Víkurfréttir - 24.01.2002, Síða 10
Tónkikar
Tiarlakóró
Titflmnkiir
Föstudaginn 25. ]anúar
kl. 20:30 í ytn-Njarðvíkurkirkju
Sunnudctginn 27. jctnúar
kl. 16:30 í Hdsölum Hafnctrfirði
Söngstjóri: Smári Óiason
Undirleikur: Ester Ólofsdóttir á píanó
Einsöngur:
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Steinn Erlingsson
www.vf.is
Atvinna
Okkur vantar saumakonu nú þegar.
Upplýsingar í síma 848 1837 Brynja.
Efnalaug Suðurnesja
55b • 230 Kcflavík • Sími 421 1584
Kór stofnaður við
Innri-Njarðvíkurkirkju
Stofriaður hefur verið kór Njarð-
víkurkirkju og syngur kórinn við
messur í Innri-Njarðvíkurkirkju
og allar þær athaíhir sem óskað
er. Þetta er hress og skemmtileg-
ur hópur og þeir sem hafa áhuga
á söng og góðum félagsskap eru
velkomnir. Æfingar kórsins eru á
þriðjudagskvöldum frá klukkan
20.00 til klukkan 22.00. Stjóm-
andi kórsins er Steinar Guð-
mundsson. Komið - sjáið og
sannfærist.
Stjórnin
35 km
hámarks-
hraði í Vogum
w
Afundi hreppsnefndar
Vatnsleysustrandar-
hrepps nýverið sam-
þykkti hún tillögur umferðar-
nefndar og umhverfisstjóra
um merkingar og aðrar að-
gerðir í umferðarmálum í Vog-
um. Hámarkshraði í Vogum
vcrður lækkaður í 35 kíló-
metra á klukkustund.
Ekki hafa verið í gildi sérstakar
reglur um hámarkshraða í Vog-
unum til þessa, en á því verður
nú breyting. Settar verða upp
merkingar við allar innkomur i
Vogana sem gefa til kynna að 35
kílómetra hámarkshraði verður á
öllum götum. Síðan verða sér-
stök merki við allar útkomur úr
Vogunum sem gefa til kynna að
sérstökum hámarkshraða sé lok-
ið.
Ymsar aðrar merkingar verða
settar upp s.s. fleiri hraðahindr-
anir, þrengingar, biðskyldumerki,
botnlangamerki, gangbrautar-
merki o.fl. Það er von umferðar-
nefndar að uppsetning þessara
merkinga stuðli að betri og ör-
uggari umferð fyrir alla, jafnt
gangandi sem akandi.
GRINDAVÍKURBÆR
Framkvœmdir við Brimvarnargarða verða kynntar á almennum
borgarafundi fimmtudaginn 24 jatiúar 2002 kl 20
á sal Bæjarskrifstofanna að Víkurbraut 62.
Kynnt verður fyrirhuguð tímabundin breyting á aðalbrautarrétti
um Garðsveg - Seljabót - Bakkalág vegna framkvæmda
við austari varnargarðinn.
Hagsmunaaðilum er sérstaklega bent á að mæta.
Bœjartœknifrœðingur.
Nýtt verktakafyrirtæki
á Suðurnesjum
Nýlega var stofnaö verk-
takafyrirtækið VT-verk-
takar á Suöurncsjum.
Fyrirtækið samanstcndur af
38 einstaklingum og fyrirtækj-
um sem ætla í framtíðinni aö
hasla sér völl við framkvæmdir
stærri verkefna en verktakarn-
ir í smærri einingum hafa ráð-
ið við áður.
Anton Jónsson er ffamkvæmda-
stjóri félagsins og einn þriggja
stjórnamanna. „Við erum ekki
með neitt starfslið, heldur öflug-
ann hóp verktaka og þjónustuað-
ila í öllum greinum. Við ætlum
að fýlgjast vel með þróun mála
inni á vamatrsvæðinu og vera til-
búnir þegar einokuninn fellur
endanlega niður árið 2004. Ef
Suðurnesjamenn skoða þetta
ekki sameiginlega þá fara verk-
efhin ffamhjá okkur,“ segir Ant-
on. Fyritækið er ekki byggt upp í
kringum ákveðna klíku heldur er
það opið öllum og vill Anton sjá
sem flesta saman í hinu nýja fé-
lagi til að styrkja það. „Við erum
ekki komnir með nein verkefni
ennþá, félagið er tiltölulega ný-
stofhað og við erum að horfa til
ffamtiðar. En ef svo færi að ein-
hver stórffamkvæmd færi í gang
á Suðurnesjum, sem einstaka
verktakar réðu ekki við sökum
smæðar sinnar, þá erum við til-
búnir til að skoða slík verkefni,"
sagði Anton Jónsson að lokum.
rTTTT' ■ :?ihu 1 ■
w'
Áramótabrenna eða
þrettándabrenna?
Sitt sýnist hverjum þegar
kemur að því að ræða
hvort rétt hafi verið af
bænum að fella niður áramóta-
brennuna eins og gert var nú
um áramótin.
Kristmundur Asmundsson, Sam-
fylkingunni, hóf máls á því á
bæjarstjómafundi nýverið að
honum fýndist góð hefð vera
lögð niður og hann sæi enga
ástæðu til að leggja niður gamla
siði þó nýir væm teknir upp. Þar
átti hann við þá staðreynd að ára-
mótabrennan var ekki haldin, en
bærinn stóð síðan fýrir mikilli
þrettándabrennu með tilheyrandi
skemmtun. Eins hafði Krist-
mundur orð á því að haft ákvörð-
un um þetta efhi verið tekin á
bæjarstjómafúndi þá hafi hann
ekki verið þar. Fleiri bæjarfulltrú-
ar tóku til máls og virtust flestir
ánægðir með þrettándabrennuna.
Jóhann Geirdal, Samfýlkingunni,
sagðist þó hafa heyrt á máli fólks
að alls ekki allir hefðu verið
ánægðir með þrettándabrennuna,
sagðist hann hafa ffétt af álfúm
innanum mannfólk i leit að ætt-
ingjum og það gæti engan vegin
staðist því álfar eigi enga ætt-
ingja í mannheimum. Það er
greinilegt að margir hafa saknað
áramótabrennunnar í Innri-
Njarðvík og það er kannski um-
hugsunsrefni fýrir stjómmála-
flokkana að setja hana inn sem
kosningaloforð í kosningabarátt-
unni sem er ffamundan.
10