Morgunblaðið - 26.05.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016
Það fór vitaskuld ekki svo í gærað dagskrárliðurinn störf
þingsins á Alþingi kláraðist án þess
að stjórnarandstaðan teldi ástæðu
til að ræða hvort ekki yrði örugg-
lega kosið í haust.
Ásta Guðrún Helga-
dóttir pírati spurði
þessarar spurn-
ingar í örvæntingu:
„Sjáum við fram á
að halda út heilan
vetur í viðbót?“
Þjökuð af þingsetu eftir að hafaverið skipt inn á fyrir heilu ári
stígur hún mædd í pontu og barm-
ar sér yfir að þurfa að ljúka störf-
um þessa kjörtímabils eftir eitt ár
eins og stjórnarskráin mælir fyrir
um.
Ekkert kallar á þingkosningarfyrr en næsta vor annað en
yfirgangur og hávaði í stjórn-
arandstöðunni innan þings og ut-
an.
Þvert á móti er það ekki aðeinsstjórnarskráin sem gerir ráð
fyrir því að þingmenn sinni starfi
sínu eitt ár í viðbót, heldur kalla
ýmis verkefni á að þeir hysji upp
um sig buxurnar, hætti að tala um
kosningar í haust og fari að sinna
því sem almenningur kaus þá til og
treysti þeim fyrir.
Á bak við 38 manna stjórn-armeirihlutann á Alþingi er ef
til vill ekki háværasta fólk lands-
ins, en það á engu að síður sinn
rétt.
Þingmenn eiga ekki að láta þaðviðgangast að réttur kjósenda
sé skertur við það eitt að nokkur
þúsund manns safnist saman í eitt
skipti á Austurvelli og að stjórn-
arandstöðuþingmenn verði sér
ítrekað til skammar í ræðustóli Al-
þingis.
Ásta Guðrún
Helgadóttir
Á hávaðafólkið að
hafa aukin völd?
STAKSTEINAR
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
Veður víða um heim 25.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 alskýjað
Bolungarvík 8 alskýjað
Akureyri 14 skýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 19 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Stokkhólmur 9 rigning
Helsinki 23 heiðskírt
Lúxemborg 11 heiðskírt
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 14 léttskýjað
London 12 súld
París 17 skýjað
Amsterdam 14 skýjað
Hamborg 14 skýjað
Berlín 15 skýjað
Vín 20 léttskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 24 heiðskírt
Róm 21 heiðskírt
Aþena 24 heiðskírt
Winnipeg 21 alskýjað
Montreal 22 skúrir
New York 26 léttskýjað
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:37 23:14
ÍSAFJÖRÐUR 3:05 23:56
SIGLUFJÖRÐUR 2:46 23:40
DJÚPIVOGUR 2:58 22:52
Hafnarfjarð-
arbær hefur
ákveðið að veita
hættunni á man-
sali sérstaka at-
hygli. Tillaga
þess efnis var
samþykkt á fundi
bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar í
gær. Í tillögunni
kemur fram að
farið verður yfir alla ferla hjá bæn-
um með það að markmiði að vernda
þá sem eru í viðkvæmri stöðu gagn-
vart mansali. Allir innkaupaferlar og
útboðsskilmálar verða yfirfarnir
með tilliti til þessa. Þá mun Hafn-
arfjarðarbær tryggja að starfsfólk
og eftirlitsaðilar á vegum bæjarins
fái fræðslu um hvernig bera megi
kennsl á mansal. Sú fræðsla er þeg-
ar hafin, en Alda Hrönn Jóhanns-
dóttir, aðallögfræðingur Lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, var
með fræðslu fyrir stóran hóp af
starfsfólki á dögunum. Þá voru hún
og Snorri Birgisson rannsóknarlög-
reglumaður með kynningu fyrir
bæjarstjórn á fundinum.
Átak gegn
mansali í
Hafnarfirði
Veita hættunni
á mansali athygli
Alda Hrönn
Jóhannsdóttir
Guðni Th. Jóhannesson er enn með
mikið forskot á keppinauta sína í for-
setaframboði, samkvæmt tveimur
skoðanakönnunum sem birtar voru í
gær. Guðni nýtur stuðnings 57%
þátttakenda og 22% styðja Davíð
Oddsson, samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar sem Gallup gerði
fyrir stuðningsmenn Davíðs dagana
19. til 25. maí. Tæp 11% hyggjast
kjósa Andra Snæ Magnason og 5,4%
styðja Höllu Tómasdóttur. Aðrir
frambjóðendur eru með innan við
2% fylgi.
Guðni mældist með 65,6% fylgi,
samkvæmt könnun sem MMR gerði
dagana 12. til 20. maí. Er það heldur
meira en í síðustu könnun MMR.
Fylgi Davíðs Oddssonar mældist
18,1%, sem er nokkru meira en í síð-
ustu mælingu, sem raunar var að
hluta til gerð áður en hann tilkynnti
framboð. Fylgi Andra Snæs Magna-
sonar mældist 11% og fylgi Höllu
Tómasdóttur 2,2%. Aðrir frambjóð-
endur mældust samanlagt með 3%
fylgi.
Kosningabaráttan á skrið
Á kjörseðlinum 25. júní verða níu
nöfn, samkvæmt tilkynningu frá inn-
anríkisráðuneytinu. Framboð þess
tíunda var ekki metið gilt þar sem
hann náði ekki nægilegum fjölda
meðmælenda.
Forsetaframbjóðendurnir verða á
opnum fundi um stjórnarskrá Ís-
lands í Háskólanum í Reykjavík
klukkan 12-13 í dag. Í kvöld verða
sjónvarpskappræður í beinni út-
sendingu á Stöð 2. Þeim frambjóð-
endum sem fá 2,5% eða meira fylgi í
skoðanakönnun 365 sem birt verður
í dag verður boðin þátttaka.
Guðni með 57% og Davíð með 22%
Fyrstu sjónvarpskappræðurnar í kvöld Níu frambjóðendur í boði