Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 8
UndiPbúa stofnun nýs olíufélags í Helguvík Unnið er að undirbúningi stofnunar nýs íslensks olíufélags, Íslandsolía, en það mun væntanlega hafa aðstöðu í Helguvík í Reykja- nesbæ, hjá Tankabúi Helgu- víkur sem þar hyggst byggja olíutanka og leigja út. Starfsemi hefst um áramót Ætlun fslandsolíu er að leggja áherslu á sölu á gasolíu. Jón Gunnar Aðils, forsvarsmaður hópsins sem unnið hefur að undirbúningi nýja olíufélagsins í hálft annað ár, segir að inn- lendir aðilar standi að málinu en með hugsanlegri þátttöku erlendra. Jón Gunnar segist ekki geta upplýst nánar um málið vegna þess að eftir sé að ganga frá samningum. Vonast hann til að mál skýrist á næstu vikum og að hægt verði að hefja starfsemi um áramót. Mikill áhugi hjá fjárfestum Olafur Kjartansson, fram- kvæmdastjóri Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykanes- bæjar, sagði að stofnun Islands- olíu og bygging tankabús í Helguvík væru í raun tvö að- skilin mál sem tengdust þó saman. Undirbúningur að byggingu geymslutanka fyrir eldsneyti í Helguvík hefur stað- ið yfir í tæp tvö ár en MOA og Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri Hafnarsamlag Suðumesja hafa unnið að undirbúningi verkefn- isins. „Við vitum þann 8. ágúst nk. hvort nægjanlegt fjármagn fæst fyrir byggingu tankanna. Lokað útboð hefst á næstu dög- um en ég hef orðið var við mikinn áhuga á hjá stómotend- um eldsneytis og fjárfestum enda býður staðsemingin upp á mörg tækifæri", segir Olafur. Skaparný tækifæri Olafur undirstrikar að tankabú- ið í Helguvík yrði ekki í sam- keppni við olíufélög um sölu á olíu, heldur yrði eingöngu um útleigu á tankaplássi að ræða, þ.e. olíufélögin greiða ákveðna upphæð fyrir að fá að nota ákveðinn rúmmetrafjölda hjá tankabúinu. „Ef af verður þá mun starfsemi tankabúsins hafa verulega já- kvæð áhrif á bæjarfélagið. Vön- andi verður þetta til þess að ol- íuflutningar minnki stórlega á Reykjanesbrautinni. Þó að akstur olíubíla sé til fyrirmynd- ar þá væri albest ef eldsneyti sem notað yrði á Keflavíkur- flugvelli, yrði geymt í Helgu- vík. Við gætum hugsanlega einnig afgreitt skipaflotann úr Helguvík, eða þá sem afgreiða skipaflotann úti á rúmsjó. Þá kæmu fleiri fyrirtæki til með að sjá hag sinn í að koma sér fyrir í Helguvík. Með þessu skapað- ist líka tækifæri fyrir Flugleiði, sem er sennilega stærsti ein- staki eldsneytiskaupandinn á Islandi. Þeir gætu boðið elds- neytið út og lækkað olíukosm- aðinn. Það hefði að sjálfsögðu heilmikil áhrif á rekstur félags- ins í heild sinni. Það skýtur ekki loku fyrir að erlend olíufé- lög gætu leigt pláss hjá tanka- búinu í Helguvík og boðið í eldsneyti Flugleiða, eða ann- arra aðila sem fljúga til og frá íslandi." útsölumarkaður OPNAR Á MORCUN FÖSTUDAC í TROÐFULLUM KJALLARANUM Komið og gerið góð kaup fyrir veturinn, - úlpur, skíðafauxur, skíðagallar, og margt fleira - falleg barnaföt frá Absorba, Osh Kosh og Confetti - sundfatnaður í mörgum stærðum og gerðum - tvískiptir útigallar og heilgallar frá Ketch - barnaföt í miklu úrvali Sport og barnaföt Hafnargötu 23 - Síml 421 4922 B

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.