Fréttablaðið - 25.01.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.01.2017, Blaðsíða 4
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 11-15 28. - 29. janúar FRUMSÝNING félagsmál „Við erum hér til að hjálpa heimilislausum á Íslandi. Við myndum aldrei vilja skaða þá,“ segir Sonul Badiani Hamment, sem kom með tvö hundruð  pelsa frá dýraverndunarsamtökunum PETA til að gefa heimilislausu fólki. Fjölskylduhjálp Íslands deilir út pelsunum sem eru merktir með litum. Er fréttir af þessu bárust í gær gagnrýndu margir þessa tilhögun. „Þetta er fyrst og fremst niður- lægjandi fyrir þann sem ætlar að gefa þetta. Að ætla að merkja fólk sem er fátækt,“ sagði Vilborg Odds- dóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálpar- starfi kirkjunnar, við Vísi. .„Mér finnst nú bara núna að þeir sem eru að stýra eins og velferðar- kerfinu og slíku eigi að bara að taka sig til og segja stopp og hingað og ekki lengra. Við getum ekki verið að merkja og í rauninni að brenni- merkja fólk sem er fátækt á þennan hátt,“ sagði Guðrún Ögmundsdótt- ir, tengiliður vistheimila, í samtali við RÚV. Hefja á útdeilingu pelsanna í dag. Tryggvi Hansen, sem býr í skóglendi í útjaðri borgarinnar, fékk þó að velja sér pels strax í gær og gekk út með fjögur stykki. Hann setur ekki fyrir sig að pelsarnir séu merktir. „Mér finnst þetta allt í lagi per- sónulega. Þeir sem fíla þetta ekki sleppa því bara að taka pelsana,“ segir Tryggvi. Hann hafi ekkert á móti því að auglýsa dýraverndunar- sjónarmið. „Og ég er ekkert stress- aður yfir því að teljast vera fátækur, ríkidæmi er bara hreint djók.“ Sonul Badiani Hamment segir einu ástæðuna fyrir því að merkja pelsana eindregna afstöðu PETA gegn grimmd í pelsaiðnaðinum. „Við merkjum þá til að tryggja að ekki sé hægt að græða á þeim en að þau dýr sem hafa dáið fyrir þessa pelsa geti komið að góðum notum fyrir fólk sem þjáist í kuldanum á Íslandi,“ segir Sonul. Ásgerður Jóna Flosadóttir, starf- andi formaður hjá Fjölskylduhjálp- inni, segist undrast gagnrýni sem fram hafi komið og nefnir sérstak- lega ákall Guðrúnar Ögmundsdótt- ur um að þeir sem stýri velferðar- kerfinu „segi stopp“ vegna málsins. „Mér finnst eins og Guðrún sé að hóta okkur,“ segir Ásgerður. Fjölskylduhjálpin sé langstærstu hjálpar samtökin í matargjöfum á Íslandi. Þau séu rekin án yfirbygg- ingar. „Það virðist fara afskaplega í taugarnar hjá ráðafólki hjá borg- inni. Það er skrítið hvað vinstri vængurinn hefur á móti okkur. Allt- af ef hægt er að gagnrýna okkur þá er það gert.“ Sonul Badiani Hamment segir mjög auðvelt að sjá neikvæðar hliðar á hlutum. „Þetta hefur ekkert að gera með það að draga fólk í dilka eða slíkt. Við óskum þess eins að fólk geti séð það góða í öðrum og það góða sem við erum að reyna að gera.“ Gunnar Árnason gerði Tryggva félaga sínum viðvart um pelsana og ók honum í Fjölskylduhjálpina. „Hann Tryggvi er ekkert eini maðurinn á Íslandi sem býr ekki í húsi. Ef þetta fólk má ekki hlýja sér á þessum minkum þá á ég ekki til orð lengur,“ segir Gunnar. Auk pelsanna sem Tryggvi fékk var fimm pelsum ráðstafað strax í gær, þar af fóru þrír til félagsins Villikatta sem hyggst nota þá í búr fyrir dýrin. gar@frettabladid.is Sama um gagnrýni á merkta PETA-pelsa Gagnrýnendur segja útdeilingu Fjölskylduhjálpar Íslands á pelsum frá dýraverndunarsamtökunum PETA vera brennimerkingu á heim- ilislausum. Þeir sem fíla þetta ekki sleppa því bara að fá sér pels, segir útilegumaðurinn Tryggvi Hansen sem fékk fjögur stykki í gær. Sonul Badiani Hamment frá PETA og Tryggvi Hansen sem fékk fjóra pelsa í gær. FréTTABlAðið/VilHElm „ég er ekkert stressaður yfir því að teljast vera fátækur,“ segir Tryggvi Hansen. FréTTABlAðið/VilHElm Ef þetta fólk má ekki hlýja sér á þessum minkum þá á ég ekki til orð lengur. Gunnar Árnason Trúmál Íslenska þjóðkirkjan íhug- ar að stefna ríkinu fyrir vangoldin sóknargjöld. Telur þjóðkirkjan sig hlunnfarna og ríkið seilast ofan í vasa kirkjunnar af mikilli hörku. Telur þjóðkirkjan sig vanta hundr- uð milljóna króna inn í reksturinn. Þetta kemur fram í fundargerð Kirkjuráðs. Eftir efnahagshrunið árið 2008 voru sóknargjöld skorin niður til kirkjunnar. Sóknargjald er reiknað út frá meðaltekjuskattstofni og var síðast gert árið 2009. Þrátt fyrir hækkun meðaltekjuskattstofnsins hefur sóknargjaldið ekki hækkað. Því innheimtir ríkið sóknargjald af þegnum sínum en skilar aðeins hluta af gjaldinu til kirkjunnar að mati Agnesar Sigurðardóttur, bisk- ups Íslands. Brást hún við því með að senda prestum bréf. „Kirkjan lét þetta yfir sig ganga en fljótlega kom í ljós að gengið hafði verið miklu lengra gagnvart henni og öðrum rétthöfum sóknargjald- anna heldur en gagnvart öðrum sem sættu skerðingu á framlögum á fjárlögum og í raun var ekki hægt að lýsa þessu öðruvísi en sem aðför að kirkjunni vegna þess hversu sér- tæk og íþyngjandi þessi aðgerð var,“ segir í bréfi forseta og framkvæmda- stjóra kirkjuráðs. Ítrekaði biskup í orðsendingu til presta þann 22. desember og bað þá að senda öllum nefndar- mönnum í efnahags- og viðskipta- nefnd þingsins bréf og skora á þá að auka fé til kirkjunnar. Um fimm hundruð tölvupóstar bárust nefndarmönnum þennan daginn frá vígðum prestum sem og sóknar- nefndarmönnum vítt og breitt um landið. „Siðmennt hefur alltaf verið á móti sóknargjaldafyrirkomu- laginu fyrir trú- og lífsskoðunar- félög. Félagið telur að félagsmenn eigi sjálfir að greiða félagsgjöld til þeirra til þess að standa undir rekstri,“ segir Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Siðmenntar, og bendir á að frá árinu 1988 hafa sóknargjöld numið 74 milljörðum króna á verðgildi ársins 2014. .- sa Biskup Íslands segir ríkið vera í aðför að kirkjunni Í raun var ekki hægt að lýsa þessu öðruvísi en sem aðför að kirkjunni vegna þess hversu sértæk og íþyngjandi þessi aðgerð var Úr bréfi Agnesar Sigurðardóttur, biskups og forseta Kirkjuráðs 2 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a g U r4 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a Ð I Ð 2 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 A -9 A B 0 1 C 0 A -9 9 7 4 1 C 0 A -9 8 3 8 1 C 0 A -9 6 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.