Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.03.2003, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 13.03.2003, Blaðsíða 6
Úr leik UMFG og Breiðabliks! Grindjánar voru sterkir í leiknum. Metþátttaka á Samkaupsmóti Samkaupsmótið í körfu- knattleik sem fram fór um helgina þóttist takast með eindæmum vel. Allir voru sammála um það að vel hefði tekist til og eiga körfuknatt- leiksdeildir Keflavíkur og Njarðvíkur stórt hrós skilið fyrir undirbúning og umgjörð mótsins ásamt þeim tjölmörgu foreldrum og forráðamönnum sem komu að því. Samkaupsmótið í ár sló öll met hvað varðar þátttöku. Alls voru 81 lið frá 11 félögum skráð til leiks, eða rúmlega 600 börn í minnibolta 11 ára og yngri. Er þetta án efa eitt ijölmennasta körfiiboltamót landsins. Ekki var einungis leikinn körfu- bolti um helgina og var boðið upp á margt annað skemmtilegt. Má þar nefna bíóferðir, sundferð- ir, kvöldvöku þar sem Magnús Scheving fór hamförum sem leynigestur, pizzuveislur og margt fleira. Engin úrslit voru skráð á mótinu í anda minniboltans og léku því krakkamir einungis ánægjunnar vegna. Allir þátttakendur voru með, allir voru sigurvegarar og allir fengu viðurkenningu þar að lútandi, gullpening og penna- veski. Gleðin skein úr andlitum krakkanna og greinilegt að þeim þótti gaman að taka þátt í þessu rnóti sem eflaust á eftir að sitja sem fastast í minningunni um ókomna tíð. Sigur í lokaleik deildarmeistaranna Keflavík sigraði KR í spcnnandi leik, 73:71, í síðustu umferð 1. deild- ar kvenna í körfuknattlcik. Erla Þorsteinsdóttir og Anna María Sveinsdóttir tryggðu hcimastúlkum sigurinn en þær skoruðu mikilvægar körfur í lokin. Keflavíkurstúlkur, sem höfðu tryggt sér dcildartitilinn fyrir löngu fengu bikarinn afhentan að lcik loknum. Þá tapaöi Njarðvík fyrir ÍS, 81:75 og Grindavík sigraði Hauka 91:59 í lokaumferðinni. Anna Maria Sveinsdóttir, þjálfari sagðist hafa búist við hörku leik. „Það var ekkert erfitt að fá stelpumar til að spila á fullu þótt við hefðum verið búnar að trygg- ja titilinn fyrir löngu. Við unnum deildina ömggt en nú er ný kepp- ni að byrja þar sem við ætlum okkur ekkert annað en sigur“, sagði Anna Maria í leikslok. Keflavík mætir Njarðvík i undanúrslitum og Grindavík mætir KR. í Reykjanesbæ Bikarúrslit yngri flokka í körfuknattleik fóru fram á Ásvöllum í Hafnarfirði um sl. helgi. Njarð- vík vann flesta titla um helgina en félagið náði þremur titlum í hús, í 9. flokki karla, drengja- flokki og 11. flokki karla. Keflavikurstúlkur stóðu sig einnig vel en þær sigruðu bæði í 9. flokki og unglingaflokki. Urslit um helgina: 9. flokkur kvenna: Keflavík - Njarðvík: 55-31 9. flokkur karla: Njarðvík - Fjölnir: 58-51 Unglingaflokkur kvenna: Keflavík - Haukar: 57-54 Drengjaflokkur Njarðvík - Fjölnir: 87-46 11. Ilokkur karla: Njarðvík - ÍR: 75-56 Nánar á mvw.vf.is. Fleiri myndir birtast i nœsta blaði! 6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.