Víkurfréttir - 13.03.2003, Blaðsíða 9
SS bílaleigan annast alla
bílaleigu fyrir herinn
-fyrirtækið bauð lægst í útbaði sem íár fram
Um áramótin fór fram
fon al þar sem óskað var
eftir bílaleigum sem
myndu annast leigu á Varnar-
liðssvæðinu og sóttu 6 bílaleig-
ur um að komast í hópinn.
Fjórar bílaleigur voru valdar í
hópinn og var SS bílaleigan sú
eina af Suðurnesjum. I kjölfar-
ið var efnt til útboðs og var SS
bílaleigan með lægsta tilboðið.
Sverrir Sverrisson fram-
kvæmdastjóri SS bílaleigunnar
sagði í samtali við Víkurfréttir
að hann væri gríðarlega
ánægður með samninginn við
Vamarliðið: „Þetta er eina leig-
an sem má vera starfandi á
vellinum og tekjuaukningin hjá
okkur verður mikil. Þetta er
samningur til tveggja ára, en
hann er með sjálfkrafa fram-
lengingu í þrjú ár þar á eftir
þannig að í raun er samningur-
inn til fimm ára.“
Sverrir gerir ráð fyrir að það
þurfi að fjölga bílum verulega:
„Við þurfum að fjölga bílum
og verðum með á bilinu 130 til
150 bíla í sumar,“ segir Sverrir
og bætir því við að SS bílar
hafi verið með starfsemi á Vell-
inurn: „Við höfum verið hjá
ferðaskrifstofii Vamarliðsins sl.
9 ár en nú hefur Verslun Vam-
arliðsins yfirtekið alla bílaleigu
á Keflavíkurfiugvelii og við
gerðum samning við þá,“ sagði
Sverrir að lokum.
fyrir flest tryggingafélög
Notum eing
gœöalöki
BfLASPRAUTUN MAGGA JÓNS
löavöllum 11 • Sfml 421 6909
Gsm 898 6909
bilasprautun@simnet.is
Alhliða bílasprautun og réttingar
Jón Sigfússon er 59 ára Suðurnesjamaður búsettur í
Njarðvík. Jón á Harley Davidson Sportster árgerð
1998 með 900cc vél. „Þetta er frekar lítið hjól en
öflugt miðað við stærð. Þetta er eitt vinsælasta hjól-
ið frá Harley þar sem verðið á því nýju er mjög hóf-
legt, í kringum eina milljón“, segir Jón í samtali við
VF-bílar.
Jón segist hafa verið á mótorhjólum frá 12 ára aldri.
„Ég byrjaði eins og margir aðrir að leika mér á
skellinöðrum og færði mig svo yfir í stærri hjólin
þegar ég náði aldri. Ég hef átt eitt og eitt hjól síðan.
Ég slappaði af í þessu þegar krakkarnir voru litlir en
eftir að þau uxu úr grasi og fóru að heiman tók ég
þráðinn upp að nýju“. Jón segist fara eins oft og
hann geti á hjólið, sérstaklega á sumrin. Hann er í
bifhjólaklúbbnum Emimir á Suðumesjum en í þann
klúbb eru skráðir yfir 100 manns. „Maður er svo
frjáls þegar maður geysist um götumar á risamótor.
Frelsið er ótrúlegf‘, segir Jón.
Á tímabili geymdi Jón Harley hjólið sitt inn í stofú
heima hjá sér. Aðspurður hvort að ástæðan fyrir því
væri sú að honum þætti svo vænt um hjólið svaraði
hann því neitandi. „Ég geymdi það í stofúnni vegna
plássleysis. Ég var með stóran bíl i bílskúmum og
því komst það ekki fýrir þar. Ég datt óvænt á hjólið
á ferð minni í Reykjavík einn daginn. Konan var
ekki heima og því kom ég því fyrir i stofúnni tíma-
bundið. Það var þó í stofunni lengur en ég ætlaði
mér en nú er það komið í geymslu". Eins og áður
sagði hefúr Jón verið á mótorhjóli nær allt sitt líf.
,Ætli maður fari ekki á þrihjól þegar ntaður er orð-
inn eldri og svo endar maður eflaust í hjólastól með
mótor“, segir Jón og hlær.
En að lokum myndir þú segja að þú værir eilífð-
artöffari?
„Já, ég get nú ekki neitað því. Ég er alltaf til í allt“.
VIÐ í SG BÓN ERUIVi AÐ
KAFNA í BÍLUM!
Allir vilja láta okkur í SG bón þrífa bílana sína svo við erum búnir I
að bæta við okkur meiri mannskap.
Verið velkomin til okkar í SG bón sem er stærsta bónstöð á Suðumesjum.j
I Við í SG bón notum aðeins bestu efnin á bílana.
| Allir fara glaðir og ánægðir frá okkur með nýþrifinn bílinn sinn. |
I Minnum á afsláttinn sem við bjóðum, komir þú í
með keppnistreyju í fótbolta eða körfubolta.
PANTAÐU TÍMA
STRAX!
SG bón og bílaleiga
Básvegi 8, Keflavík
Sími 421 3737 og 892 9700
Minnum á helgartilboðin á bílaleigubílum
Við bjóðum uppá:
Skol
Bón
Alþrif
Vélaþvott
Djúphreinsun
VÍKURFRÉTTIR 11. TÖLUBLAÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 9