Víkurfréttir - 26.07.2001, Síða 8
UndiPbúa stofnun nýs
olíufélags í Helguvík
Unnið er að undirbúningi
stofnunar nýs íslensks
olíufélags, Íslandsolía,
en það mun væntanlega hafa
aðstöðu í Helguvík í Reykja-
nesbæ, hjá Tankabúi Helgu-
víkur sem þar hyggst byggja
olíutanka og leigja út.
Starfsemi hefst um áramót
Ætlun fslandsolíu er að leggja
áherslu á sölu á gasolíu. Jón
Gunnar Aðils, forsvarsmaður
hópsins sem unnið hefur að
undirbúningi nýja olíufélagsins
í hálft annað ár, segir að inn-
lendir aðilar standi að málinu
en með hugsanlegri þátttöku
erlendra. Jón Gunnar segist
ekki geta upplýst nánar um
málið vegna þess að eftir sé að
ganga frá samningum. Vonast
hann til að mál skýrist á næstu
vikum og að hægt verði að
hefja starfsemi um áramót.
Mikill áhugi hjá fjárfestum
Olafur Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Markaðs- og at-
vinnumálaskrifstofu Reykanes-
bæjar, sagði að stofnun Islands-
olíu og bygging tankabús í
Helguvík væru í raun tvö að-
skilin mál sem tengdust þó
saman. Undirbúningur að
byggingu geymslutanka fyrir
eldsneyti í Helguvík hefur stað-
ið yfir í tæp tvö ár en MOA og
Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri
Hafnarsamlag Suðumesja hafa
unnið að undirbúningi verkefn-
isins. „Við vitum þann 8. ágúst
nk. hvort nægjanlegt fjármagn
fæst fyrir byggingu tankanna.
Lokað útboð hefst á næstu dög-
um en ég hef orðið var við
mikinn áhuga á hjá stómotend-
um eldsneytis og fjárfestum
enda býður staðsemingin upp á
mörg tækifæri", segir Olafur.
Skaparný tækifæri
Olafur undirstrikar að tankabú-
ið í Helguvík yrði ekki í sam-
keppni við olíufélög um sölu á
olíu, heldur yrði eingöngu um
útleigu á tankaplássi að ræða,
þ.e. olíufélögin greiða ákveðna
upphæð fyrir að fá að nota
ákveðinn rúmmetrafjölda hjá
tankabúinu.
„Ef af verður þá mun starfsemi
tankabúsins hafa verulega já-
kvæð áhrif á bæjarfélagið. Vön-
andi verður þetta til þess að ol-
íuflutningar minnki stórlega á
Reykjanesbrautinni. Þó að
akstur olíubíla sé til fyrirmynd-
ar þá væri albest ef eldsneyti
sem notað yrði á Keflavíkur-
flugvelli, yrði geymt í Helgu-
vík. Við gætum hugsanlega
einnig afgreitt skipaflotann úr
Helguvík, eða þá sem afgreiða
skipaflotann úti á rúmsjó. Þá
kæmu fleiri fyrirtæki til með að
sjá hag sinn í að koma sér fyrir
í Helguvík. Með þessu skapað-
ist líka tækifæri fyrir Flugleiði,
sem er sennilega stærsti ein-
staki eldsneytiskaupandinn á
Islandi. Þeir gætu boðið elds-
neytið út og lækkað olíukosm-
aðinn. Það hefði að sjálfsögðu
heilmikil áhrif á rekstur félags-
ins í heild sinni. Það skýtur
ekki loku fyrir að erlend olíufé-
lög gætu leigt pláss hjá tanka-
búinu í Helguvík og boðið í
eldsneyti Flugleiða, eða ann-
arra aðila sem fljúga til og frá
íslandi."
útsölumarkaður
OPNAR Á MORCUN FÖSTUDAC
í TROÐFULLUM KJALLARANUM
Komið og gerið góð kaup fyrir veturinn,
- úlpur, skíðafauxur, skíðagallar, og margt fleira
- falleg barnaföt frá Absorba, Osh Kosh og Confetti
- sundfatnaður í mörgum stærðum og gerðum
- tvískiptir útigallar og heilgallar frá Ketch
- barnaföt í miklu úrvali
Sport og barnaföt
Hafnargötu 23 - Síml 421 4922
B