Víkurfréttir - 11.04.2002, Side 14
HESTAMANNAFÉLAGIÐ MÁNI
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
Kaffihúsatónleikar
Vínartónlist
Eldri nemendur Suzuki-deildar
halda kaffihúsatónleika
með Vínartónlist
sunnudagiun 14. apríl.
Tónleikaruir verða haldnir á sal
Njarðvíkurskóla og hefjast kl.15.30.
Kaffiveitingar á vægu verði.
Allir velkomnir.
Skólastjóri.
ATVINNA
Startsfólk óskast á kvöldin og um helgar.
Lágmarksaldur 25 ár.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Víkurfrétta og er eingöngu hægt að sækja
um þar, öllum umsóknum verður svarað.
.Brautarnesti, Hringbraut 93, Keflavík.
Heilbrigðisstojhun Suðumesja
SUMARAFLEYSINGAR
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir
móttökuriturum til sumarafleysinga í
afgreiðslu HSS í Keflavík sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Agnes Garðarsdóttir
í síma 422 0500.
Læknaritari óskast frá 15. maí til
sumarafleysinga í HSS í Keflavík.
Nánari upplýsingar veitir Ásdís M.
Sigurðardóttir í síma 422 0500.
Laun samkvæmt samningi Starfsmannafélags
Suðurnesja og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og lóðir
hennar er reyklaus vinnustaður.
Framkvæmdastjóri.
MaríaAnna leiðir
H-listann í Garði
Lagður hcfur verið fram
listi Sjálfstæðismanna og
annarra frjáislyndra kjós-
cnda í Gerðahreppi, Garði,
vegna sveitarstjórnakosninga
25. maí n.k. Listinn hcfur haft
bókstafínn H.
Listann skipa;
1. Maria Anna Eiriksdóttir,
sjúkraliði
2. Hrafnhildur S. Sigurðardóttir,
afgreiðslustjóri
3. Finnbogi Bjömsson,
ffkvstj.
4. Ámi Ámason, stjómmálafr.
nemi
5. Þorsteinn Eyjólfsson,
rafvirki,
6. Laufey Erlendsdótttir,
íþróttakennari
7. Magnús Torfason,
vömbifr.stj.
8. Þorsteinn Jóhannsson,
verkstjóri
9. Guðmundur Einarsson,
afgr. maður
10. Ingvar Jón Gissurarson,
bifvélavirki
11. Björgvin Þ. Björgvinsson,
rafv. nemi
12. Karl Njálsson,
forstjóri
13. Dagmar Ámadóttir,
húsmóðir
14. Þorvaldur Halldórsson,
útgerðarmaður
Svo sem ffam kemur skipar Mar-
ía Anna Eiríksdóttir efsta sæti
listans. Hún hefur setið í hrepps-
nefnd um 8 ára skeið, einnig set-
ið í skólanefnd, nefhdum vegna
byggingar leikskólans Gefhar-
borgar auk §ölda annarra starfa
sem henni hiafa verið falin á veg-
um hreppsnefndar. Hreppsnefnd-
arfulltrúi með mikla reynslu af
sveitarstjómarstörfum. Hrafh-
hildur Sigurðardóttir færist nú
ffamar á listann og mun reynsla
hennar nýtast vel en hún hefur
m.a. setið í félagsmálanefnd.
Finnbogi Bjömsson fyrrv. odd-
viti og sveitarstjómarmaður um
28 ára skeið sest nú í 3ja sæti,
það fjórða skipar ungur maður
með mikla reynslu úr nefnda-
starfi og hreppsnefhd, Ami
Ámason.
H listinn mun beita sér fýrir
ffamgangi í menntamálum í
Garðinum, ljúka við byggingar
við Gerðaskóla og íbúða fyrir
aldraða, endurskoða þarfir leik-
skólans Gefnarborgar, huga að
umhverfismálum, endumýja göt-
ur og afleggjara og leggja slitlag.
Ekki síst mun verða lögð mikil á-
hersla á að ljúka lögn gangstétta
og auka þannig öryggi íbúanna
og bæta um leið útlit byggðar-
lagsins. Mikil verkefhi í ffáveitu-
málum bíða Garðmanna og lögð
verður áhersla á að ná á ný sam-
bandi við atvinnulífið og efla í-
þrótta- og heilsuræktariðkun
yngri og eldri íbúa.
Garðmanna biða ótal verkefhi
sem kosta munu mikið fé. Til
þess að nýta fjármagn sem best
hefur H listinn rætt við Ellert Ei-
riksson fýrrverandi sveitarstjóra í
Garði um að koma til starfa í
Garðinum en Ellert var sveitar-
stjóri í 8 ár. Ellert sýndi trausta
ffam-kvæmda og fjármálastjóm i
störfum sínum og fólk sem þurfti
að leita til Gerðahrepps var þá
visst um að fá faglega umfjöliun
um sín mál. Aukin þekking hans
sem bæjarstjóri í Reykjanesbæ
mun nýtast vel í breyttu um-
hverfi, svo sem í menntamálum
og öðrum afskiptum við opin-
bera aðila, bæði nágranna og
aðra.
H listinn mun því, fái hann til
þess nægilegt fylgi, leita effir því
að ráða Ellert sem mun verða
heillaákvörðun fyrir byggðarlag-
ið og íbúa þess. H listamenn
hlakka til samstarfsins og ofan-
greindir ffambjóðendur munu
leggja sig alla ffam í þágu ifam-
fara í Garðinum.
Vetrastarf hestafélagsins
Mána hefur gengið vel
eins og undanfarin ár og
á aðaifundi félagsins í febrúar
var góð mæting. Kosið var í
nýja stjórn og var Margeir
Þorgeirsson kosinn formaður
en aðrir kosnir í stjórn voru
Sigurður Ragnarsson, Sigrún
Valdimarsdóttir, Viðar Ellerts-
son og Jón Viðar Viðarsson. Á
fundinum var samþykkt tillaga
um Ieyfi til stækkunar á hest-
húsum um allt að 6 metra
fram og helmings stækkunar
hlöðu.
Uppselt var á árshátíð félagsins
og hafa miðar alrei selst upp á
eins skömmum tíma. Hún tókst
vel í alla staði.
Æskulíðsstarf félagsins er í
blóma og fékk Máni sérstaka
viðurkenningu fyrir það á síðasta
landssambandsþingi Hesta-
manna sem haldið var á ísafirði í
haust sem leið. Æskulýðsdagar
voru haldnir í reiðhöll Mána og
var þátttaka mjög góð - myndir!
Eins og undanfarin ár komu
hestamenn úr Grindavík riðandi
á móti Mánafélögum um pásk-
ana og var mæst á Fitjum og það-
an lá leiðin á Mánagrund. Sam-
eiginlegur reiðtúr var svo farinn
á laugardeginum.
Nokkur mót hafa verið haldin
hjá félaginu og hér fyrir neðan
eru úrslit í tveimur þeirra.
Karlamót Mána
í boði Húsanes
1. sæti Sigurður Ragnarsson á
hestinum Fróða ffá Miðsitju
2. sæti Jón ViðarViðarsson á
hestinum Védísi ffá Síðu
3. sæti Gunnar Auðunsson á
hestinum Kóp ffá Kílhrauni
4. sæti Guðni Sigurðsson á hest-
inum Skafli ffá Norðurhvammi
5. sæti Margeir Þorgeirsson á
hestinum Hyl ffá Sandgerði
V íkurfréttamótiö
í pollaflokki sigraði Una M.
Unnarsdóttir á hestinum Perlu,
Marsibil Sveinsdóttir varð í 2.
sæti á hestinum Pamelu og
Hafliði Brynjarsson varð í 3.
sæti.
í bamaflokki sigraði Margrét
Lilja Margeirsdóttir á Hyl, Vikt-
oria Sigurðardóttir á Takti varð í
2. sæti og Ásmundur Snorrason
á Glóð varð í 3. sæti.
í unglingaflokki varð Camilla
Sigurðardóttir á Skafli í 1. sæti,
Auður Olafsdóttir á Sóllilju varð
í 2. sæti og Hermann Unnarsson
á Varða varð í 3. sæti.
í ungmennaflokki varð Elva
MargeirsdóttiráAmal í 1. sæti,
Guðmundur Unnarsson á Braga í
2. sæti og Sóley Margeirsdóttir á
Prúðu varð í 3. sæti.
í kvennaflokki sigraði Gunnhild-
ur Vilbergsdóttir á Rut, Marta
Jónsdóttir á Fjarka varð í 2. sæti
og Ásdís Adolfsdóttir á Drótt
varð í 3. sæti.
í opnum flokki sigraði Marta
Jónssdóttir á Hljómi, Sigurður
Kolbeinsson á Litla Stjama varð
í 2. sæti og Jón ViðarViðarsson
varð í 3. sæti á Védisi.
14