Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 167. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Stórkostleg byrjun á EM
2. Sólarferðir á slikk
3. „Þess vegna höldum við með Íslandi“
4. Þekkti ekki Britney Spears
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Aðrir tónleikarnir í tónleikaröð KÍ-
TÓN, félags kvenna í tónlist á Íslandi,
og Kex hostels í samstarfi við Arion
banka verða haldnir í kvöld í salnum
Gym & tonic í Kex hosteli. Tónlistar-
konan Glowie og hljómsveitin Lily the
Kid koma fram á þeim og hefjast tón-
leikarnir kl. 20.30.
Glowie, réttu nafni Sara Péturs-
dóttir, hefur átt miklum vinsældum
að fagna hér á landi allt frá því fyrsta
lag hennar, „No more“, komst á topp
vinsældalista og var tilnefnt til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna í ár
sem popplag ársins en Glowie til-
nefnd til verðlauna sem söngkona
ársins og bjartasta vonin. Lily the Kid
skipa systkinin Lilja K. Jónsdóttir og
Snjókaldur K. Svarfdal, fyrrverandi
liðsmenn hljómsveitarinnar Blood-
group. Kex hostel og KÍTÓN bjóða
upp á mánaðarlega tónleika undir
yfirskriftinni KEX+KÍTÓN.
Morgunblaðið/Kristinn
Glowie og Lily the
Kid í Gym & tonic
Jazzklúbburinn Múlinn og Heims-
tónlistarklúbburinn hefja sumardag-
skrá Jazzklúbbsins Múlans með
sumargleði í kvöld kl. 21 á Björtu-
loftum í Hörpu. Hljómsveitirnar
Kúbik kvintett og Byzantine Silhou-
ette leika á tónleikunum, Kúbik
kvintett flytur frumsamda tónlist
meðlima sem sækja inn-
blástur í tónlistararf
Kúbu. Byzantine Silhou-
ette leikur blöndu af
lögum frá Balkan-
skaganum. Sjö
tónleikar
verða á dag-
skrá Múl-
ans í sumar
á Björtuloftum.
Sumargleði Múlans
á Björtuloftum
Á fimmtudag og föstudag Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað
með köflum og víða smáskúrir. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig.
Á laugardag Suðaustan 8-13 og dálítil rigning, en hægari vindur
og þurrt á N- og A-landi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með köflum, líkur á skúrum síðdegis.
Hiti frá 7 stigum austast, upp í 18 stig í innsveitum á V- og N-landi.
VEÐUR
Ungverjar komu á óvart í
upphafsleik F-riðils
Evrópumótsins í knatt-
spyrnu á Stade de Bor-
deaux-vellinum í Bordeaux
í gær þegar liðið vann 2:0
sigur á Austurríki, liði
sem margir spekingar
spáðu góðu gengi á
mótinu. Bæði mörkin voru
skoruð í síðari hálfleik.
Ungverjar mæta Íslend-
ingum á laugardaginn í
Marseille. »4
Ungverjar komu á
óvart í Bordeaux
Kyrie Irwing fór á kostum þegar Cleve-
land Cavaliers vann Golden State War-
rioros í fimmtu viðureign liðanna um
NBA titilinn í körfuknattleik, 112:97.
Irwing skoraði rúmlega 40 stig og gaf
félaga sínum Le-
Bron James lítið
eftir en saman
skoruðu þeir fé-
lagar yfir 80
stig. Baráttan um
NBA-titilinn
er því enn
galopin.
»4
Irwing og félagar eru
ekki af baki dottnir
Aníta Hinriksdóttir hafnaði í öðru
sæti í 800 m hlaupi á alþjóðlegu
frjálsíþróttamóti í Luzern í Sviss í
gærkvöldi. Ásdís Hjálmsdóttir varð í
fjórða sæti í spjótkasti á sama móti
en var nokkuð frá sínu besta, kastaði
rétt rúmlega 57 metra. Aníta var
einnig nokkuð frá Íslandsmeti sínu
en um þriðjungi úr sekúndu á eftir
sigurvegara hlaupsins. »1
Aníta og Ásdís stóðu
í ströngu í Luzern
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Axel Ómarsson söngvari og hljóm-
sveit hans, Axel O & Co, eru að slá í
gegn á meðal unnenda bandarískrar
sveitatónlistar (Country Music) hér
á landi og erlendis. Mörg vinsælustu
dægurlög á Íslandi undanfarna ára-
tugi, t.d. með Brimkló, komu úr
bandarískri sveitatónlist en voru
þýdd og staðfærð og urðu þar með
íslensk.
Axel O & Co spiluðu um síðustu
helgi á sveitatónlistarhátíð í Sörvogi
í Færeyjum ásamt færeyskum,
bandarískum og sænskum tónlistar-
mönnum. Axel og félagar spiluðu á
stóra sviði hátíðarinnar á föstudags-
kvöldinu og líkaði fólki það vel að
þeir voru fengnir til að taka auka-
tónleika á laugardagskvöldinu.
Axel á ekki langt að sækja tónlist-
arhæfileikana en faðir hans er Ómar
Axelsson, djasspíanóleikari og
bassaleikari. Axel var hér í ung-
lingahljómsveitum áður en hann
flutti frá Íslandi. „Ég flutti til
Bandaríkjanna með fjölskyldu minni
þegar ég var 16 ára, fyrst til Okla-
homa og svo til Texas, og bjó þar
samtals í tíu ár,“ sagði Axel. Í Texas
lærði hann á píanó og var alltaf með
gítar í höndunum. „Þar var maður
með kántrítónlist í eyrunum allan
daginn og heyrði hana alls staðar.
Þegar ég fluttist aftur heim saknaði
ég tónlistarinnar. Það vaknaði hjá
mér þörf til að fara að spila hana,“
sagði Axel. „Ég byrjaði að spila fyrir
alvöru hér á Íslandi fyrir um fimm
árum, m.a. á Bryggjunni í Grindavík
og í kántrímessum í Digra-
neskirkju og þar
sem fólk vildi
hlusta á kántrí.“
Axel O & Co
sendu frá sér lagið
Country Man í
fyrra. Axel sendi
það til internet-
útvarpsstöðva víða um heim sem
spila lög nýrra kántrítónlistar-
manna.
Lagið fór hratt í spilun og rataði
strax í fyrrahaust inn á lista í Lond-
on hjá Spectrum Radio (spectrum-
radiopettswood.com). Lagið var í 12
vikur í topp 10 og þar af tvær vikur í
1. sæti, að sögn Axels. Hann kvaðst
hafa fengið mikil viðbrögð við laginu.
„Internetið hefur gjörbreytt tónlist-
arheiminum. Fólk er almennt orðið
svo vel meðvitað um það sem er að
gerast í öðrum löndum en þess eigin.
Lagið hefur farið ansi víða í gegnum
þessa miðla og er í spilun á alls kon-
ar stöðvum. Lagið lendir kannski í
spilun í þætti sem svo er end-
urfluttur í netútvarpsstöðvum í 120
löndum,“ sagði Axel.
Íslensk sveitatónlist sækir á
Lög með Axel O
& Co eru spiluð
víða um heim
Ljósmynd/Ásgeir Kröyer
Axel O & Co Hljómsveitin á sviði í Bæjarbíói í Hafnarfirði þar sem Merle Haggards var minnst. F.v.: Sigurgeir
Sigmundsson, Axel Ómarsson, Sigfús Óttarsson, Magnús Kjartansson og Jóhann Ásmundsson.
Open Road heitir fyrsta plata Ax-
els O & Co. Á henni eru tíu lög sem
Axel Ómarsson samdi ýmist einn
eða með Sigurgeiri Sigmundssyni.
Sigurgeir á eitt lag á plöt-
unni. Axel gerði textana einn
eða í félagi við Harald Jó-
hannsson og fleiri.
Hljómsveitin Axel O & Co
var stofnuð í maí 2015. Axel
kvaðst fyrst hafa hringt í
Magnús Kjartansson, sem
spilar á hljómborð og syngur bak-
raddir. Næst bættist í hópinn
Sigurgeir Sigmundsson gítarleik-
ari, sem m.a. spilar á pedal-stál-
gítar sem er mikilvægt hljóðfæri í
kántrítónlist. Síðan bættust í hóp-
inn þeir Jóhann Ásmundsson,
bassaleikari úr Mezzoforte o.fl.
hljómsveitum, og hinn margreyndi
trommuleikari Sigfús Óttarsson
og þar með var hljómsveitin full-
skipuð.
Spilarar hoknir af reynslu
OPEN ROAD HEITIR FYRSTA PLATA AXELS O & CO