Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2001, Page 14

Víkurfréttir - 22.11.2001, Page 14
MILLJÓNA VIÐSKIPTI CANADA 3000 ÚT UM GLUGGANN Viltu starfa erlendis í 1-3 ár? Einstaktvidskiptatækifæri. Mikiirtekjumöguleikar. Leitað er eftir fjárhagslega traustum aðila til að takastá við spennandi verkefni. Öllum fyrirspurnum svarað. Fullum trúnaði heitið. Svör sendist til skrifstofu Víkurfrétta, Grundarvegi 23, Njarðvík merkt: „Útr- 2001“ Bókasafn Reykj anesbæj ar Breyttur opmmartími Jmðjudaginn 27. nóvember 2001 Opið frákl. 16 20 y ~ Snn WtSL*uM swnHH Sorpeyðingarstöð Suðurnesja Opið alla daga frá kl. 8-20. Vegna árshátíðar starfsmanna verður LOKAÐ sunnudaginn 2. desember nk. frá kl. 8-13. Minnum á opnunartímann yfir hátíðarnar Aðfangadagur opið frá kl. 8-12, Jóladagur Lokað, 2. íjólum Lokað, Gamlársdagur opið frá kl. 8-12, Nýársdagur Lokað. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. Hafnavegi • Njarðvík • Sími 421 1088 „Mikilvægt að lögð sé fram stefna um framtíð flugvallarins“ - segir Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótels Keflavíkur Steinþór Jónsson með líkan af þotu frá Canada 3000. Framtíð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar liefur verið mikið til umræðu af ýms- um ástæðum á liönum mánuð- um. Meðal annars hefur verið rætt um hvort flytja eigi innan- landaflug frá Reykjavík til Keflavíkur, rekstur verslana í flugstöðinni hefur ekki gengið sem skyldi og nú síðast hvernig eigi að markaðssetja flugvöll- inn. Steinþór Jónsson, hótel- stjóri Hótel Keflavíkur hefur ákveðnar skoðanir á þessum málum og gagnrýnir fyrrver- andi stjórnendur ferða- og flugmála fyrir að hafa ekki reynt að haida í viðskipti við kanadíska flugfélagið Canada 3000 á árunum 1995-1999. Þau viöskipti skiluðu fyrir- tækjum á Suðurnesjum um- talsverðum tekjum og tryggðu gríðarlega aukningu á ferða- mönnum frá Kanada. Stein- þór segir að þeir sem komi að þessum málum í dag verði að marka sér skýra stefnu um framtíð flugvallarins og þá möguleika sem staösetning hans bíöur uppá. Hættu lendingum á íslandi Canada 3000 var í stórviðskipt- um á Islandi á árunum 1995- 1999 og var þá næst stærsti við- skiptavinur flugvallarins á eftir Flugleiðum, með allt að 16 lend- ingum á viku. Fyrirtækið fór ný- lega í greiðslustöðvun en ástæður slæms gengis fyrirtækisins að undanfomu er m.a. yfirtaka þess á tveimur minni flugfélögum sem stóðu illa að vigi. Mikill uppgangur var hjá félaginu fyrstu árin og þegar það hætti lending- um á Islandi haustið 1999 stóð félagið traustum fótum. „Á ámnum 1998-1999 fór félag- ið út í mikla endumýjun á flug- flotanum sem gerði m.a. að verk- um að nýrri og stærri vélar þurftu ekki lengur að lenda á Keflavík- urflugvelli. Þessi endurskipu- lagning skilaði félaginu umtals- verðum hagnaði og tryggði stöðu þess enn frekar. Á sama tíma börðust önnur kanadísk flugfélög á bökkunum, m.a. Royal Air og CanJet. Canada 3000 ákvað að taka yfir þau íyrirtæki árið 1999 en ég tel að sú ákvörðun hafi verið úrslitavaldur fýrir að félag- ið var nýlega lýst gjaldþrota. Þess má geta að ríkisstjórn Kanada bauð félaginu 75 milljón dollara lán til að takast á við erfiðleikana en af einhvetjum ástæðum tókst félaginu ekki að uppfylla skilyrði fyrir lánveitingunni." Miklar tekjur til Suðurnesja Að sögn Steinþórs var korna Canada 3000 eitt mesta fram- faraverk sem hann hefur sjálfúr staðið fyrir enda var það ekki bara fyrirtæki hans, Hótel Kefla- vík, sem hafði hag af á þessum viðskiptum við kanadíska flugfé- lagið. Flugleiðir sáu m.a. um alla matarbakka i þotumar til og frá landinu og flugvöliurinn fékk einnig miklar tekjur af lendingar- gjöldum svo ekki sé minnst á óbein áhrif viðskipta vegna áhafha og farþega flugfélagsins. Hér er því verið að tala um hund- ruði milljóna króna i viðbótar- tekjur fyrir íslenskt þjóðfélag. „Á þessum árum jókst ferða- mannafjöldi frá Kanada um mörg hundruð prósent. Mér finnst því undarlegt þegar ég hugsa til baka, hvað stjómvöld, flugmálayfirvöld og forsvars- menn ferðamála á þessum tíma hafi ekki séð ástæðu til að hafa samband við mig eða stjórn- endur Canada 3000, til að við- halda og auka samskipti milli Kanada og Islands. Eg sé það fyrir mér sem stór mistök sem ekki verða bætt úr þessu. Sú staðreynd að einn stærsti við- skiptavinur flugvallarins skuli ekki hafa verið boðaður til fund- ar meðan á viðskiptunum stóð til viðræðna um áframhaldandi flug til íslands, af ofangreindum aðilum, er með ólíkindum", segir Steinþór. Þurfum að marka okkur stefnu I dag em óvissutímar í flugvallar- málum íslendinga en að mati Steinþórs er mikilvægt að lögð sé fram stefna um framtíð flugvall- arins og tryggja Flugleiðum traustan rekstrargrundvöll um leið og nýjir möguleikar eru kannaðir í hvívetna. „Flugvöllur- inn er undir góðri stjóm i dag og hefur sem slíkur verið í mikilli uppbyggingu enda getur völlur- inn annað mun meiri umferð en um hann fer i dag. Það er því for- svarsmanna í ferðamálum og stjómvalda að leita nýrra leiða til að ná inn viðskiptum á nýjum mörkuðum. Við verðum að horfa til framtíðar og nýta okkur alla þá ijölbreyttu möguleika sem styrkt geta íslenska ferðaþjón- ustu“, segir Steinþór að lokum. 14

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.