyrir
í framkvæmdaáætlun sem
fylgdi í bréfi til Steingríms Sig-
Sjöstjarnan gjaldþrota
Eftir yfirtöku bæjanna hófst sú
uppbygging sem staðið hefur
sl. 11 ár og Ólafur telur hina
örgustu „öfugþróun”. Þrátt fyr-
ir að hafnarstjóm hafi í möig ár
reynt að fá styrkveitingar til
viðhalds og endurbóta hafnar-
mannvirkja sá ríkið aldrei
ástæðu til að verða við óskum
heimamanna. Það voru því
mörg mál sem biðu úrlausnar
eftir yfirtöku.
Eitt af fyrstu málunum sem far-
ið var í var tillaga ífá Kristjáni
Pálssyni, þá nýráðnum bæjar-
stjóra í Njarðvík, um að höfnin
keypti húseignir Sjöstjömunnar
í Njarðvík. Ekki var það beint á
óskalista hafnarinnar að kaupa
húseignir, en vegna stöðu at-
vinnumála í Keflavík og Njarð-
vík þótti það verjandi. Hús-
eignir Sjöstjörnunnar voru
keyptar, hluti þeirra síðan
leigður F.M.S. og frystihúsið
sjálft selt Vogum h.f.
Hjá Vogum h.f. fengu tugir
manns vinnu á sínum tíma, en
vegna aðstæðna sem allir þekk-
ja varð fyrirtækið gjaldþrota.
Hafi þeir feðgar Garðar og Sig-
urður þó þökk fyrir að reyna.
Kaupin á Sjöstjörnunni er
kannski hægt að gagnrýna í
dag, en ekki á þeim tíma sem
þau vom gerð.
Grófin
í nóvember 1990 gerði hafnar-
stjórn grein fyrir staðarvals-
skýrslu um smábátahöfn. Stað-
arvalið stóð um smábátahöfn
vestan við Skipasmíðastöð
Njarðvíkur í Njarðvík eða í
Gróf. Eftir kostnaðarúttekt af
Hafnamálastofnun var ákveðið
að gera smábátahöfn í Gróf.
Framkvæmdir hófust í enda
ársins 1991 og var lokið 1995.
Höfnin var vígð 27.11.1992. í
dag getur enginn borið á móti
því að höfnin er bæjarprýði og
nauðsynleg. Var þetta öfugþró-
un Ólafur ?
Helguvík - Iðnaðarhöfn.
A fundi hafnarstjómar í nóv-
viðlegukanti í Helguvík. Enn-
fremur var honum falið að
kynna fyrir olíufélögunum þá
aðstöðu sem í boði er í Helgu-
vík og óska eftir viðræðum við
þá. Eftir sveitarstjórnarkosn-
ingar 1994 var hafist handa um
gerð viðlegukants, og var á
sama tíma hafin bygging á húsi
loðnuflokkunarstöðvar, sem að
stóðu framkvæmdamenn á
Suðumesjum. Ari seinna hóf
S.R. mjöl h.f. byggingu
bræðslu við viðlegukantinn.
Þessi fyrirtæki hafa haft góða
starfsemi á svæðinu. Þó svo
allar áætlanir haft ekki staðist
hefur þetta skilað dágóðum
tekjum í hafnarsjóð og enn-
ífemur til bæjarsjóðs í formi út-
svars og fasteignaskatta. Mal-
bikunar og steypustöð hefur
risið við höfnina og núna ný-
lega sementssíló. Talsverðar
tekjur eru af vöru- og hafnar-
gjöldum vegna þessara fyrir-
tækja. Ekki held ég að það sé
spurning um hvort, heldur
hvenær allt flugvélaeldsneytið
fari um höfnina í Helguvík.
Ennþá eru áætlanir um
Magnesíumverksmiðju uppi á
borðinu og verður þá Helguvík
aðal upp- og útskipunarhöfn.
Hafnargaröurinn í Keflavík
í lok september 1995 skemmd-
ist hafnargarðurinn í Keflavík í
miklu óveðri. Það kom ekki
þeim sem til þekktu verulega á
óvart, því vitað var að það
þyrfti að styrkja hann nteð
grjótvöm. A óskalista hafnar-
stjómar um framkvæmdir var
árið 1982 fyrst farið fram á
styrkveitingu fyrir grjótvöm og
síðan á hverju ári eftir það, en
það var ekki fyrr en rétt áður
skaðinn var skeður að styrk-
veiting fékkst. Það var vel að
því verki staðið og hefur þetta
gert höfnina í Keflavík að ntjög
góðri liöfn, en Keflavíkurhöfn
er með dýpstu höfnum lands-
ins. Til þess að koma öllu því
stórgrýti sem þurfti við gerð
brimvarnargarðsins varð að
fyíla upp og gera veg neðan
Hafnargötu og inn á Básveg á
kostnað hafnarinnar. Hafnar-
stjóm hefur áður staðið í vega-
framkvæmdum, því árið 1990
- 91 var gerður tengivegur
milli hafnanna í Keflavík og
Njarðvík.
Hafnasamlag Suöurnesja
Hafnasamlag með Vatnsleysu-
strandarhreppi og Gerðahreppi
var stofnað 20. janúar 1997.
Áætlanir vom gerðar um fram-
kvæmdir á fyrmefndum stöð-
um ef af sameiningu yrði. Strax
eftir sameiningu var ráðist í
framkvæmdir í Vogum, sem er
að mestu lokið og er mikil
prýði fyrir Vogamenn.
I Garði er búið að efna lítinn
hluta þess, sem átti að gera.
Ekki er fullljóst hvert fram-
haldið verður, þar sem Vogar
hafa sagt sig úr hafnasamlag-
inu, enda er þeirra tilgangi náð,
sem þeir hefðu annars ekki
fengið.
Slæm fjárhagsstaða HASS
Ég dreg engan dul á að fjár-
hagsleg staða hafnarinnar er
erfið í dag. Það er ekki alltaf
sem allar áætlanir standast á
tíma, en það er ekkert sem
bendir til annars en uppbygg-
ing hafnanna og endurbætur
eigi eftir að skila sér í ríkum
mæli til hagsbóta fyrir alla íbúa
Reykjanesbæjar um langa
framtíð.
Að lokum vil ég vitna orðrétt í
niðurlag greinar Óla Thorder-
sen: „Ég sem bæjarfulltrúi í
Reykjanesbæ og félagar mínir í
Samfylkingunni munum gera
allt sem í okkar valdi stendur til
að snúa við þessari öfugþróun
og að hafin verði myndarleg
endurreisn hafnarmála hér á
Suðumesjum.”
Ekki öfugþróun
Eitthvað hefur skort á að þú
haftr fylgst með eða hvað Óli
minn? Atti kannski að standa
„niðurrif' í stað endurreisn? Ég
held að öllum sé ljóst að þær
framkvæmdir sem að framan
eru taldar séu gerðar af mikilli
framsýni, en ekki „öfugþróun”
eins og Ólafur heldur fram í
grein sinni.
Menn geta velt því fyrir sér
hverning útlitið væri hefðu
Samfylkingarmenn ráði hér
málum. Hafnargarðurinn í
Keflavík væri horfinn og senni-
lega allar bryggjurnar líka.
Enginn viðlegukantur í Helgu-
vík, engin aðstaða til uppbygg-
ingar hafnsækins iðnaðar, eng-
ing smábátahöfn í Gróf = þ.e.
hafnlaus sjávarbær.
Þorsteinn Árnason,
formaður stjórnar
Hafnasamlags Suðurnesja
Eftirtalin tafla sýnir helstu framkvæmdir:
Samtals í þúsundum króna:
Tengibraut milli hafnanna í Keflavík og Njarðvík ... 44,1
Dýpkun í Njarðvíkurhöfn........................... 23,2
Smábátahöfnin í Gróf............................ 142,3
150 m viðlegukantur Helguvík.................... 178,4
Grjótvarnargarður í Keflavík...................... 67,3
Strandvegur v/grjótvörn Keflavík ................. 10,7
Tjónakostnaður aðalhafnargarðs í Keflavík....... 18,9
Keflavík/Þekja, Ijósamastur, vatns- og rafm.lagnir . 17,4
Lýsing, lagnir þekja í Helguvík................... 52,8
Grjótgarður Vogum................................. 32,5
Malbik, þekja/ljós Vogum........................... 6,8
Grjótvörn Garði................................... 14,9
Önnur verk, vegir og framkvaemdir................. 47,8
Samtals: ........................................ 657,1
- Ríkisframlag v/ framkvæmda ....................-263,9
Fjárfesting án ríkisframlags samtals:............ 393,2
14