Víkurfréttir - 30.05.2003, Blaðsíða 10
Allir þeir sem eru á reiðhjóli ættu að vera
með viðurkenndan hlífðarhjálm, en lög-
um samkvæmt er öllum yngri en 15 ára
skylt að nota hlífðarhjálm við hjólreiðar.
Lögreglan mun á næstunni vera með átak og
fylgjast sérstaklega með að þessuni lögum sé
ffamíýlgt. Lögreglan mun hafa afskipti af bömum
yngri en 15 ára sem eru á reiðhjóli og eru ekki
með hlífðarhjálm, taka niður nafn þeirra og heim-
ilisfang. Foreldrar þeirra fá síðan sent bréf frá lög-
reglunni um þessi afskipti og afrit af bréfinu verð-
ur sent til Bamavemdarnefodar.
Foreldrar bera ábyrgð á bömum sínum: Foreldrar
þurfa að meta hvort að barn þeirra hefor þroska til
að nota reiðhjól og hvort að umferðaraðstæður em
þannig að þau geti bjargað sér án fylgdar. Al-
menna reglan er sú að böm undir 12 ára aldri hjóli
aðeins á göngu-og hjólreiðastígum, fyrr hafa þau
ekki þann þroska og reynslu sem þarf til að hjóla
samhliða bifreiðum.
Lögreglan gerði könnun á notkun hlifðarhjálma
hjá bömum sem kornu á reiðhjólum í skólann á
morgnana og var könnunin gerð dagana 24.-29.
apríl s.l. Er skemmst frá því að segja að ástandið
er mjög slæmt, fæst börn voru með hlífðarhjálma.
Af 88 börnum sem komu á reiðhjóli í skólann
vom 53 böm ekki með hjálm eða 60 %.
Nokkur atriði sem ber að hafa í huga varðandi
hjólreiðahjálma:
1. Allir hjálmar eiga að vera CE merktir sem þýðir
að þeir uppfylli lágmarkskröfur um öryggi.
2. Hjálminum eiga að fylgja islenskar leiðbeining-
ar
3. Hjálmurinn þarf að vera af réttri stærð, merking
sem sýnir stærð hans er inni í honum.
4. Foreldrar þurfa að fylgjast reglulega með að
hjálmurinn sé rétt stilltur, hann sitji þétt á höfðinu.
5. Hjálmur í skæmm litum sést best í umferðinni.
6. í kulda er best að nota þunna lambhúshettu eða
sérstakar eymahlífar.
7. Hvorki má líma merki eða mála á hjálminn,
höggþol getur þá minnkað.
8. Ef börn eru reidd á hjóli er skilyrði að þau séu í
sérstöku sæti með hjálm.
Hjálmur er höfuðatriði
Unglingaráð í Reyl
Bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar samþykkti á
fundi sínum þann 20.
maí sl. að koma á fót Unglinga-
ráði Reykjanesbæjar sem skip-
að verði formönnum nemenda-
félaga grunnskólanna, einum
fulltrúa nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og ein-
um fulltrúa unglinga 16 og 17
ára sem ekki eru í námi sem fé-
Iagsmiðstöðin Fjörheimar mun
tilnefna. Forstöðumanni Fjör-
heima er falið að starfa með
Unglingaráðinu.
Tillöguna fluttu Bryndis Hjálm-
arsdóttir formaður nemendaráðs
Holtaskóla, Kristín Helga Magn-
úsdóttir formaður nemendaráðs
Myllubakkaskóla, Ingibjörg Osk
Erlendsdóttir formaður nem-
endaráðs Njarðvíkurskóla og
Landhelgisgæslan með sýnikennslu í Keflavík:
Öryggísstarfsmenn á Keflavíkurflugvelli á námskeiðinu í í
síðustu viku, en hópurinn lýkur námskeiðinu með prófi.
Texti og myndir: Jóhannes Kr. Kristjánsson
SPRENGJUR SEM
VALDA STÓRTJÓNI
Idag fór fram sprengjusýn-
ing á Varnarliðssvæðinu við
KeflavíkurtlugvöII þar sem
sprengjudeild Landhelgisgæsl-
unnar sýndi öryggisstarfs-
mönnum á Keflavíkurflugvelli
aileiðingar sprenginga af ýms-
um tegundum af sprengjum.
Námskeiðið er haldiö af Flug-
málastjórn á Keflavíkurflug-
velli og er það ætlað fyrir ör-
yggisstarfsmenn sem starfa á
vegum Sýslumannsembættisins
á Keflavíkurflugvelli. Arngrím-
ur Guðmundsson yfireftirlits-
maður Öryggissviðs Flugmála-
stjórnar á Keflavíkurflugvelli
hefur byggt upp námskeiöið og
útbúið námsefni.
Námskeiðið skiptist í bóklegan
og verklegan hluta og að sögn
Arngríms er farið yfir bóklega
hlutann á fjórum dögum. “í verk-
lega hluta námskeiðsins felst
þjálfun öryggisstarfsmanna í
sprengjuleit með sérstökum
röntgenleitarbúnaði.” Arngrímur
segir að námskeiðið sé byggt upp
samkvæmt kröfom Alþjóðaflug-
málastjómarinnar og samtökum
flugmálastjórna í Evrópu. „A
námskeiðinu er farið í gegnum
alla þætti sem tengjast þeirri
vinnu sem öryggisstarfsmenn á
flugvöllum sinna. Kröfomar em
alltaf að verða meiri á þessu sviði
Það er mikill kraftur í 100 gr. bréfasprengju.
og menn þurfa að ljúka ákveðnu
prófi og ná lágmarkseinkunn til
að geta hafið störf við öryggis-
störf á flugvöllum.” Arngrímur
sem hefur lokið námi frá IATA
skólanum í Bandaríkjunum þar
sem hann útskrifaðist með stjóm-
unargráðu í öryggismálum á al-
þjóðaflugvöllum segir að Flug-
málastjórn á Keflavíkurflugvelli
hafi séð urn þjálfun fyrir Flug-
málastjóm íslands. „Við höfum
séð um þjálfun öryggisstarfs-
manna á Reykjavíkurflugvelli,
Egilsstaðaflugvelli og Akureyrar-
flugvelli.”
Hluti af námskeiðinu byggist á
verklegri kennslu varðandi
sprengjur og sprengiefni og sér
Sprengjudeild Landhelgisgæslu
íslands um þann þátt námskeiðs-
ins. Sigurður Asgrímsson
sprengjusérfræðingur Landhelg-
isgæslunnar sér um kennsluna og
segir hann að farið sé í gegnum
ýmis atriði varðandi sprengjuleit
og sprengjuhótanir. „Við förum í
gegnum hvað beri að varast við
sprengjuleit og skoðum stærð
sprengja og sprengikraft. Við
sýnum eimrig afleiðingar spreng-
inga algengra sprengja.”
A meðfylgjandi myndum má sjá
sprengingar sem framkvæmdar
voru af Sprengjudeild Landhelg-
isgæslunnar fyrir öryggisstarfs-
menn Keflavíkurflugvallar í
morgun.
10
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!