Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 4
VF FRETTIR Allt nema leður og topplúga! Volkswagen Passat stw. TDI (diesel) árg. 2000 til sölu. Sjálfskiptur, ekinn 33 þús km. Mikið af aukabúnaði, t.d. Cruis Control, Radio Navigation System (kortakerfi) fullkominn 6 diska geislaspilari og 8 hátalarar. Viðarinnrétting, skíðapoki í aftursæti, innfelld öryggis- grind i farangursrými og „falið" dráttarbeisli. Dökkar filmur, Sá eini sinnar tegundar á íslandi, innfluttur nýr af Heklu. Þjónustaður af Heklu frá upphafi. Verð. 2.500.000,- Skipti á ódýrari Nánari uppiýsingar hjá K. Steinarssyni, sími 420 5000. Atvinna Pípulagningamaður óskast eða rnaður vanur pípulögnum. Upplýsingar í síma 698 6309. Neslagnir ehf. TVF næstu viku um im J?ál,t]w*ÞórÉr:, RftflSSon, er éirtn eiganjda Lífsstíls 'og-á jafnfrámt veg og vanda að undirbúningi fjol-' skyjdn- og . heilsiihátjFparinn- ar. Hann segir áþ. undirbúninghriijii lláfi gengið yet.'■' ■ Fjölskyldu- og heilsuhátíð Lífsstíls á laugardaginn: Fitness keppnin verður hápunktur dagsins Næsta laugardag, 28. júlí, verður opið hús í líkamsræktarstöðinni Lífsstfl í Keflavík. Það verður stanslaus veisla allan daginn; hljómveitir og plötusnúðar, leiktæki fyrir börnin, kynn- ingar á fæðubótarefnum og ráðgjöf og síðast en ekki síst Lifestyle fitness keppnin. Þess má geta að ágóði allra mánaðarkort sem keypt eru á heilsudeginum, rennur óskiptur til byggingar þjálf- unarlaugar Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Suðurnesja- menn eru því hvattir til að eiga góða stund með fjöl- skyldunni í Lífsstfl á laugar- daginn og styrkja gott mál- efni. Pálmi Þór Erlingsson, er einn eiganda Lífsstfls og á jafnframt veg og vanda að undirbúningi fjölskyldu- og heilsuhátíðarinn- ar. Hann segir að undirbúning- urinn hafi gengið vel og þakkar fyrirtækjum og styrktaraðilum dagsins einstaklega góðar við- tökur. „Hápunktur dagsins verður fit- ness keppnin. Nú þegar em 30 manns búnir að skrá sig, þar af 22 karlmenn og 8 konur. Karl- amir keppa í tímaþraut, upphíf- ingum, dýfum og kraftakeppni en konumar keppa bara í tíma- þraut. Sölvi Fannar og Gunnar Benediktsson munu dæma keppnina“, segir Pálmi. Breytingar á líkamsræktarstöð- inni em langt komnar að sögn Pálma og hann segist vonast til að þeim verði að fullu lokið þegar stóri dagurinn rennur upp. „Við tókum við rekstrin- um 1. maí sl. og síðan þá hefur verið stöðug aukning á aðsókn. Við leggjum okkur ffarn við að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu og bjóðum upp á bestu aðstöðu sem völ er á. Nú em t.d. komnar nýjar pemr í bekkina og við vomm að setja upp þrjár hlaupabrautir til við- bótar“, segir Pálmi. Opnaður hefur verið styrktar- reikningur í eigu Þroskahjálpar hjá Landsbanka íslands í Keflavík nr. 0142-05-7878, kennitala 520680-0129 fyrir frjáls framlög vegna byggingar þjálfunarlaugarinnar, en enn vantar töluvert fjármagn til að ljúka því verki. Söfnunarkassar Þroskahjálpar verða á staðnum á laugardaginn. Sjá nánar aug- lýsta dagskrá í VF í dag. V4CCLWI SIGURÐUR SÆVARSS0N og á Ljósanótt 1. og 2, september NÝ ÍSLENSK ÓPERA EFTIR SIGURÐ SÆVARSSON ,5S AyS-A- OPERUHATIÐREYKJANESBÆ Miðasala í Sparisjóðnum í Keflavík og í síma 421 6623 ■ Gunnar Bergmann um Kínaskipin: Erum í skyjunum með bátana Eyvindur við bryggju í Hafnarfirði. „Menn eru alveg í skýjunum og það er almenn ánægja með bátana. Það eina sem hægt er að setja ót á er málningin. Það er liðið hátt í ár frá því að bátarnir voru málaðir og það er farið að sjást á málningunni. Skyn- samlegast hefði verið að fá bátana ómálaða til landsins og sandblása þá og niála hér heima“, segir Gunnar Bergmann, útgerðarmaður Eyvindar VE, í samtali við InterSeafood.com. Eyvindur KE er einn Kína- bátanna níu sem komu til landsins með flutningaskipinu Wiebke og hefur því heyrst fleygt að búið sé að selja bátinn úr landi. Útgerðin seldi eldri bát með sama nafni fyrir einu og hálfu ári og síðan veiðiheim- ildimar í framhaldinu og var ekki annað að skilja en Gunnar og sonur hans væm að hætta í útgerðinni. „Það hefur ekkert verið ákveðið en það er rétt að ég hef heyrt að búið sé að selja bátinn til Færeyja, Svíþjóðar og Græn- lands“, segir Gunnar en hann viðurkennir að hafa leitt hugann að því að hætta í útgerðinni. „Það er alltaf erfitt að ráða í framtíðina og jregar maður fær svona bát í hendumar þá fær maður fiðring í sig og finnst að manni séu allir vegir færir. Við munum a.m.k. fara vel yfir stöðuna áður en við ákveðum af eða á“, segir Gunnar en hann upplýsir að byrjað sé að undirbúa niðursetningu á spilum frá Vélaverkstæði Sigurðar í bátana og sömuleiðis eigi eftir að koma fyrir björgunarbúnaði. 4

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.