Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.04.2003, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 10.04.2003, Blaðsíða 12
Tílboð l*u.nc)bestir í pizzum. \>aríát eftírlíkíngar! TílboSnr. 1 ta. |aÍ22a m/a álegg Framboðsfundur á Ránni Framboðsfundur var haldinn á veitinga- staönum Ránni sl. mánudagskvöld þar sem efstu Suðurnesjamenn allra stjórnmáia- flokka, utan Sjálfstæðisflokks héldu framsögur og svöruðu spurningum. Fundurinn var haldinn eftir að Kallinn á kassanum skoraði á fulltrúa allra flokka að mæta á fundinn og kynna sín stefnumál. Fundurinn var vel sóttur og mynduð- ust fjörugar umræður. Fundarstjóri var Kjartan Már Kjartansson og stýrði hann fundinum af mikilli röggsemi. Töluvert var um fyrirspurnir og var mest rætt um skatta- og sjávarútvegsmál. Einnig var komið töluvert inn á málefni sem tengjast Suðurnesjum s.s. málefni HSS, Flug- stöðina og Varnarliðið. Frambjóðendur allra flokka svöruðu fyrirspurnum af kostgæfni og í lok fundarins fengu þeir eina og hálfa mínútu fyrir lokakynningu. Fjölbreyttar tillögur hóps áhuga á Gluggahreinsun og glerfilmu. Ódýrara en þú heldur. verkmenn Alhliða Hreingemingar Upplýsingar og pantanir í síma 896 2604 manna um atvinnu- og búsetuupp byggingu á Suðurnesjum Isíðustu viku voru kynntar tillögur hóps áhugamanna um atvinnu- og búsetuupp- byggingu á Suðurnesjum á veitingastaðnum Ránni. Hjálmar Arnason alþingismað- ur kynnti vinnu starfshópsins og sagði að eftir fund um at- vinnumál sem haldinn var í Sandgerði fyrir stuttu hafi ver- ið ákveöið að setja á fót áhuga- hópinn og fylgja eftir þeim um- LEIKFELAG KEFLM Unglingadeild Leikfélags Keflavíkur sýnir í Frumleikhúsinu w Þetta er allt Snjólfur“ Höfundur: Guðjón Sigvaldason. Leikstjóri: Kjartan Guðjónsson. 7. sýning laugardaginn 12. apríi, kl. 20. 8. sýning sunnudaginn 13. apríl, kl. 20. 9. sýning þriðjudaginn 15. apríl, kl. 20. ATH: Allra síðustu sýningar Miðasalan opnuð kl.18 sýningardagana. Miðaverð kr. 1200,- Miðapantanir í síma 421 2540. ræðum sem urðu á fundinum í Sandgerði. í hópnum voru fjöl- margir aðilar sem allir tengjast Suðurnesjum og sagði Hjálmar að markmið hópsins í þessari vinnu hafi verið Ijögur: Að fjöl- ga þurfi litlum og meðalstórum fyrirtækjum á svæðinu og örva nýsköpun og þróun í atvinnu- lífinu; Að efla þurfi íjölbreytni og gæði menntunar á svæðinu; að breyta þurfi ímynd svæðis- ins og draga fram jákvæð sam- félagsleg gildi og að uppbygg- ing svæðisins þurfi að hvíla á sérstöðu svæðisins sem tengist náttúruauðlindum og sérþekk- ingu á svæðinu. Vinnuhópurinn samanstóð af um 20 einstaklingum, bæði brott- fluttum eða búsettum á Suður- nesjum. I skýrslu hópsins koma fram margar mjög áhugaverða tillögur varðandi atvinnuupp- byggingu á Suðumesjum. Fjaílað er um nauðsyn þess að bæta ímynd og innri uppbyggingu Suðurnesja og lagðar eru fram nokkrar tillögur í þeim efnum, s.s. að framkvæma markaðsáætl- un fyrir Reykjanesið í heild sinni, setja á fót sérstakt umhverfisátak og er lögð mikil áhersla á að efla þurfi ráðgjöf og þjónustu við frumkvöðla. Hjálmar, sem tók það sérstaklega fram að hann væri ekki að kynna tillögumar á pólitiskum forsendum sagði að öllum hlutaðeigandi aðilum hefði verið sent skýrslan og málinu yrði fylgt eftir. Skýrslan verður aðgengileg á fréttavef Víkur- frétta, vf.is næstu daga þar sem lesendur geta kynnt sér nánar til- lögur hópsins. Varstu eða ertu á myndlistar- námskeiði hjá Félagi myndlista- manna á árinu 2002 - 2003? Orðsending frá Félagi myndlistarmanna í Reykjanesbæ til allra, barna og fullorðinna, sem verið hafa eða eru á námskeiðum hjá félaginu á síðasta ári. Helgina 25. til 27. april n.k. verð- ur haldin FRÍSTUNDAHELGI í Reykjanesbæ. Félag myndlistar- manna hefur ákveðið að taka þátt i hátíðarhöldunum með því að hafa opna sýningu á myndum sem unnar vom á námskeiðum vetrarins. Því leitum við til ykkar sem tók- uð þátt í námskeiðunum og biðj- um ykkur að lána verk til sýning- arinnar. Gert er ráð fyrir einni mynd eða verki ffá hveijum þátt- takanda og þið megið sjálf velja það verk sem þið viljið sýna. Hér er ekki um að ræða mál- verkasýningu, heldur yfirlitssýn- ingu sem er ætlað að gefa mynd af því fjölbreytta starfi sem er hjá félaginu og um leið þeim mikla myndlistaráhuga sem er hjá suð- umesjamönnum. Þeir sem era tilbúnir að taka þátt í þessari skemmtilegu uppákomu era beðnir að hafa samband við formann félagsins Hjördísi Áma- dótturs: 421 3389 og 862 5299 eða Þóra Jónsdóttur, varafor- mann s: 421 5197 sem fyrst. 12 VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.