Morgunblaðið - 26.05.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.05.2016, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 „Ég er tilbúin til þess að leggja á ný líf mitt að veði fyrir Úkraínu á víg- vellinum,“ sagði úkraínska herflug- konan Nadía Savchenko er hún ræddi við fjölmiðla á Boryspil- flugvelli í Kænugarði í gær. Var hún þá nýkomin frá Rússlandi þar sem henni var haldið fanginni í tvö ár, en skipt var á Savchenko og tveimur rússneskum hermönnum sem voru í haldi í Úkraínu. Fréttaveita AFP greinir frá því að bílalest forsetans hafi beðið eftir henni á flugvellinum og var henni ekið á fund Petro Porosénkó Úkra- ínuforseta við komuna þangað. Talið er fullvíst að Porosénkó hafi ætlað að veita Savchenko heiðursorðu fyr- ir unnin störf í þágu lands og þjóðar. Táknmynd andspyrnunnar Hin 35 ára gamla Nadía Sav- chenko er liðsforingi í hersveitum Úkraínu og þjálfaður þyrluflug- maður. Hefur hún m.a. barist í Írak og síðar í Úkraínu, en árið 2009 varð hún fyrst kvenna til að ljúka námi í herskólanum í Kharkív. Árið 2014 var hún svo ákærð og loks dæmd fyrir að bera ábyrgð á dauða tveggja rússneskra sjón- varpsfréttamanna sem féllu í loft- árás í austurhluta Úkraínu. Savc- henko, sem staðfastlega hefur neitað sök, hlaut þá 22 ára fangelsisdóm. Mál hennar hefur vakið mikla al- þjóðlega athygli og hefur orðið að eins konar táknmynd andspyrnuafla gegn Rússum í Úkraínu. Í skiptum fyrir hana fengu Rússar Yevgeny Yerofeyev og Alexander Alexandrov. khj@mbl.is Savchenko reiðubúin að fórna sér fyrir Úkraínu á ný AFP Frjáls Nadía Savchenko var umkringd fjölmiðlafólki á flugvellinum. Bandaríkjaher veitti sýr- lenskum og íröskum her- sveitum stuðning er þær réðust gegn vígamönn- um Ríkis íslams. Barist var í ná- munda við sýr- lensku borgina Raqqa, höfuðvígi samtakanna, og borgina Fallujah í Írak, eitt helsta vígi samtakanna þar í landi. Ismail al-Mahalawi hershöfðingi staðfestir við fréttaveitu AFP að bandarískar og íraskar orrustu- þotur hafi veitt sveitum á jörðu niðri mikilvæga aðstoð í aðgerð- unum. Engar fréttir bárust af mannfalli en samkvæmt upplýs- ingum AFP hefur sókn írösku her- mannanna gengið með ágætum og eru þeir nú skammt frá borgar- mörkum Fallujah. khj@mbl.is RÍKI ÍSLAMS Bandaríkjaher veitti stuðning úr lofti „Heimsókn okk- ar til Hiroshima er liður í að votta öllum þeim sem létust í síð- ari heimsstyrjöld virðingu og ítreka sameigin- lega sýn okkar á heim án kjarna- vopna,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti á sameig- inlegum blaðamannafundi sínum og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans. Obama kom þangað til lands í gær og mun hann sækja Hiros- hima heim á morgum, föstudaginn 27. maí. Forsetinn segir veru sína í Japan vera til marks um þau miklu og sterku vinatengsl sem ríkin tvö hafi náð að mynda með sér í gegnum árin. khj@mbl.is HIROSHIMA Barack Obama kominn til Japans Jörð gaf sig með- fram hinni sögu- frægu á Arno í Flórens á Ítalíu. Fréttaveita AFP greinir frá því að bakkinn, sem skyndilega seig, hafi verið um 200 metra lang- ur, en enginn mun hafa slasast í at- vikinu. Eignatjón er hins vegar talið vera umtalsvert, en meðal þess sem skemmdist eru fjölmargar bifreið- ar og önnur ökutæki sem lagt hafði verið á þeim kafla sem hrundi. Jarðsigið átti sér stað stutt frá hinni heimsþekktu brú Ponte Vecc- hio sem reist var á 14. öld. ÍTALÍA Jörð gaf sig skyndi- lega í Flórens

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.