Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 IB ehf • Fossnes 14 • 800 Selfoss • ib.is Sími 4 80 80 80 • Varahlutir • Sérpantanir • Aukahlutir • Bílasala • Verkstæði Bílar til afhendingar í maí Nánari uppl á Facebook síðu IB ehf Ford F350 Lariat Ford F350 Lariat GMC 3500 All Terrain Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Ég lærði sögu í háskólanumog er núna í meistara-námi í framhaldsskóla-kennsluréttindum sem sögukennari. Ég hef óbilandi áhuga á sögu og ferðalögum sem tvinnast mikið saman. Eftir að ég tók mótor- hjólaprófið þá vaknaði nýr áhugi hjá mér, að nota mótorhjól sem ferða- máta,“ segir Eiríkur. Ævintýra- mennska hefur einkennt líf hans síð- astliðin ár en hann hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur í gegnum tíð- ina. Eiríkur hefur til að mynda verið kennari í leik- og grunnskóla, bæði hér á landi og í Kína, stuðnings- fulltrúi á meðferðarheimili, spilað knattspyrnu með FH og nú síðast verið leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn um söguslóðir Reykjavík- ur sem hann gerir enn. Eiríkur á mörg ferðalög á mótorhjóli að baki og stendur efst upp úr annars vegar ferðalag niður Víetnam endilangt og hins vegar Suður-Kína og Myanmar. „Þetta byrjaði eftir að ég út- skrifaðist úr framhaldsskóla, þá fóru ég og vinur minn í þessa týpísku Evrópureisu þar sem við keyptum okkur lestarmiða sem var opinn í sex vikur. Þarna fékk maður tilfinningu fyrir því hvað það er gaman að ferðast og sjá nýja hluti á hverjum degi, ráða ferðinni sjálfur og vera frjáls,“ segir Eiríkur. Áhugamál sem varð að ástríðu Þegar hann lauk BA-gráðu í sagnfræði í Háskóla Íslands var komið að næstu ferð. „Ég fór til Suð- austur-Asíu með tveimur vinum mín- um. Við ákváðum að kaupa okkur mótorhjól í Víetnam og tókum mán- uð í að hjóla frá norðri til suðurs. Þetta eru á bilinu 1.700-1.800 kíló- metrar, semsagt aðeins meira en hringvegurinn á Íslandi. Ég var eini með mótorhjólapróf og var búinn að vera að ferðast mikið hérna heima og var að fá þessa dellu, en það var ekki fyrr en eftir þetta ferðalag sem ég uppgötvaði mótorhjól sem ferða- máta. Það er svo mikið frelsi sem fylgir því að vera ekki þessi týpíski ferðalangur sem er bundinn við tíma á rútu, lest eða flugvél.“ Eiríkur segir að þeir félagarnir hafi upplifað Víetnam á einstakan hátt, en mótorhjól eru ekki leyfð á helstu þjóðvegum landsins. „Við þurftum að keyra á svokölluðum B- og C-vegum, sem eru frekar lélegir drullu- og malarvegir. Við fórum því út fyrir hina týpísku ferðamanna- staði en það er það sem við vorum að leitast eftir. Þetta var svo ekta og okkur fannst það svo geggjað, mat- urinn, lyktin og jafnvel ruslið á göt- unum, þetta var allt þess virði.“ Þegar inn í borgirnar sjálfar var komið, eins og Hanoi í norðri og Sai- gon í suðri, lýsir Eiríkur umferðinni á hinn bóginn sem hálfgerðri mar- tröð. „Ég man eftir því að þegar ég hjólaði inn í Saigon tók það okkur um fjóra tíma að komast inn í borgina. Þegar ég kom inn í risastórt hring- torg breyttist umferðin í hálfgerða fiskitorfu og ég endaði innarlega í torginu en vinir mínir utarlega. Ég varð viðskila við þá og fylgdi fiski- torfunni og það tók mig marga Öðlast ólýsanlegt frelsi á mótorhjólinu Ferðalög, saga og mótorhjól eru þrjú helstu áhugamál Hafnfirðingsins Eiríks Viljars Hallgrímssonar Kúld. Honum hefur nú tekist að sameina þetta þrennt með því að þræða fáfarna vegi í Asíu þar sem hann lenti í hinum ýmsu ævintýrum þar sem skæruliðar í hengirúmum, munkar og matarást koma meðal annars við sögu. Eiríkur ætlar nú að nýta reynslu sína í að leiða íslenska ferðalanga um Víetnam á mótorhjóli næsta haust. Fegurð Bagan hofin í Myanmar eru stórbrotin. Eiríkur lenti í ýmsum æv- intýrum í Myanmar og eyddi meðal annars einni nótt í munkaklaustri. Alvöru klæðnaður „Ég hef ekki oft orðið ástfanginn, en þegar ég sá þetta vesti á markaði hér í Myanmar hugsaði ég „Vá! Ég verð að eignast það.““ Kramhúsið stendur fyrir sumarnám- skeiði fyrir skapandi krakka sem verð- ur ævintýri líkast. Magga Stína, Aude Busson og Ásrún Magnúsdóttir hafa umsjón með námskeiðunum en allar hafa þær kennt í Kramhúsinu áður og eru þekktar úr lista- og menningarlíf- inu. Magga Stína starfar sem tónlist- arkona og sá meðal annars um tónlist- arleikhúsið fyrir 5-9 ára börn við góðar undirtektir í vetur. Á námskeiðinu verður ævintýra- heimur skapaður út frá texta og hug- arflugi þátttakenda. Leitast verður við að ljúka upp dyrum í heimi hljóða og tóna á fjölbreyttan og áþreifanlegan hátt. Unnið verður að gerð tónverka og skoðuð áhugaverð hljóðfæri úr óvæntum áttum. Ómælisdjúp eigin sköpunarkrafts verður kannað þegar tónlistin kallar fram hreyfingu og dansinn fer á flug. Einnig verður farið í vettvangsferðir til að kynnast hverfinu og finna sviðsetningu fyrir ævintýrið. Hver dagur hefur sitt þema og til- kynnt verður í lok hvers dags hvert næsta þema er. Börnin fá frjálst og skapandi flæði með leiðsögn og semja sjálf verkið sem þau sýna foreldrum í lok vikunnar. Námskeiðin eru vika í senn og vikurnar eru 20.-24. júní og 27. júní-1. júlí, að báðum dögum með- töldum. Nánari upplýsingar má nálg- ast á www.kramhusid.is. Ævintýri, leikur og dans í Kramhúsinu í sumar Sumargleði Magga Stína mun kenna börnum að skapa í sumar í Kramhúsinu. Skapandi námskeið fyrir börn Fróðleiksþyrstir plöntuáhugamenn ættu að gera sér ferð í Grasagarðinn í kvöld, miðvikudagskvöld. Klukkan 20 mun Jóhanna Þormar garðyrkjufræð- ingur leiða gesti í fræðslugöngu um Grasagarð Reykjavíkur. Grasagarðurinn er lifandi safn undir berum himni og í garðinum eru varðveittir um 5.000 safngripir í átta safndeildum. Í göngunni verða steinhæð- arplönturnar skoðaðar en í stein- hæðum Grasagarðsins vaxa háfjalla- plöntur frá öllum heimshornum. Einnig verður farið yfir skipulag og uppbyggingu steinhæða. Gangan er einn af fjölda viðburða sem boðið verður upp á í Grasagarðinum í sum- ar. Næstkomandi sunnudag, 19. júní, verður til að mynda haldið upp á dag villtra blóma. Gengið verður um Laugarásinn og plöntur verða greind- ar til tegunda, auk þess sem fjallað verður um gróður svæðisins og starf- semi Flóruvina kynnt. Kaffi Flóra verður auk þess opin í allt sumar. Fræðsluganga um steinhæðarplöntur í Grasagarðinum Háfjallaplöntur frá ýmsum heimshornum Morgunblaðið/Þorkell Gróður Fjallasóley er meðal steinhæðarplantna sem má finna í Grasagarðinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.