Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.03.2003, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 13.03.2003, Blaðsíða 10
IG hp vtst é il iNfun aldrei gleymt að kí® feBln ffi í lalddð ílasprautun Magga Jóns ehf. var stofnuð af Magnúsi I. Jónssyni og Helgu Jónínu Guðmundsdótt- ur í október 2002. Magnús Jónsson byrjaði að vinna við bíiamálun 1978 og útskrifaðist sem sveinn í faginu 1982. Árið 1984 hlaut hann nafnbótina meistari og starfaði síðan við fagið fram að árinu 1986. „Þá kom einhver leiði i mig og ég sótti um í lögreglunni þar sem ég starfaði til ársins 1999. Eg vann þó alltaf eitthvað í bílamál- un með lögreglustarfinu", segir Maggi. Hann segir að árið 1999 haft aft- ur verið kominn tími á breytingar og stofhaði hann þá ásamt Sverri Gunnarssyni fyrirtækið Ný- sprautun. Samstarf þeirra stóð yfir í um þrjú ár en því lauk í mars 2002. „Á meðan ég hugsaði minn gang starfaði ég í lögregl- unni í 7 mánuði og ákvað síðan að stofha Bílasprautun Magga Jóns“. Þegar Maggi lærði bílamálun var námið fjórar annir í fjölbraut og síðan fjögur ár á samningi hjá meistara. „Við vorum tveir að læra bílamálun á þessum árum að læra á Suðumesjum og hafði þá enginn lært bílamálun um nokkurt skeið. Þá var ekki margt í boði fyrir bílamálara og vomm við t.d. látnir taka litablöndunar og skiltagerðamámskeið með húsamálurum. Þá var engin Borgarholtsskóli þar sem öll að- staða er til fyrirmyndar fyrir iðn- aðarmenn hvort sem þeir em húsa-eða bílamálarar eða eitt- hvað annað". Bílamálun er mikil nákvæmnis- vinna og býsna krefjandi og margþætt. Maggi segir að sem betur fer gefist þeir fljótlega upp sem ftnni sig ekki í faginu og ltafa því flestir þeir sem starfa við þetta bara garnan af því. Hjá Bílasprautun Magga Jóns starfa fyrir utan Magnús tveir lærðir bílamálarar, einn lærður bifreiðasmiður og einn nemi í bílamálun. „Ég legg á það mikla áherslu að vera með menntaða fagmenn á mínu verkstæði vegna þess að mér finnst það skipta máli“. Maggi segir að vinnuferlið í bila- rnálun hafi breyst mikið síðan 1978. Þá vom menn að láta heil- rnála bíla og gera við bila sem vom í raun einskis virði. Þá vom heilu „boddyhlutimir" spartlaðir og nostrað við þá í marga daga áður en þeir vom málaðir með oliulakki og þá mátti ekki bóna fyrr en nokkmm vikurn síðar. 1 dag er þetta breytt og fer þar mest fyrir hraðvirkari efitum og betri tækjum. „Hjá okkur er t.d. nýr Nova Verta sprautuklefi sem er mjög afkastamikill og að mínu mati lykilatriði fyrir vandaðri og hraðari vinnubrögðum. Þá em alltaf einhverjar nýjungar á ferð- inni í bílamálun og sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þessu fagi fleygi fram eins og öðrum hvað tæknina varðar og munum við að sjálfsögðu fylgjast með þvi“. Aðspurður hvort eitthvað skond- ið hafa gerst á verkstæðinu, t.d. að bíll hefði verið sprautaður með vitlausum lit segist Maggi ekki muna eftir því. „Ég man ekki eftir að neitt drepfyndið ltafi gerst hér á verkstæðinu en eitt er víst að við höfum aldrei gleymt að setja herðinn út í lakkið, en það getur víst kornið fyrir á bestu bæjum". Bílasprautun Magga Jóns er Cabas verkstæði og sér um tjóna- mat fyrir flest tryggingafélög á Islandi. Þetta er mikil bylting fyr- ir hinn almenna bifreiðaeiganda þar sem hann getur nú farið beint á verkstæðið þar sem tjónið er metið og gert við bíllinn í fram- haldi af því. Biðraðir hjá trygg- ingafélögunum em þvi úr sög- unni og tímaspamaður bíleigand- ans mikill. Síminn GSM í alla bíla Björgunar- sveitarinnar Suðurnes Síminn kom færandi hendi til Björgunar- sveitarinnar Suðurnes í vikunni með myndarlegum stuðningi. Siminn gaf sveit- inni SonyEricsson GSM síma í fimm farartæki ásamt handfrjálsum búnaöi. Þá fékk sveitin einnig ADSL tengingu í björgunarstöðina við Holtsgötu í Njarðvík. Samhliða gjöfinni var einnig greint frá því að Björgunar- sveitin Suðurnes hefur fengið símanúmeraröð hjá Símanum GSM og þeir félagar í sveitinni sem tryggja sér þar númer rnunu hringja fritt sín á milli, hvort sem þeir eru að störfiim innan björgunarsveitarinnar eða utan þeirra starfa. Meðfylgjandi mynd er frá af- hendingu gjafarinnar. 10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.