Fréttablaðið - 25.01.2017, Page 6
Ísbúð / Ísgerð – Til sölu
Af sérstökum ástæðum er til sölu einkahlutafélag sem
rekur ísbúð með eigin framleiðslu, miðsvæðis í Reykjavík.
Öll aðstaða er mjög góð og gert er ráð
fyrir kaffisölu og tilheyrandi.
Miklir möguleikar fyrir duglega aðila.
Nánari upplýsingar í síma: 896 0240.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Eldhúsvaskar og -tæki
Schutte Hoga eldhústæki
11.590
Oulin Stálvaskur 0304
2 hólf 62x47cm 0,8mm*
17.890
Oulin Stálvaskur F201
2 hólf 87x49 1,2mm*
39.990
Oulin Stálvaskur F301A
1 hólf 50x45cm 1,2mm*
18.890
Oulin Stálvaskur FTR101R
89x51cm 1,2mm*
25.890
Oulin Florens
eldhústæki
11.890
Schutte Falcon
eldhústæki
7.790
Oulin stálvaskur F302A
1 hólf 59x53cm 1,2mm*
19.790
SCHÜTTE
* þykkt á stáli
Í felulitum
Sérþjálfaðir snjófótgönguliðar, bæði frá Suður-Kóreu og Bandaríkjunum, tóku þátt í heræfingu í Pjongchang
í gær. Pjongchang er um 200 kílómetra austur af Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu. Æfingin var meðal annars
haldin með það í huga að undirbúa aðgerðir gegn mögulegri innrás nágrannanna í norðri. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
sjávarútvegur Loðnuleit Hafrann-
sóknastofnunar lauk í síðustu viku
og unnið er úr gögnum. Sjómanna-
verkfall hafði þau áhrif að leitin fór
fram með breyttu sniði miðað við
upphaflega áætlun.
Leiðangurinn stóð frá 11. til 19.
janúar. Bæði skip stofnunarinnar,
rannsóknaskipin Árni Friðriksson og
Bjarni Sæmundsson, tóku þátt auk
grænlenska skipsins Polar Amaroq.
Til stóð að tvö uppsjávarskip úr
íslenska flotanum tækju þátt í leit-
inni en ekkert varð úr því vegna sjó-
mannaverkfallsins. Hafrannsókna-
stofnun sótti um undanþágu vegna
leitarinnar, en henni var hafnað af
Sjómannasambandi Íslands á fyrstu
dögum ársins.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, vill ekkert
gefa upp um útlitið – það sé einfald-
lega of snemmt. Ef litið er til mælinga
á stærð loðnustofnsins í september
og október í fyrra er útlitið svart. Þá
ráðlagði Hafrannsóknastofnun að
engar loðnuveiðar yrðu stundaðar
á vertíðinni 2016/2017. Í ljósi mæl-
inganna á dögunum mun stofnunin
endurskoða ráðgjöfina. Hins vegar
kom fram í fyrra að allt bendi til
þess að veiðistofninn sé mjög lítill,
og niðurstaðan í fyrra var sú að ekki
hefði um árabil sést eins lítið í rann-
sóknum Hafrannsóknastofnunar.
Niðurstaðan var afdráttarlaus
í haust. Ungloðna, sem myndar
hrygningar- og veiðistofninn á ver-
tíðinni 2017/2018, var vestast og
sunnan til á svæðinu. Magn ung-
loðnu var víðast hvar mjög lítið og
ekkert fannst úti fyrir Norðurlandi.
Einungis mældust rúmlega níu
milljarðar fiska eða 88 þúsund tonn.
Samkvæmt aflareglu þarf fjöldinn að
vera yfir 50 milljörðum til að hægt sé
að mæla með upphafsaflamarki fyrir
vertíðina 2017/2018. – shá
Loðnuleit lokið en engin
ástæða er til bjartsýni
stjórnmál Alþingi kom saman í
gær eftir jólafrí og myndun nýrrar
ríkisstjórnar. Ljóst er að samvinna
stjórnar og stjórnarandstöðu byrjar
ekki vel en samstaða náðist ekki um
skipun í nefndir þingsins.
Á fyrstu fundum nýrra þing-
nefnda verður því kosið um for-
menn nefndanna en stjórnar-
flokkarnir hafa meirihluta í öllum
nefndum þingsins. Vildu stjórnar-
andstöðuþingmenn meina að um
væri að ræða misbeitingu valds rík-
isstjórnarflokkanna. Á síðasta kjör-
tímabili hafði stjórnarandstaðan
tvo nefndarformenn.
Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra boðaði stórsókn í innviða-
uppbyggingu á þessu kjörtímabili
í stefnuræðu forsætisráðherra.
Leiðarstef ríkisstjórnarinnar var um
aukna menntun og betri heilbrigðis-
þjónustu. Einnig sagði Bjarni það
forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar
að vinna að loftslagsmálum og við-
halda jafnvægi í efnahagsmálum.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, gagnrýndi ræðu forsætisráð-
herra að því leyti að ekkert var rætt
um félagslegt réttlæti. „Við vitum að
ríkustu tíu prósentin hér eiga þrjá
fjórðu alls auðs hér á landi,“ sagði
Katrín. Einnig vék hún orðum að
nýrri ríkisstjórn og sagði hún Við-
reisn og Bjarta framtíð hafa selt
nánast flest sín kosningaloforð.
Kerfisbreytingarnar sem flokkarnir
boðuðu væru litlar sem engar.
Ásta Guðrún Helgadóttir, þing-
kona Pírata, og Logi Einarsson, for-
maður Samfylkingar, minntu for-
sætisráðherra á að hann hafi setið á
skýrslu um aflandseignir Íslendinga.
Benedikt Jóhannesson fjármála-
ráðherra sagði heilbrigðismál í for-
gangi, umbætur í landbúnaði og
sjávarútvegi væru einnig forgangs-
mál nýrrar ríkisstjórnar sem og
stöðugt gengi og jafnrétti kynjanna.
„Við höldum í það góða, breytum
hinu. Við viljum kerfisbreytingar en
engar kollsteypur,“ sagði Benedikt.
Fyrrverandi forsætisráðherra, Sig-
urður Ingi Jóhannsson, gagnrýndi
ræðu Bjarna hvað harðast. Sagði
hann stjórnina of veika „Hægt hefði
verið að mynda annars konar stjórn
sem hefði mun breiðari pólitískari
skírskotun en sú hægri stjórn sem
var mynduð undir forystu þeirra
Engeyjarfrænda. Forsætisráðherra
var mæta vel kunnugt um það. En sá
á kvölina sem á völina og 25 prósent
ánægja er niðurstaðan með það val.“
sveinn@frettabladid.is
Boðar stórsókn við
uppbyggingu innviða
Alþingi kom saman í gær eftir jólafrí og myndun nýrrar ríkisstjórnar. Forystu-
menn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar eru sakaðir um að selja loforð sín ódýrt.
Ráðherra mismælti sig í ræðunni og sagði ríkisstjórnina hafa aðgerðaáætlun vegna
Panamasamkomulagsins, en átti við Parísarsamkomulagið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERnIR
2 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 m I Ð v I K u D a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
2
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
A
-A
E
7
0
1
C
0
A
-A
D
3
4
1
C
0
A
-A
B
F
8
1
C
0
A
-A
A
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K