Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 25

Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 Hvernig er það, kannt þú ekki örugglega að biðja? Það er einmitt það. Ég kann það nefnilega ekki og það sem meira er að ég veit varla hvað bænin er eða hvernig hún virkar. Hitt er annað mál að ég gríp daglega til henn- ar og segja má að ég lifi í bæn. Ég get því vitnað um það af því að ég hef upplifað það sjálfur að mér finnst gott að hvíla í bæninni og með- taka friðinn og lausnina sem hún veitir. Ekki eins og innkaupalisti Að biðja í Jesú nafni er ekki að við- hafa orðagjálfur eða að setja sig í ákveðnar stellingar. Og það er ekki að klína nafni frelsarans aftan við ein- hvern innkaupalista sem hugsaður er upp í nútíð út frá þröngsýnum þörfum. Bæn í Jesú nafni er að biðja um vilja Guðs, hið góða fagra og fullkomna. Hugur Guðs, kærleikur, friður og náð er nefnilega meiri, dýpri og stórkost- legri en hugarafl okkar nær utan um. Hann sér lengra, dýpra og hærra en okkar augu og hugur. Bæn í Jesú nafni er ekki spurning um orðalag heldur hjartalag. Hún er lífsstíll, spurning um hugarfarsbreyt- ingu. Ekkert betra Mér finnst ekkert betra en mega treysta höfundi og fullkomnara lífsins fyrir draumum mínum, væntingum og þrám. Treysta honum fyrir áhyggjum mínum og biðja hann að bera þær með mér og jafnvel létta þeim af mér. Það sem mestu máli skiptir er að Jesús hefur sjálfur boðist til að biðja fyrir okkur. Það er að segja þeim sem þiggja vilja. Þar sem hann bíður okkar á himnum ásamt kær- leikans Guði sem líknar og læknar, reisir við og gerir alla hluti nýja. Æfing í trú, von og kærleika Bænin er æfing í trú og trausti, von og kær- leika. Hún er kvíðastill- andi og streitulosandi. Hún skerpir einbeit- inguna, veitir huganum ró og hjartanu frið. Hún auðveldar ævigönguna og stillir okkur af svo markmið okkar verða skýrari. Með bæninni tökum við að sjá okkur sjálf, umhverfi og samferðamenn í nýju ljósi. Bænin styrkir fjölskyldubönd. Samkennd vex. Umburðarlyndi og virðing eykst og umhyggjan dýpkar. Bænin er góð forvörn og besta áfalla- hjálpin. Hún er sem græðandi smyrsl. Henni fylgir uppörvun og hvatning til góðra verka. Í bæninni drögum við að okkur feg- urð lífsins sem sprottin er af ást Guðs. Býðst til að anda á okkur Höfundur og fullkomnari lífsins vill fá að anda á okkur. Móttökum anda hans og leyfum honum að leika um okkur, dag hvern. Biðjum að hvert okkar fótmál, andardráttur og æð- arslag verði ein samfelld lofgjörð til lífsins. Sjálfum okkur til heilla og ham- ingju, samferðafólki til blessunar og þar með Guði til dýrðar. Biðjum hann að tendra ljós í lífi okk- ar, sitt eilífa ljós sem aldrei slokknar. Ljós sem lýsir okkur veginn heim í himininn þegar yfir lýkur. Bæn Almáttugi eilífi Guð! Miskunna þú mér. Vertu mér synd- ugum náðugur. Líknaðu mér og lækn- aðu mig og leyfðu mér að lifa í kær- leika, friði og sátt við þig, sjálfan mig og alla menn. Gefðu að ég fái að vera farvegur kærleika þíns og fyrir- gefningar, friðar og fagnaðarerindis. Fái að vera þér til dýrðar og fólki til blessunar. Blessaðu fólkið mitt allt, sem ég nefni nú með nafni … Vaktu yfir þeim, gefðu þeim frið í hjarta, verndaðu þau og varðveittu. Einnig legg ég öll þau mál sem upp í hugann koma, áhyggjur mínar, vænt- ingar, drauma og þrár í þínar hendur samkvæmt þínu boði í trausti þess að þú munir vel fyrir sjá. Andaðu stöðugt á mig og yfirgefðu mig aldrei. Styrktu mig með mætti þínum og fylltu mig af anda þínum. Fylltu huga minn af orðum þínum svo hann verði skýr. Fylltu hjarta mitt af kærleika þínum svo það verði hreint og sál mína af lífi þínu svo ég eignist frið. Djúpan og varanlegan frið svo ég finni til öryggis og líði vel. Alls þessa leyfi ég mér að biðja þig kvölds og morgna, um miðjan dag og jafnvel nætur, samkvæmt þínu boði. Í frelsarans, Jesú nafni. Amen. Kannt þú að biðja? Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Bæn í Jesú nafni er ekki spurning um orðalag heldur hjarta- lag. Hún er æfing í trú og trausti, von og kær- leika. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Hinn 6. og 7. maí sl. var Leikmannastefna íslensku þjóðkirkj- unnar haldin í Skál- holti. Í tilefni þess að þetta var þrítugasta leikmannastefnan flutti ég erindi um sögu hennar og í lok erindis míns sagði ég: Leikmannastefna þjóðkirkunnar haldin í Skálholti 7. maí 2016 vekur athygli á því hvað einstaka hópar, bæði trúarlegs eðlis og aðrir, eru að valta yfir kristið kirkjulegt starf. Hafa ber í huga að við erum kristin þjóð og störfum samkvæmt kristnum gildum, þess vegna er það sorglegt að líta til þess að fámennir hópar, svo sem Siðmennt, eru að setja okkur nýjar lífsreglur, t.d. eins og hefur átt sér stað í sumum grunnskólum landsins. Þar sem þeir hafa bannað að kristin fræði séu kennd, svo og banna hið frá- bæra starf Gídeon-félaga með út- breiðslu Nýja testamentisins til barna á grunnskólastigi. Svo og að banna grunnskólabörnum að sækja kirkju um jól og öðrum hátíðum. Spurt er: Hver veitir þeim slíkt leyfi? Það er hart og lít- ilfjörlegt að beygja sig í duftið þegar þessir hópar eru annars veg- ar, að setja okkur skorður og ákveða hvað má kenna og hvað ekki. Leikmannastefnan skorar á alla, bæði leika og lærða, að standa nú upp og sporna við þessum ósóma, sem því miður virðist fara vaxandi hjá okk- ar annars ágætu þjóð og styðja fast við að hin kristnu gildi, sem hafa verið í heiðri höfð hingað til og ver- ið höfð að leiðarljósi í öllu lífi og störfum okkar og standa fast á því að helgidagar kirkjunnar verði ekki skertir. Eftir Helga K. Hjálmsson Helgi K. Hjálmsson » Það er hart og lítilfjörlegt að beygja sig í duftið. Höfundur er fyrrverandi formaður leikmannastefnu í 20 ár. Leikmanna- stefna íslensku þjóðkirkjunnar Einstök ending og frábær fylgni við landið. Smáar stjörnur – betri dreifing og mun meiri ending. Notkun nefhjóla tryggir mun hreinna og verðmætara fóður. Pöttinger eru mest seldu heyvinnutæki á landinu til margra ára.* - og ekki að ástæðulausu. Ertu klár í sumarið? *samkvæmt samræmdum útflutningstölum evrópskra tækjaframleiðenda. Þú færð ekki Pöttinger í kassa. Við setjum hana saman og afhendum, tilbúna í sumarverkin. Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.