Víkurfréttir - 10.04.2003, Blaðsíða 17
Keflavíkurstúlkur
íslandsmeistarar 2003
Kvennalið Keflavíkur
tryggði sér íslands-
meistaratitilinn í
körfuknattleik í síðustu viku
er liðið lagði KR að velli í
þriðju viðureign liðana í úr-
slitum, 82:61 en staðan í hálf-
leik var 43:42. Keflavík hafði
betur í þremur viðureignum
liðana í úrslitarimmunni.
Þetta er í 10. sinn sem Kefla-
vík fagnar Islandsmeist-
aratitlinum í kvennaflokki í
körfuknattleik. Sonja Ortega
skoraði 18 stig fyrir Keflavík
og Birna Valgarðsdóttir 16.
Þetta er í sjötta sinn sem
Keflavík hefur betur gegn
KR í úrslitum íslandsmótsins
en liðin hafa mæst alls átta
sinnum.
Kristin Blöndal fýrirliði Kefla-
víkurliðsins var að vonum
ánægð með að hampa Islands-
meistaratitlinum í áttunda sinn.
„Þetta er frábær tilfinning og
við allar erum búnar að brosa í
hring síðan á miðvikudag, við
erum ekkert smá glaðar yfir
þessu. Þetta er alltaf jafn sætt en
kannski sætara núna af því við
höfum ekki haft erindi sem erf-
iði í úrslitakeppninni síðustu
tvö tímabil þannig þetta var ein-
staklega ljúft". Aðspurð hvort
hún hafi átt von á svona mikl-
um yfirburðum í úrslitakeppn-
inni sagðist Kristin einhvern-
vegin hafa fundið það á sér að
þær myndu fara taplausar í
gegnum alla úrslitakeppnina.
„Við erum með mikla breidd og
það olli erfiðleikum fyrir hin
liðin. „Það var ekkert hægt að
stoppa einhvem einn leikmann
hjá okkur og svo erum við líka
með hörku gott vamarlið. Eg
held einnig að við höfiim verið
í betra formi heldur en hin lið-
in“. Kristín sagði að framtíðin í
kvennakörfunni í Keflavík væri
mjög góð. „Já, það er óhætt að
segja að ffamtíðin sé björt hér í
Keflavík. Við eigum frábærar
stelpur í yngri flokkunum sem
eiga án efa eftir að halda merki
kvennaboltans í Keflavík á lofti
í ffamtíðinni. Yngriflokkastarf-
ið hjá stelpum í Keflavík er og
hefur alla tíð verið mjög gott.
Það er alltaf verið að ffamleiða
góðar körfuboltastelpur héma í
Keflavík“, sagði Kristín bros-
mild að lokum.
Anna María Sveinsdóttir þjálf-
ari sagðist ekki hafa átt von á
svo léttum leikjum gegn KR.
„Við reyndar spiluðum mjög
vel þessa úrslitakeppni og spil-
uðum sem lið. Þetta endur-
speglar bara veturinn hjá okkur
því við spiluðum virkilega vel í
allan vetur og stelpurnar eru
búnar að vera hrikalega dugleg-
ar og svakalega skemmtilegar“.
Anna María sagði að þetta væri
í raun sætasti Islandsmeistara-
titillinn af öllum enda létu þær
það alveg í ljós eftir leikinn.
„Það voru allar stelpurnar
svakalega sáttar við sitt og ég
var svo ánægð með alla sem
lögðu sitt af mörkum til að
þetta tækist, góður aðstoðar-
maður, góð stjórn og frábært
kvennaráð svo og allir aðrir
sem ég gleymi að nefna".
En að lokum Anna María,
leggur þú skóna á hilluna eft-
ir tímabilið?
NEI, NEI, ég á nóg eftir mað-
ur!“
Marin Karlsdóttir lék mjög vel
með Keflavíkurliðinu í allan
vetur og stjórnaði leik liðsins
eins og herforingi. Hún þakkaði
góðu liði sem æfl hefur vel ár-
angur vetrarins og sagði hún
mikla breidd lykilinn að góðu
gengi. „Einvígið gegn KR var
eiginlega miklu auðveldara en
ég bjóst við, ég bjóst við að
leikimir yrðu mun jafnari en
vissi samt að við myndum
vinna“. Hún sagði það ffábæra
tilfinningu að vinna titilinn
enda alltaf gaman að vinna titil.
„Að vinna KR 3-0 er ekkert
leiðinlegt. Fólk hættir kannski
að önglast á bikarúrslitaleikn-
um núna“, sagði Marín. Að-
spurð hvemig Keflavíkurstúlk-
ur hefðu fagnað eftir leikinn
sagði Marín að þær hefðu feng-
ið kampavínsgusu frá kvenna-
ráði strax eftir leikinn og var
því haldið áfram í K-húsinu.
föstudaginn var svo farið í Bláa
lónið þar sem við fengum dryk-
ki „on the house“, og svo í
„bijálað" partý hjá þjálfaranum.
Við eigum svo auðvitað eftir að
fagna meira en við ætlum að
bíða eftir strákunum!".
Fyrst og fremst:
Hjálmar Jónsson fyrrum leikmaður Keflavíkur lék 30 mínútur
með Gautaborg í 2-1 tapi liðsinsgegn Landskrona í 1. umferð
sænsku úrvalsdeildarinnar.
Logi Gunnarsson skoraði 19 stig þegar Ulm sigraði
Kaiserslautern, 94:76 í þýsku 2. deildinni í körfuknattleik. Liðið
á enn möguleika á sæti í úrvalsdeild en þeir möguleikar eru þó
aðeins fyrir hendi tapi toppliðið flestum af síðustu leikjum liðsins.
Scott Ramsey, fyrrum leikmaður Grindavíkur í knattspyrnu, er nú
einnig orðinn fyrrum leikmaður KR en hann hætti hjá félaginu í
vikunni eftir að hafa samið við þá fyrir nokkru. Ástæðan ku vera
persónuleg en menn gera að því skóna að hann hafi verið smeyk-
ur við samkeppni frá Arnari Gunnlaugssyni.
Lee Sharpejék fyrsta leik sinn með Grindavík þegar liðið sigraði
úrvalslið ÚÚ, 3-1 á æfingamóti á Spáni í byrjun vikunnar. Hann
lék allan leikinn og þótti góður. Jóhann Benediktsson, Alfreð Jó-
hannsson og Ólafur Örn Bjarnason skoruðu mörkin.
Brúðkaup Fígarós í Grindavík
Gunnar Kristmannsson
baríton, Rósalind Gísla-
dóttir mezzo-sópran,Val-
gerður Guðrún Guðnadóttir
sópran og Frank Herlufsen pí-
anóleikari flytja valin atriði úr
Brúðkaupi Fígarós, einni af
frægustu óperum Mozarts á
morgun í Kvennó við Víkur-
braut í Grindavík og hefjast
þeir kl. 20:00. Víkurfréttir
höfðu samband við Rósalindu
og spurðu hana aðeins út í tón-
leikana.
Hvernig tónleikar verða þetta?
Yfirskriftin á tónleikunum er
„Brúðkaup Fígarós, valin atriði".
Við flytjum aríur, dúetta og trió á
þessum tónleikum. Það sem
verður frábrugðið venjulegum
tónleikum er að við verðum í
búningum í anda 18. aldar og
með leikræna tilburði.
Af hverju vöiduð þið þessa óp-
eru eftir Mozart?
Mozart er í miklu uppáhaldi hjá
okkur öllum og Brúðkaup Fíg-
arós er ein af ffægustu óperum
hans og er hún uppfull af
skemmtilegri
tónlist. Við átt-
um satt að segja
erfitt með að
velja úr óper-
unni, hefðum
helst viljað setja
upp alla óperuna,
en við erum bara
þrír söngvarar og
píanóleikari.
Hafið þið áður
haldið slíka tón-
leika áður?
Við höfum áður
haldið tvenna
tónleika saman, það voru óperu-
tónleikar með okkur þremur og
þremur söngvurum til viðbótar.
Þeir tónleikar gengu mjög vel.
Hvernig lágu ieiðirykkar sam-
an?
Við byijuðum öll sama ár í söng-
skólanum í Reykjavík, þar lærðu
Rósalind og Valgerður söng hjá
Olöfu Kolbrúnu Harðardóttur og
Gunnar hjá þeim Guðmundi
Jónssyni og Bergþóri Pálssyni.
Að námi loknu fór Valgerður í
ffamhaldsnám til Englands en
Gunnar og Rósalind til Spánar.
Frank kynntumst við eftir að
Gunnar og Rósalind fluttu til
Grindavíkur þar sem Gunnar
starfar sem skólastjóri tónlistar-
skólans i Grindavík og Frank og
Rósalind starfa sem kennarar.
Tónleikamir verða eins og áður
segir kl. 20:00 á morgun og em
Miðar seldir við innganginn, en
einnig er hægt að panta miða í
síma 823-3289. Húsið tekur ca.
90 manns og er ætlunin að fylla
það!
Starfsmaður óskast
Óskum eftir að ráða
röskan og kurteisan starfsmann
til að sinna útkeyrslu og fleiri störfum.
PLASTGERÐ
Áhugasamir hafi samband við
^Skúla Magnússon í síma 860 3837.
SUÐURNESJA/
VlKURFRÉTTIR 15.TÖLUBLAÐ FIMMTUDAGUR10. APRlL 2003 17