Víkurfréttir - 26.07.2001, Blaðsíða 10
»1 IGS
Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf., IGS,
er nýstofnað hlutafélag í eigu Flugleiða.
Hlutverk Flugþjónustunnar er að veita flugrekendum alhliða
þjónustu. Hjá félaginu starfa 500-700 manns eftir árstímum
og skiptist starfssemin í fjögur rekstrarsvið; farþegaþjónustu,
flugeldhús, fraktmiðstöð og veitingaþjónustu í
Flugstöð Leifs Eirikssonar.
Starfsmenn Flugþjónustunnar eru lykillinn að velgengni
fyrirtækisins. Við leitum eftir duglegum og ábyrgum starfs-
mönnum sem eru reiðubúnir að takast á við krefjandi
og spennandi verkefni.
1-llaðþjórmsta
Ræstideild
• Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf.,
óskar eftir að ráða starfsfólk í
sumarafleysingar í Hlaðdeild á
Keflavíkurflugvelli.
Leitað er eftir fólki sem hefur góða
samskiptahæfileika og þjónustulund.
• Um er að ræða hlutastörf.
• Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
góða kunnáttu í íslensku. Almenn
ökuréttindi skilyrði.
• Aldurstakmark er 17 ára.
Flugeldhúsið
• Fjölbreytt störf við framleiðslu og
frágang matar
• Hleðslu matar um borð í flugvélar,
aðstoð á lagerum
• Um er að ræða heilsdags-
og hlutastörf
• Aldurstakmark er 18 ára
• Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
góða kunnáttu í íslensku
• Sum störf krefjast ökuréttinda
og vinnuvélaréttinda
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu IGS í nýju Fraktmiðstöðinni
á Keflavíkurflugvelli. Umsóknarfrestur
er til og með 9. ágúst 2001.
HÖNNUN: Víkurfróttlr oht. auglýslngasmlöja
Fleiri sækja um sktlavist í FS
Ráðningar kennara
ganga vel hjá Fjöl-
brautaskóla Suður-
nesja að sögn Ólafs Jóns
Arnbjörnssonar, skólameist-
ara. Þrír kennarar láta af
störfum næsta haust og þrír
eru að fara í barnsburðar-
leyfi og snúa því aftur til
starfa. Eins og síðustu ár hef-
ur gengið erfiðlega að fá
raungreinakennara til starfa
en að sögn skólameistara er
bjart framundan í þebn mál-
um. Fleiri nemendur hafa
sótt um nám í skólanum en á
síðasta ári.
Rafiðnir vinsæiar
Umsóknum um skólavist hefur
fjölgað síðan á síðusta ári en
730 hafa nú sótt um skólavist í
dagsskóla næsta haust. Þar af
eru 182 nýnemar, stærsti hluti
þeirra sem sækja um stúdents-
nám fer á náttúrufræðibraut eða
42%. Rafiðnir hafa verið vin-
sælastar, enn er hægt að bæta
við nokkrum nemendum í tré-
og málmiðngreinar og vél-
stjóm. I haust býður FS í fyrsta
skipti upp á tölvubraut sem er
þrískipt og fyrri hluta upplýs-
inga- og fjölmiðlabrautar sem
er undirbúningur fyrir ýmis
svið margmiðlunar og prent-
iðnar.
Jöfn skipting milli
sveitarfélaga
Að sögn Ólafs Jóns em skipt-
ing nemenda milli sveitarfélaga
svipuð og á síðustu árum en
95% þeirra sem fara í fram-
haldsnám af Suðumesjum úr
árgangi fara í FS, 5% fara í
nám í annað. Flestir sem fara í
nám utan Suðumesja hafa sótt
nám sem ekki er boðið upp á í
FS en einhverjir nemendur
sækja jafnframt í gömlu
bekkjaskólana. Stór hópur
þeirra sem hefja nám í þeim
skólum færa sig hinsvegar í FS
eftir eina til tvær annir. „Við
höfum reynt eftir mætti að taka
við þessum krökkum og meta
það nám sem þau em búin með
- en bekkjarkerfið hefur verið á
undanhaldi og aðeins örfáir
skólar eftir í því kerfi“, segir
Ólafur Jón.
Færri nemendur í framhalds-
námi en í Reykjavík
Hlutfall nemenda á Suðumesj-
um fer hækkandi en er frekar
lágt miðað við Reykjavík og
nágrenni. „Ný inntökuskilyrði
hafa vissulega haft áhrif á val
nemenda. Ahrifa þessarra
breytinga á þó eftir að verða
meiri eftir því sem á líður og
áhrifanna fer að gæta í vali
nemenda í síðustu bekkjum
gmnnskóla. Þetta leiðir einnig
til þess að foreldrar sem og
nemendur grunnskóla þurfa á
meiri ráðgjöf að halda en áður
og hún þarf að vera fýrr“, segir
Olafur Jón og bætir við að fyr-
irhugað sé að efla kynningu á
framhaldsnámi í gmnnskólum
svæðisins í samráði við skól-
ana.
Ný viðbygging -fullkomnari
aðstaða
Þröngt hefur verið um skóla-
starf síðustu árin og hefur
Menntamálaráðuneytið hefur
nú samþykkt stækkun skólans
og gætu framkvæmdir hafist
næsta haust. Samhliða því
verður farið í gagngerar endur-
bætur og breytingar á eldri
hluta skólans. I nýju viðbygg-
ingunni er lögð áhersla á bætta
vinnuaðstöðu nemenda og
kennara. Þar verður t.a.m. ein
fullkomnasta aðstaða til raun-
greinakennslu á landinu.
Vinningshafinn Miriam Óskarsdóttir ásamt Magneu Guð-
mundsdóttur, markaðsstjóra Bláa lónsins Birki Hólm Guðna-
syni, sölustjóra hjá Flugleiðum.
Hvítasunnukirkjan Keflavík
Samkoma öll fímmtudagskvöld kl.20
og sunnudaga kl. 11.
Allir hjartanlega velkomnir.
Útisamkoma á Torginu gengt Sparisjóönum
n.k. sunnudag 29. júlí kl.15.30.
Miriam fékh
flugmiðann
Miriam Óskarsdóttir
datt aldeilis í lukku-
pottinn þegar hún
vann flugmiða fyrir tvo til
Evrópu í afmælisleik Bláa
lónsins og Flugleiða.
Bláa lónið og Flugleiðir efndu
til afmælisleiks í tilefni tveggja
ára afmælis baðstaðarins við
Bláa lónið. Afmælishelgina,
14.-15. júlí, gafst gestum Bláa
lónsins kostur á að láta nafn sitt
í pott og freista þess að vinna
ferð fyrir tvo hvert sem er í
Evrópu. Leikurinn féll í góðan
jarðveg meðal gesta Bláa lóns-
ins, að sögn Magneu Guð-
mundsdóttur markaðsstjóra
Bláa lónsins og tóku rúmlega
3000 gestir þátt í leiknum.
i
10