Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.05.2003, Síða 16

Víkurfréttir - 30.05.2003, Síða 16
VF-sport heldur áfram að kynna knattspyrnuliðin á Suður- nesjum til leiks. Núna er komið að eina kvennaliðinu sem kynnt verðurtil leiks en það er RKV, sameiginlegt lið Reynis, Keflavíkur og Víðis. Liðið leikur í 1. deildinni í sumar. RKV ætti að berjast á toppnum Sameiginlegt lið RKV ætti ekki að láta sér lynda að vera í 1. deild. Þetta lið á að geta blandað sér í baráttuna um sæti í úrvalsdeild ef metnaðurinn cr fyrir hendi. Þó er spurningin auðvitað sú hvort liðið hefði eitthvað í úrvalsdeild að gera. RKV hefur á svipuðu Iiði aó skipa og í fyrra. Hefur bætt við sig sterkum ieikmönnum frá Grindavík, sem dró lið sitt úr keppni, en hefur þó misst aðal markaskorara liðsins, Nínu Ósk Kristinsdóttur sem farin er í Val. Liðið verður eflaust í toppbaráttunni en er þessa stundina ekki nógu gott til að leika í úrvalsdeild. VF-spá: 2. sætið í riðlinum Sjálfsbjörg á Suðurnesjum heldur aðalfund sinn í húsi félagsins að Fitjabraut 6c, Njarðvík, laugardaginn 31. maí 2003 kl. 14. Kaffiveitingar. Stjórnin SPJALL VIÐ ÞJALFARA Hannes Jónsson þjálfari RKV segist líta björtum augum til sumarsins. „Mér líst ágætlega á komandi sumar. RKV liðið er að koma þokkalega undirbúið til leiks og flest lið búin að styrkja sig að einhveiju leyti þannig að baráttan verður mun meiri í deildinni í ár”, segir Hannes. RKV hóf tímabilið með sigri á HSH og sagði Hannes að það væri alltaf mikilvægt að hefja tímabil með sigri upp á sjálfs- traustið að gera. „Leikurinn við HSH var mjög erfiður og við vorum ekki að spila vel en þijú stig eru alltaf þijú stig”. Hannes segir að stefna liðsins sé sett á að komast í úrslitakeppnina um laust sæti í úrvalsdeild, það verði erfitt en vonandi nái liðið því takmarki. Aðspurður hvort ekki væri mikill söknuður í Nínu Ósk Kristinsdóttur sem horfin er á brott sagði Hannes að það væri alltaf erfitt að sjá á eftir góðum leikmönnum. „Nína er mjög sterkur leikmaður og það er alltaf erfitt að sjá á eftir sterkum leik- mönnum en það kemur maður í manns stað”. Hann segir að styrkur liðsins felist í góðum og stórum hóp sem er mjög samrýmdur og vinn- ur þar að leiðandi vel sarnan. „Eg held að sóknarlega séð séum við sterkar, mjög fljótar fram á við. Við erum með sterkan mark- mann sem er mjög mikilvægt í kvennaboltanum. Veikleikarnir virðast alltaf vera að skjóta upp kollinum þegar maður á síst von á þeirn og eru þeir í ýmsu formi og vinnum við úr þeim jafnóð- um. Vonandi verða þeir færri þegar líður á tímabilið”. Hannes segir að kvennaboltinn á íslandi sé orðinn mun skemmtilegri að horfa á en áður. „Það eru alltaf einhveijar nýjar stelpur að koma fram á sjónarsviðið og verður vonandi áframhald á því. Því miður er erfitt fyrir minni liðin eins og okkur að halda í þessar stelpur þar sem að stærri liðin bjóða þessum stelpum hitt og þetta sem að við eigum erfiðara með að gera. Þar af leiðandi verður erfiðara fyrir okkur að halda okkar stelpum og um leið að nálgast stóru liðin í getu. En ég held að þetta verði skemmti- legt mót í báðurn deildum og lokastaða kemur á óvart’’. Hörbuxur stærð S-XXL kr. 1990,- ($< alóma Víkurbraut 62 - sími 426 8711 Félag hjartasjúklinga á Suðurnesjum AÐALFUNDUR félagsins verður haldinn fimmtudaginn 5. júní nk. kl. 20.30 í húsi Iðnsveinafélags Suðurnesja, Tjarnargötu 7, Keflavík. Dagskrá 1. venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tækjakaup til sjúkrahússins f tilefni 20 ára afmælis landssamtakanna. 3. Önnur mál. Kaffiveitingar. Félagar, mætið vel og stundvíslega. Stjórnin SUNDNÁMSKEIÐ f KEFLAVÍK 16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.