Morgunblaðið - 26.05.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.05.2016, Blaðsíða 20
FRÉTTASKÝRING Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Á Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp til laga um nýtt þjóðarör- yggisráð. Tilgangur þess er að framfylgja þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og endurskoða hana ef þurfa þykir. For- sætisráðherra er formaður þjóðarör- yggisráðsins en í því eiga sæti, auk forsætisráðherra, ráðherra sem fer með utanríkis- og varnarmál og ráðherra sem fer með almannavarnir, auk ráðuneyt- isstjóra viðkomandi ráðuneyta. Jafnframt skulu ríkislög- reglustjóri og forstjóri Landhelg- isgæslunnar eiga sæti í ráðinu. Þjóð- aröryggisráð getur kallað til fleiri ráðherra til setu í ráðinu varðandi einstök mál sem eru til umfjöllunar hjá því og tekur þá viðkomandi ráðu- neytisstjóri einnig sæti í því. Emb- ættismönnum og öðrum starfs- mönnum ráðuneyta og opinberra stofnana og hlutafélaga, sem og ein- staklingum og fulltrúum lögaðila, er skylt að mæta á fundi þjóðarörygg- isráðs, sé þess óskað. „Með þessu er komin meiri samhæfing á þjóðarör- yggismál Íslands. Þjóðarörygg- isstefnan hefur verið í vinnslu frá árinu 2007 og þetta er í þverpólitískri sátt,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, utan- ríkisráðherra. Fyrirmynd frá öðrum ríkjum Hún segir að með þessu batni eftirlit samhliða meiri samræmingu á milli stofnana. Spurð hvort eitthvað í alþjóðasamfélaginu nú kalli á þessa breytingu, þá telur hún svo vera. „Þegar frumvarpið var undirbúið var horft til annarra ríkja. Þau ríki sem eru í kringum okkur eru með ein- hvers konar þjóðaröryggisráð. Við erum því að taka upp vinnulag sem hefur verið við lýði hjá öðrum þjóðum í talsverðan tíma,“ segir Lilja. Hún segir að þjóðaröryggisráðið eigi eftir að útfæra vinnu sína nánar þegar reynsla kemst á það. Hins vegar von- ast hún til þess að með þessu verði al- mennt meiri umræða um þjóðarör- yggismál. „Þingsályktunartillagan um þjóðaröryggisstefnu er í tíu lið- um. Manni er tamt á að horfa til Atl- antshafsbandalagsins, á varnarsamn- inginn og fleira í þeim dúr. En í þjóðaröryggisstefnunni er litið á mál- in í víðara samhengi og tekið á málum eins og loftlagsbreytingum og um norðurslóðir svo dæmi séu nefnd,“ segir Lilja. Þjóðaröryggisstefnan er nýmæli á Íslandi og sama má segja um þjóð- aröryggisráðið. Engin sambærileg stefna eða ráð hefur verið til á Íslandi fram að þessu. Í greinargerð með frumvarpi um þjóðaröryggisstefnu segir að þó sé augljós nauðsyn slíkrar stefnu. Er sú skoðun byggð á vinnu þverfaglegs starfshóps um hættumat fyrir Ísland og þingmannanefndar um mótun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. „Þjóðaröryggisráðið mun, verði frumvarp þetta að lögum, gegna lykilhlutverki við samhæfingu stjórn- sýsluaðila, samráð innan stjórnsýsl- unnar, reglulega uppfærslu stefn- unnar, sem og samstarf við fræðasamfélag um kynningu hennar meðal almennings,“ segir í grein- argerðinni. Sektir og fangelsi Í frumvarpi um þjóðarör- yggisráð kennir ýmissa grasa. Kemur þar m.a. fram að fund- ir þjóðaröryggisráðs fara fram fyrir luktum dyrum og hver sá sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir þjóðaröryggisráði rangar upplýsingar skal sæta sektum eða fangelsi allt að þremur árum. Þjóðaröryggisráðs- frumvarp lagt fram Alþingishúsið Frumvarp til laga um þjóðaröryggisráð er komið fyrir Alþingi. Er ráðið nýlunda á Íslandi en er að erlendri fyrirmynd. 20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það kostaðinokkur átökað ná sam- komulagi þegar Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn og fjármálaráðherrar evrusvæð- isins hittust á fundi um örlög Grikklands í fyrrinótt, en fundurinn stóð yfir í ellefu klukkutíma. Að honum loknum stigu fundarmenn fram og til- kynntu að fundist hefði leið til þess að hægt væri að lána Grikkjum sem nemur um 10 milljörðum evra í sumar. Líklega mun þó Grikkjum sjálfum hafa þótt lítið til koma, því að þegar rýnt var nánar í samkomulagið kom í ljós að Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn hafði látið af þeirri kröfu sinni, að skuldir Grikkja yrðu teknar til endurskoðunar og sumar þeirra látnar falla niður. Í staðinn féllst sjóðurinn nær al- farið á það sjónarmið, sem Þjóðverjar hafa einkum haldið fram, að rétt væri að bíða fram til ársins 2018 og sjá til hver staða landsins verður þá. Tilgangur samkomulagsins er fyrst og fremst sá að koma í veg fyrir að Grikklands- ævintýri Evrópusambandsins vakni aftur til lífsins yfir sum- arið, á sama tíma og sam- bandið þarf að takast á við flóttamannavanda, þjóð- aratkvæðagreiðsluna í Bret- landi og auknar efasemdir al- mennings um hagnýti þess að vera innan sam- bandsins. Sam- komulaginu er því í raun ætlað að vinna tíma áður en Grikkland fer aftur á vonarvöl. Þá er einnig athyglisvert að Grikkir sjálfir voru hvergi með í ráðum á meðan lánardrottn- arnir tókust á. Í raun má draga í efa að Grikkland sé enn full- valda ríki eftir að Tsipras for- sætisráðherra féllst á af- arkosti þríeykisins á síðasta ári. Ríkisstjórn hans ræður ekki fjárlögum landsins lengur og hún hefur lítil sem engin áhrif á þær ákvarðanir sem mestu skipta um framtíð skuldavanda ríkisins. Stjórn hans hefur nauman meirihluta og óánægja almennings með aðhaldsaðgerðirnar gera hana valta í sessi. Örlög Grikkja segja sitt um fullveldisframsal þeirra ríkja sem gangast undir vald Evr- ópusambandsins og veita ágæta innsýn í það hverju önn- ur ríki Evrópusambandsins mega eiga von á, lendi fjármál þeirra á borði embættismann- anna í Brussel og kanslara Þýskalands. Sú sýn er ekki heillandi hafi ríki metnað til að vera meira en deild innan ESB eða 17. sambandslandið í Þýskalandi – en án atkvæð- isréttar. Grikkir voru ekki spurðir að því hvað þeir vildu gera} Ákvörðunin annarra Staðfest hefurverið að Mo- hammed Mansour, leiðtogi talíbana í Afganistan, var felldur í drónaárás Bandaríkjahers í vikunni. Árásin þykir til marks um það að Obama Bandaríkja- forseti hafi ákveðið að frekari aðgerða væri þörf í Afganistan, en friðarumleitanir við talíbana á síðustu misserum hafa engu skilað. Með fráfalli Mansours er talíbönum greitt þungt högg, og mátti þegar greina þess merki að ekki væru allir á þeim bænum sáttir með útnefndan eftirmann hans, erkiklerkinn Mawlawi Hibatullah Akhund- zada. Það forvitnilegasta við dráp- ið á Mansour er líklega stað- setningin, því að ólíkt því sem talið var höfðu Bandaríkja- menn ekki hendur í hári hans í stríðshrjáðum héruðum Afgan- istans, eða í norðvesturhluta Pakistans þar sem talíbanar hafa einnig haft aðsetur. Nei, Mansour fannst og var veginn í Balúkistan í suðvesturhluta Pakistans, tiltölulega friðsælu héraði. Á honum fannst pakist- anskt vegabréf og mátti ráða af því að hann hefði nýlega verið í Íran, auk þess sem upp úr kafinu kom að Mansour hafði ferðast á sama vegabréfi ítrek- að til annarra Mið-Austurlanda. Það segir sína sögu, að Na- waz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, hefur fordæmt árás Bandaríkjamanna sem brot á fullveldi landsins. Það segir líka sína sögu að Bandaríkjamenn kusu að láta Sharif ekki vita af drónaárásinni fyrir fram, líkt og eðlilegt hefði mátt teljast, sér í lagi þar sem þeir hafa ekki haft heimildir til þess að fljúga yfir Balúkistan. Það hafa lengi verið uppi efa- semdir um það hversu heilir bandamenn Pakistanar hafi verið í baráttunni gegn hryðju- verkum og talíbönum. Aðgerðin gegn Osama bin Laden sagði sitt um traustið sem ríkir á milli landanna, en ætla má að með líf- láti Mansours hafi Bandaríkja- stjórn meðal annars verið að senda skilaboð til stjórnvalda í Islamabad um að þolinmæði þeirra sé á þrotum. Bandaríkin greiddu talíbönum þungt högg við lítinn fögnuð í Islamabad} Hvar standa Pakistanar? R úmlega tvítugur karlmaður finnst látinn í fjöru á Austur- landi. Björgunarsveitir hafa leit- að að honum í nokkurn tíma en fréttir af leitinni fara þó ekki hátt í fjölmiðlum þar sem grunur leikur á að manninum, sem glímt hefur við þunglyndi um langt skeið, hafi tekist að svipta sig lífi. Ekki er greint frá andláti hans í fjölmiðlum en lesa má á milli línanna í minningargreinum hver hinstu sporin voru. Leit er gerð að rúmlega sjötugum karl- manni sem skilaði sér ekki af rjúpnaveiðum á Suðurlandi. Lýst er eftir honum í fjölmiðlum að beiðni lögreglu og fólk er hvatt til að svip- ast um eftir manninum. Skyttan finnst látin nokkrum klukkustundum síðar og er talið lík- legt að hann hafi fengið hjartaáfall, enda hafði maðurinn glímt við hjartveiki síðustu ár. Mynd af vina- legum eldri manni og upplýsingum um andlát hans blasa við þjóðinni í fjölmiðlum. Vinir og ættingjar minnast með stolti og harma andlátið. Eftir því sem ég best veit eiga þessar frásagnir ekki stoð í raunveruleikanum. Það þarf þó ekki að leita langt eftir svipuðum dæmum. Það er nefnilega óskráð regla á ritstjórnum flestra fjölmiðla að greina ekki frá því þegar fólk sviptir sig lífi. Aftur á móti fær þjóðin gjarnan fréttir af því þegar ein- hver tapar baráttunni við líkamleg veikindi. Þau sem rita minningargreinar um fyrrnefnda hópinn forðast oft að nefna hinstu sporin beinum orðum. Minningarorð um þau síðarnefndu fjalla aftur á móti um hetjulega baráttu þeirra við veikindin. Vinir og ættingjar fylgja til grafar með sorg í hjarta en einnig stoltir af þraut- seigju sjúklingsins sem lagði allt í sölurnar. Meirihluti þeirra sem binda enda á eigið líf hefur glímt við kvíða, þunglyndi eða andleg veikindi af einhverjum toga í lengri eða styttri tíma. Þegar ekki sést fram úr myrkr- inu um tíma sem virðist kannski margfalt lengri en hann er í raun og veru getur dauð- inn eðlilega virst skásti valkosturinn; leiðin út úr sársaukanum sem hinn veiki finnur sjálfur fyrir og finnst hann valda öðrum. Þau sem hengja sig eða taka inn mikið magn lyfja láta vissulega lífið þegar reipið þrengir að hálsinum eða lyfin streyma um blóðrásina en það eru samt sem áður andlegu veikindin sem draga þau til dauða. Eðlilegt er að haft sé samráð við andstandendur þegar til stendur að birta upplýsingar um hinn látna, óháð því hvert banameinið er. Sjálfsvíg er flókið viðfangsefni og skilur eftir sig krefjandi tilfinningar hjá þeim sem eftir lifa. Við ættum þó ekki að vera feimin við að greina frá hinstu sporum þeirra sem þessa leið fara. Með því að tipla á tánum í kringum sjálfsvíg og sleppa að greina frá þeim eða minnast á þau ef kostur er við- höldum við tabúinu. Af hverju ætti að vera sjálfsagðra að segja frá því að hjartað hafi gefið sig á rjúpnaveiðum en að hugurinn hafi tapað í baráttunni við myrkur andlegra veikinda? larahalla@mbl.is Lára Halla Sigurðardóttir Pistill Segjum frá hinstu sporunum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Þjóðaröryggisráð verður frá- brugðið því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum, enda umhverfi öryggis- og varn- armála um margt frábrugðið á Íslandi, sem er herlaust ríki. Í Noregi er til að mynda ráð- herranefnd undir forsæti for- sætisráðherra sem sér um að samræma stefnu stjórnvalda. Forseti Finnlands er í forsæti fyrir nefnd um öryggismál ásamt utanríkisráðherra og ut- anríkismálanefnd finnska þingsins. Nokkrar stofnanir í Svíþjóð sinna þeim málum sem þjóðaröryggisráðinu er ætl- að að sinna. Í Bretlandi er starfandi þjóðaröryggisráð og á forsætisráðherra sæti í því og aðrir ráðherrar, eins og utanrík- isráðherra og varnarmálaráð- herra, sem fara með öryggis- mál. Ólíkt starf hjá herlausu ríki ÞJÓÐARÖRYGGISRÁÐ Lilja Dögg Alfreðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.