Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.05.2003, Síða 12

Víkurfréttir - 30.05.2003, Síða 12
VÍKURFRÉTTAVIÐTALIÐ \' m R iTR' 1 Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ í viðtali 1 f Víkurfréttum í dag er síðari hluti viðtals við Árna Sigfússon bæjarstjóra, en fyrri hluti viðtalsins birtist í síðustu viku. í júní er ár síðan Árni tók við bæjar- stjórastarfinu. í viðtalinu svarar Árni meðal annars spurningum um framboð til alþingis og spurningum varðandi uppbyggingu í Helguvík. Árni segir í viðtalinu að tvö erlend stórfyrirtæki séu að skoða möguleika á uppbyggingu í Helguvík en að of snemmt sé að segja hvort þau hefji starfsemi hér. Væri kominn á Alþingi ef hann vildi ■ Vareinhveróánægjameðal starfsmanna áhaldahússins við uppsagnir í kjölfar breytinga á áhaldahúsinu? Sjaldnast rikir gleði þegar menn eru færðir úr einu starfi í annað. Við breytingar á rekstri þjónustu- miðstöðvar eða áhaldahússins, var sex starfsmönnum ofaukið. I stað þess að þeim væri sagt upp án þess að þeir hefðu að öðru að hverfa, var þeim boðið starf hjá öðrum verktökum sem tengdust sambærilegum verkefnum og Þjónustumiðstöð hafði séð um. Þeir reyndust eftirsóttir og því leystist málið mjög farsællega. ■ Fengu allir starfsmenn áhaidahússins vinnu? Allir fengu vinnu. Sex fóru ann- að en tólf halda störfum hjá þjón- ustumiðstöð, þótt störf þeirra breytist nokkuð. Ég vildi gjarnan að þeir sem gagnrýna horfi í eig- in barm og velti því fyrir sér hvort að þetta sé nú ekki kjörin leið hjá fleirum til að tryggja fólki vinnu, ef þarf að segja upp fólki. ■ Framkvæmdir eru hafnar í Helguvík vcgna stálpípuverk- smiðjunnar, en á dögunum var frestur sem fyrirtækið hefur til að fjármagna verksmiðjuna lengdur. Ertu hræddur um að ekkert verði úr framkvæmd- um? Nei. Ég hafði mínar efasemdir og ég held að það hafi alltaf komið fram að ég væri ekki tilbúinn til að segja að þetta væri klárt fyrr en bygging væri hafin. Það stendur. Eftir að hafa nýlega farið yfir stöðu málsins með forsvars- mönnum IPT þykir mér líkumar á að fyrirtækið risi stöðugt vera að aukast og það er mjög góð til- finning. í samningnum við Intemational Pipe and Tube var tekið fram að IPT hafði tíma til 24. maí sl. til að annaðhvort hafa lokið fjár- mögnun eða leggja fram banka- bréf sem ffamlengdi fjármögnun- arlok um ár. Okkur tókst að semja um skemmri tíma á fjár- mögnunarlokum því IPT telur sig þurfa 3 til 6 mánuði til að klára fjármögnun. ■ Var bærinn of fljótur á sér að samþykkja jarðvegsfram- kvæmdir fyrir stálpípuverk- smiöjuna? Nei, alls ekki. Meginskýringin á því er að við emm að skapa at- vinnusvæði í Helguvík sem verð- ur eitt það besta hér á landi. An öflugrar atvinnu verður ekkert Árni í Innri-Njarðvfk og má sjá leikskólann Holt í baksýn. Á þessu svæði mun nýr grunnskóli rísa. mannlífhér. ísland ermjög vel staðsett mitt á milli Evrópu og Bandaríkjanna og þessi staðsetn- ing innan íslands þykir mjög áhugaverð, á milli alþjóðahafhar og alþjóðaflugvallar. Með eða án stálpipuverksmiðju þá á þetta svæði eftir að laða að sér fjölda atvinnutækifæra. Tilboðið sem Reykjanesbær fékk í jarðvegs- vinnu í Helguvík er einstaklega gott og hljóðar aðeins uppá 60% af kostnaðaráætlun. Það tækifæri var gripið. ■ Eru einhver fleiri erlend stórfyrirtæki að skoða aðstöðu í Helguvík? Já. Það em tvö erlend stórfyrir- tæki sem hafa verið að spyijast fýrir um svæðið, en það er alltof snemmt að segja til um hvert það leiðir. Þriðja dæmið er reyndar annar áfangi stálpípuverksmiðju- nnar sem er mjög stórt dæmi. Innlend fýrirtæki hafa einnig ver- ið að spyrjast fýrir um aðstöðu á svæðinu því þau sjá heilmikla möguleika varðandi uppbygg- ingu. ■ Hafa fulltrúar þessara fýr- irtækja komið hingað til lands til að skoða aðstæður? Fulltrúar annars fýrirtækisins hafa komið og skoðað. Þeim full- tnium þótti aðstæður hér góðar en það er aðeins einn hluti af ákvarðanatöku þeirra varðandi staðsetningu fýnrtækisins þvi líta þarf á ótal fleiri þætti í slíku mati. ■ Hvernig sérðu Helguvík fyrir þér eftir 5 ár? Ég sé fýrir mér stórfýrirtæki að festa rætur og þar á meðal stál- pípuverksmiðjuna. Þar gæti einn- ig hugsanlega verið að mótast annar áfangi verksmiðjunnar sem verður enn stærri í sniðurn en sá fýrsti. I seinni áfanga stálpipu- verksmiðjunnar er gert ráð fýrir því að stærri stálrör verði fram- leidd, allt upp í einn metri í þver- mál. Við höfum ekki viljað mikið ræða þær hugmyndir þvi fýrst þarf 1. áfangi að vera í höfn. Ég sé einnig fýrir mér fleiri innlend fýrirtæki vera að hefja uppbygg- ingu eða að skoða ákveðna möguleika. Svæðið erkjörin að- staða fýrir minni iðnfýrirtæki einnig og þannig er það skipu- lagt. Helguvíkursvæðið samsvar- ar rúmlegri stærð 55 knatt- spymuvalla, svo öllum sé ljóst hvílíkt flæmi þetta er. Það er ein- stakt að hafa öðru megin stór- skipahöfn og hinumegin alþjóða- flugvöll. Eftir fimm ár verða mög hundruð störf í Helguvík. ■ Nú hefurðu verið með sér- staka íbúafundi í Reykjanesbæ síðustu vikur. Hvað hefurðu verið að kynna á þessum fund- um og voru þeir vel sóttir? A fimmta hundrað manns sóttu íbúafundina sem er einstaklega gott. A þessum fundum gerði ég grein fýrir framkvæmdum út frá stefiiu bæjarstjómar í ýmsum málaflokkum og sóttist eftir ábendingum íbúa. Það skiptir máli að íbúamir hugsi það með okkur hvemig þeir vilji sjá bæinn til framtíðar. A fundunum hef ég einnig fjallað um afmarkaðri Eru einhver fleiri erlend stórfyrirtæki að skoða aðstöðu í Helguvík? lá. Það eru tvö erlend stórfyrirtæki sem hafa verið að spyrjast fyrir um svæðið, en það er alltof snemmt að segja til um hvert það leiðir. Þriðja dæmið er reyndar annar áfangi stálpípuverksmiðjunnar sem er mjög stórt dæmi. Innlend fyrirtæki hafa einnig verið að spyrjast fyrir um að- stöðu á svæðinu því þau sjá heilmikla möguleika varðandi uppbyggingu 12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.