Fréttablaðið - 25.01.2017, Blaðsíða 14
Stór viðskipti voru með bréf í Marel
13. janúar síðastliðinn þegar Lands-
bankinn og hlutabréfasjóðir í stýringu
Landsbréfa, ásamt öðrum hluthöfum
í Marel, seldu samanlagt 1,1 prósents
hlut í félaginu. Kaupandi bréfanna
var erlendur aðili, samkvæmt heim-
ildum Markaðarins, og heldur hann
á hlutnum í gegnum safnreikning á
vegum Landsbankans en það voru
markaðsviðskipti bankans sem sáu
um viðskiptin. Miðað við núverandi
gengi bréfa í félaginu er hluturinn
metinn á tæplega 2,2 milljarða króna.
Gengi bréfa í Marel hefur hækkað
nokkuð að undanförnu. Þannig
hækkuðu bréfin í verði um tæplega
2,3 prósent í gær og nam gengið 269,5
krónum á hlut við lok viðskipta í
Kauphöllinni. Frá áramótum nemur
verðhækkunin hartnær átta pró-
sentum. Hagnaður Marel á fyrstu níu
mánuðum ársins var 53,2 milljónir
evra og jókst um liðlega 14 prósent
frá sama tímabili árið 2015. – hae
Um 39 milljóna gróði
af sölu á herrafatnaði
Herragarðurinn rekur verslanir í Kringlunni og Smáralind. fréttablaðið/anton
Einkahlutafélagið Föt og skór, eig-
andi Herragarðsins, var rekið með
39 milljóna króna hagnaði árið 2015.
Afkoman var jákvæð um 205 millj-
ónir árið 2014 en það ár seldi félagið
hlutabréf fyrir 95 milljónir króna.
Þetta kemur fram í nýjum árs-
reikningi félagsins sem skilað var
inn til ársreikningaskrár Ríkisskatt-
stjóra rétt fyrir áramót. Samkvæmt
honum námu eignir þess 746 millj-
ónum í árslok 2015 en skuldirnar
701 milljón. Rekstrartekjur námu
þá 1,2 milljörðum króna og lækk-
uðu um 6,5 prósent milli ára. Föt
og skór á og rekur verslanir Herra-
garðsins í Kringlunni og Smáralind.
Í reikningnum er einnig tekið fram
að félagið reki aðrar verslanir en ein
þeirra er Boss-búðin í Kringlunni.
Það á einnig helmingshlut í fast-
eignafélaginu Suður67 ehf. Föt og
skór er í eigu Hákons Magnússonar,
Rósu Sigurðardóttur og 1967 ehf. – hg
764
milljónir króna var verð-
matið á eignum eiganda
Herragarðsins í árslok 2015.
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Lagði fram tilboð í
Hellisheiðarvirkjun
MJDB ehf. sendi Reykjavík, Akranesi og Borgarbyggð tilboð í Hellisheiðar-
virkjun. Félagið er í eigu íslensks framkvæmdastjóra America Renewables í Kali-
forníu. Bókfært virði þriggja virkjana ON nemur um 107 milljörðum króna
Stjórn or hafnaði tilboði sem barst í virkjunina 2. desember. Kom þá fram að engin ákvörðun hefði verið tekin um sölu
virkjanasamstæðu or og að slíkt væri ekki á færi stjórnar heldur eigenda fyrirtækisins.
Viðskiptaráð telur mikil tækifæri
fólgin í því að draga úr opinberu
eignarhaldi fasteigna hér á landi og
leggur til að ríkið selji fermetra fyrir
45 milljarða króna. Telur ráðið hag-
kvæmt að einkaaðilar fái að kaupa
einn ef hverjum fjórum fermetrum
í eigu ríkisins sem sé umsvifamesti
rekstraraðili fasteigna á Íslandi.
Þetta kemur fram í nýrri úttekt
Viðskiptaráðs á umsvifum ríkisins
á íslenskum fasteignamarkaði sem
verður kynnt í dag. Segir þar að
ríkissjóður eigi alls 880 þúsund fer-
metra af húsnæði í um eitt þúsund
fasteignum.
„Nýting þessara fasteigna er óhag-
kvæm, en ríkisstofnanir nota tvöfalt
fleiri fermetra á hvern starfsmann
en alþjóðleg viðmið segja til um.
[…] Til að setja þessi umsvif ríkisins
á fasteignamarkaði í samhengi má
nefna að flatarmál Laugardalsvallar
er sjö þúsund fermetrar og flatarmál
Kringlunnar er fjörutíu þúsund fer-
metrar. Fasteignir ríkissjóðs jafn-
gilda því um 125 knattspyrnuvöll-
um eða 22 Kringlum að stærð.“ – hg
Vill að ríkið selji húsnæði
fyrir 45 milljarða króna
Einkahlutafélagið MJDB vill kaupa
Hellisheiðarvirkjun af Reykjavíkur-
borg, Akraneskaupstað og Borgar-
byggð. Sveitarfélögin þrjú fengu fyrr
í mánuðinum tilboð í eignarhluti
sína en Orkuveita Reykjavíkur (OR)
hafnaði um miðjan desember tilboði
sama félags í virkjunina í annað sinn.
Útlit er fyrir að forsvarsmenn sveitar-
félaganna fundi um málið á næstu
vikum.
MJDB er að stærstum hluta í
eigu Magnúsar B. Jóhannessonar,
framkvæmdastjóra hjá America
Renewables í Kaliforníu, en í samtali
við Markaðinn vildi hann ekki tjá sig
um tilboðin eða það hvort aðrir inn-
lendir eða erlendir fjárfestar komi að
þeim. Magnús á 70 prósenta hlut í
MJDB en lögmannsstofan Lagahvoll
er skráð fyrir 30 prósentum. Daði
Bjarnason, stofnandi og einn eig-
enda Lagahvols, vildi ekki tjá sig um
málið og vísaði á Magnús. America
Renewables var stofnað árið 2009
og er einkahlutafélag með höfuð-
stöðvar í borginni Rolling Hills í
Kaliforníu. Samkvæmt heimasíðu
fyrirtækisins hefur það komið að
ýmsum verkefnum sem tengjast
endurnýjanlegum orkugjöfum.
Hellisheiðarvirkjun er í eigu Orku
náttúrunnar (ON), dótturfélags
Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Reykja-
víkurborg á 93,54 prósenta hlut í OR,
Akraneskaupstaður 5,53 prósent og
Borgarbyggð 0,93 prósent. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Orkuveitu
Reykjavíkur hefur ekki farið fram
verðmat á Hellisheiðarvirkjun. Bók-
fært virði virkjana ON í árslok 2015
var um 950 milljónir Bandaríkjadala
eða 107 milljarðar króna miðað við
núverandi gengi. Bróðurpart þeirrar
upphæðar má rekja til Hellisheiðar-
virkjunar þar sem Nesjavallavirkjun
hefur verið afskrifuð að verulegu
leyti og Andakílsárvirkjun er komin
til ára sinna.
Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitar-
stjóri Borgarbyggðar, segist ætla
að ræða tilboðið við meðeigendur
sveitar félagsins í OR. Regína Ásvalds-
dóttir, bæjarstjóri Akraneskaup-
staðar, segir að tilboðið í 5,53 pró-
senta eign bæjarins verði tekið fyrir
í bæjarráði á morgun. S. Björn Blön-
dal, formaður borgarráðs Reykja-
víkurborgar, staðfestir að tilboðið
hefur ekki enn komið inn á borð
borgarráðs.
„Ég get ekkert sagt að svo stöddu
en þó að það er verðhugmynd í til-
boðinu. Það er sami aðilinn sem er
að bjóða bæði í Reykjavíkurborg,
Akranes og Borgarbyggð,“ segir Reg-
ína. haraldur@frettabladid.is
Magnús b.
Jóhannesson,
framkvæmda-
stjóri hjá America
Renewables
Erlendur fjárfestir keypti í Marel
Gengi bréfa í Marel hafa hækkað um nærri átta prósent frá áramótum og nemur
markaðsvirði félagsins í dag um 200 milljörðum króna.
2 5 . j a n Ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn
2
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
A
-9
0
D
0
1
C
0
A
-8
F
9
4
1
C
0
A
-8
E
5
8
1
C
0
A
-8
D
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K