Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 2
VP FRETTIR Jónína baksviðs á Rammstein Fugla- og fjQlskyldulíf að Norðurkoti í Sandgerði ^eð fangið fullt af tvíburum mótgBp/ÐrumjL^ f Sigrúnu er 85 ára J með sunddellu Maddý helaur miúio upp á UMFN IMýtt TVF í næstu viku! og framtíðin í pólitíkinni nftar Eyjólfsson - Gummi Steinars í fótspor pabba ... og margt fíeira! Hjá okkur færðu alltaf A* rryja nimu með hverri framköllun ...það munar um minna | l'rainkölluuarþlánusla HAFNARGOTU 52 KEFLAVÍK SlMI 421 4200 ■ Maður hrapar til bana á Reykjanesi: Aðstæður á slysstað voru mjög erfiðar. Fyrstu björgunarmenn þurftu að ganga í um 20 mínútur að slysstaðnum. Björgunapstarf við erfiðar aðstæður Varnarliðsmaður hrap- aði til bana í klettum á Reykjanesi aðfaranótt mánudags. Tilkynning um slysið barst Neyðarlínunni rétt eftir miðnætti. Þá hafði fétagi mannsins hlaupið í hálfa klukkustund eftir hjálp en fyrir tilviljun var fólk í vitavarðarbústaðnum á Reykjanesi sem gat kallað til hjálp. Björgunarlið frá Bmnavömum Suðumesja fór þegar af stað. Aksturinn út á Reykjanes tók um 20 mínútur og síðan þurftu menn að ganga uni 20 mínútna leið að slysstaðnum sem var í rúmlega 20 metra háu bjargi. Maðurinn var við tvo aðra í klettaklifri og var nær kominn upp á bjargbrúnina þegar hann missti takið og féll aftur fyrir sig ofan í stórgrýtta fjömna. Hann er talinn hafa látist sam- stundis. Félagar mannsins reyndu endurlífgun en án árangurs. Björgunarsveitarfólk ffá Björgunarsveitinni Suðumes og Björgunarsveitinni Þorbimi var einnig kallað til. Björgun- arsveitarmenn aðstoðuðu sjúkraflutningsmenn að komast niður í fjömna skammt ffá og undirbjuggu einnig að fara niður bjargið þar sem maður- inn féll. Það vom hins vegar björgunarmenn úr Grindavík sem komu hinum látna í slöngubát sem flutti líkið til Grindavíkur. Þaðan var hinn látni fluttur til Keflavíkur. Hinn látni var 22 ára gamall Vamarliðsmaður á Keflavíkur- flugvelli. Happa- sœll KE á heim- siglingu Netabáturinn Happasæll KE 94, sem verið hefur í smíðnm í Kína, lagði af stað áleiðis til Islands sl. fóstudag. Búist er við því að tog- og nótaskipið Guðrún Gísladóttir KE fylgi í kjölfar- ið einhvern næstu daga. Happasæll KE er tæpir 29 metrar á lengd. Skipið er sér- hannað til netaveiða af Skipa- tækni ehf. og er það smíðað fyrir Guðmund Rúnar Hall- grímsson útgerðarmann í Keflavík og fjölskyldu hans. Sigmar Ólafsson hefur séð um eftirlit með skipinu á smíða- tímanum fyrir hönd Skipa- tækni ehf. Töluverðar seinkanir hafa orð- ið á afhendingu skipanna sem verið hafa í snn'ðum fyrir ís- lenska útgerðarmenn í Kína. Sigmar segir þessar seinkanir vera af ýmsum ástæðum. Helsta skýringin sé sú að skipasmíðastöðin í Guangzhou hafi vanmetið gæðakröfur Is- lendinga og tekið fyrir of möig verkefni í einu. T.d. hafi hún verið með sjö skip í smíðum fyrir íslenskar útgerðir auk smíða á fjölmörgum skipum fýrir heimamarkaðinn. Að sögn Sigmars má e.t.v. líta á þessa seinkun sem „bamasjúkdóm” hjá kínversku stöðinni hvað varðar smíði á skipum fyrir Vesturlönd en erfitt sé að kenna um almennu reynsluleysi því haldið var upp á 150 ára rekstr- arafmæli stöðvarinnar fyrir skömmu. Birt með góðfúslegu leyfi frá InterSeafood.com Nýr Happasæll KE lagður af stað heim til íslands. Mynd: lnterSeafood.com Akœrð fyrir sölu og innflutning fíkniefna Hjón á fimmtugsaldir hafa verið ákærð fyrir sölu á fíkinefnum í Keflavík árið 1999. Lögregla hóf viðamikla rannsókn eftir að ábendingar bárust um sölu og innflutning á fíkniefn- um. Maðurinn er ákærður fyrir inn- flutning á 15 gr. af hassi, 10 gr. af amfetamíni, kókaíni og mari- júana í júlí 1999. Konan er sök- uð um sölu á einu grammi á amfetamíni í ágúst 1999 auk þess sem bæði eru ákærð fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum þegar leitað var á heimili hjón- anna. VIKUR FRÉTTIR Útgefandi: Vikurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Njarðvik, simi 421 4717, fax 421 2777 Ritstjóri: Páll Ketilsson, simi 893 3717 pket@vf.is • Framleiðslustjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 898 2222 hbb@vf.is • Fréttastjóri: Silja Dögg Gunnarsdóttir, sími B9Q 2222 silja@vf.is • Blaðamaður: Svandis Helga Halldórsdóttir, svandis@vf.is • Auglýsingar: Jónas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is, Kristin Njálsdóttir kristin@vf.is, Jófríður Leifsdóttir, jofridur@vf.is • Hönnunardeild: Bragi Einarsson bragi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir koila@vf.is Útlit, umbrot ag prentvistun: Vikurfréttir ehf. 1 Prentvinnsla: Qddi hf • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is eöa vikurfrettir.is • Þú getur einnig tengst vf.is af visir.is og mbl.is 2

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.